þriðjudagur, júlí 17, 2007

Eplaspitt.

Ég er að taka heilsupillur frá Heilsuhúsinu og er orðin sannfærð um að það sé ekki allt með felldu í því húsi. Svei mér þá ef það er ekki spítt í hylkjunum sem þau eru að framleiða.

Núna er klukkan hálftvö eftir miðnætti og ég var að koma úr garðinum þar sem ég stóð og hengdi upp þvott. Áður en ég þaut út í garð vaskaði ég upp eftir sambýlinga mína. Þar með talinn horror pottinn. Aldrei á ævi minni hef ég séð jafn brenndan botn. Ég vissi ekki að það væri hægt að brenna spagettí svona illilega.

En jú jú ef einhver hefur áhuga á lífi mínu og list þá er hér svona mynda síða sem ég apaði upp eftir systur minni.

http://www.flickr.com/photos/loaloaloa/

Þar sem ég er linkasauður þá er bara best að kópí peista þetta. ha? bara kópípeista þennan fjanda.

fimmtudagur, júlí 12, 2007

jubili

Þá er júbílí næstum hálfnaður. Ég er komin með bikínífar og fjarlægist óðum arískan uppruna minn. Í morgun fór ég í sund og synti. Núna þarf ég nauðsynlega að koma mér upp þolinmæði gagnvart óskipulögðum gamalmennum.

mánudagur, júlí 09, 2007

Eitt i viðbot..

Linkasíðan er í stafrófsröð bara svo þið vitið það.

Mein Gott im Himmel!

Sjáiði bara. Hvílík litadýrð. Til að heiðra systur mína, tók ég mig til og föndraði allskonar vitleysu við bloggið mitt. Núna er til dæmis hægt að kommenta án þess að vera krafinn skilríkja. Svo er ég loksins búin að koma nokkrum linkum fyrir á síðunni.

Annars var ég að hrynja úr Lödu Sport rétt í þessu (það er að segja fyrir tveimur tímum síðan því ég var að hanga á netinu og svo fór ég að dedúa við bloggið mitt.) Ég og Aríaprinsinn(sjá link), Bixí og Gamli keyrðum í allan dag frá Siglufirði til Reykjavíkur. Við venjulegar aðstæður tekur um fimm og hálfan tíma að keyra en við stoppuðum nokkrum sinnum á leiðinni og sit ég hér með dýrmætt góss úr ferðinni. Ég keypti eftirprentun af mynd eftir Sölva Helgason a.k.a. Sólon Íslandus og svo einstaklega falleg póstkort með fleiri fögrum myndum eftir sama mann.

En já há. Við stöldruðum við i í Lónkoti, Sölvabar, Hofsósi(ég er ekki viss um að það teljist sem staður, ekki hræða á ferð), Sölvabar(sumir gleymdu myndavél ofan á bíl sem vildi ekki hafa myndavél ofan á sér og hrinti henni í grasið), Varmahlíð, Staðarskála(eða Staldrinu eins og aðrir vildu kalla það), Hyrnunni og loks á bensínstöð í Pizzabæ (Mosó já sumir kalla það Pizzabæ, Mosó þar sem mánudagur er Miller time). Ástæðan fyrir síðasta stoppinu er sú að á leiðinni til Siglufjarðar hafði víst gleymst að borga fyrir brúsann, bensínbrúsann það er. Núna verður sviganotkun hætt svo ekki fái mannskapurinn flogakast.

Ég varð reyndar ekki vitni að téðri gleymsku þar sem ég fór degi á undan með Múttu, Pápa og Frú Gutt. Á fimmtudaginn var nefnilega för okkar heitið á þjóðlagahátíð. Já jú það hljómar ekki spennandi í allra eyrum en persónulega er ég aðdáandi þessarar tegundar tónlistar. Langspilssmíði ætti að vera skylduverkefni í grunnskólum landsmanna sem og kennsla á hljóðfærið. Heimurinn á nóg af pizzubrettum og lélegum blokkflautuleikurum.

Það er alveg magnað hversu mikinn tíma maður hefur úti á landi. Ég náði að lesa heila bók þrátt fyrir útstáelsi og tónleikaráp, sundferðir og fleira.

En ég má til með að segja frá markaðnum í Lónkoti. Hann er auglýstur sem stórkostlegur markaður þar sem bændur mæta með fersk matvæli, handunnar vörur og ég veit ekki hvað og hvað. Þegar við mættum á svæðið blasti við okkur risastór sirkustjald sem innihélt í mesta lagi ellefur sölubása.

Markaðurinn:

Bás 1: Kona að selja barnavettlinga
Bás 2: Kona að selja barnavettlinga og kleinur
Bás 3: Maður með tvo brauðhleifa og hálffrosinn fisk
Bás 4: Kona að selja nælon blóm og asíska púða
Bás 5: Kona að selja verksmiðjuunna barnaskó
Bás 6: Kona að selja flöskur, verksmiðjuunnar styttur og lukkupakkar. Birgitta keypti einn pakka og ég annan. Í pakka voru glasamottur og flöskuupptakari í laginu eins og kókflaska, í pakkanum hennar Birgittu leyndust glasamottur og já... ekkert fleira. Á mottunum stóð: New York, Big Apple, Manhattan.
Bás 7: Maður að selja ritfangavörur úr búð sem er á Siglufirði
Bás 8: Kona að selja notuð föt
Bás 9: Kona að selja eitthvað dótarí
Bás 10: Maður að selja harðfisk
Bás 11: Kjaftagleiður maður að selja mótorhjólafatnað á tugþúsundir króna, einn bleikan apa sem gefur frá sér hljóð ef þrýst er á trýnið og tvo farsíma. Annan á þrettán þúsund og hinn á sjöþúsund. Nokia eru víst bestir.

Ég bjóst nú ekki við Mið-Evrópsku Blómavali en þetta var nú bara eins og eitthvað Chernobyl Kolaport.

Framhald síðar. Mér er orðið óglatt af þreytu. Góða nótt

miðvikudagur, júlí 04, 2007

Jæja starfsfólk Guinnes Book of Records dragið fram penna og skrifblokk. Nýtt met var í þann mund að fæðast.

Ef frá taldar eru bronseftirmyndir af fólki þá held ég að ég eigi heimsmetið í að vera kúkuð á af fuglum. Áðan sat ég í makindum úti í garði og las. Skyndilega féll eitthvað volgt og slepjulegt á öxlina sem slettist niður á framhandlegg og á kjólinn minn. Þetta var tilræði númer fjögur.

Nú er mér allri lokið. Nú verð ég hreinlega að gerast trúuð og komast að því hvað það er sem vekur reiði Guðs. Þetta hlýtur að vera áminning vegna einhvers sem ég hef gert.

Engan þekki ég sem getur toppað þetta met og þegar ég hafði einungis lent í þessu þrisvar gat heldur enginn toppað mig. Ég þarf greinilega að fara niður í Klifurhús og rannsaka þetta meðal fjallaklifursgarpa.

Á eftir kemur Lísa Páls og sækir mig. Hún ætlar að keyra mig á æskustöðvarnar og taka viðtal við mig um Breiðholt. Jibbí, mér finnst einmitt svo skemmtilegt að tala um einmitt það og núna er ég ekki að vera kaldhæðin.

fimmtudagur, júní 28, 2007

Sei sei jájá hér. Ég var að frétta af honum kæra vini Hulla. Hann er að verða arfavitlaus í Svíþjóð því bölvaðir Skandínavarnir neita að tala á engilsaxnesku. Hann situr bara eins og daufdumbur á einhverjum námskeiðum allan daginn. Mætti ég stinga upp á flótta. Það myndi ég gera. Flýja í hraðbanka og svo á hótel. Núna væri jafnvel sniðugt að fara í sund. Þaldénú.
í morgun bjó ég til pönnukökur, beikon og egg og sitthvað fleira. Svo skar ég mig á glasi þegar ég gekk frá. í gær fór ég í Laugardalslaugina með móður. Við fórum í rennibrautina og ég kenndi 57 ára gamalli móður minni að setja sundbolinn upp í rassinn til þess að komast hraðar. Hún átti ekki til orð. Mér finnst furðulegt að ég hafi verið að ljóstra upp þessari staðreynd fyrst núna. Ég hef lumað á þessu síðan 1986 eða 7. Já eða sko síðan rennibrautin kom fyrst í dalinn.

miðvikudagur, júní 27, 2007

Ég mæli eindregið með því að fólk drekki gin á virkum dögum. Nema það sé með ofnæmi fyrir áfengi eins og alkóhólistar segjast vera með. Þetta hljómaði dáldið illa en það er bara af því að ég er gegnsósa af gini.

Jalliraddirí ég fór áðan á tónleika á Nasa. Þegar þangað var komið sá ég það skásta í stöðunni að hella í mig. Motion Boys og Rapture trylltu lýðinn á meðan ég gerði mér dælt við barþjóninn ljóta. Núna er ég komin heim og hef ekkert betra að gera en að blogga.

þriðjudagur, júní 26, 2007

Mikið væri ánægjulegt ef að allir litlu pastafeitu jakkafatasmeðjungarnir hjá Sjálfstæðisflokknum myndu skyndilega ákveða að draga sig úr pólitík og flytja til Austur Evrópu. Þessi einstaklingsmiðaða frjálshyggja er bara bull og vitleysa og hönnuð til þess níðast á þeim sem minna mega sín. Það mætti halda að þessir rökuðu sjálfstæðispungar hefðu aldrei fylgst með í samfélagsfræði.
Vændi ætti að sjálfsögðu að vera ólöglegt með öllu. Elsta atvinnugreinin my ass. Ég held svei mér þá að þetta helvítis lið gangi ekki heilt til skógar. Þeir mættu alveg ganga til skógar mín vegna, heilir sem hálfir.

Þegar ég opnaði Fréttablaðið í morgun mætti mér mynd af klámgeltinum Geira Gullfingri. Hann er spurður hvort að stúlkurnar hans fari ekki bara að dansa undir borðum fyrst að einkadans verði bannaður um næstu mánaðamót. ,, Ég held að það hljóti að vera eina leiðin" segir Geir og glottir við tönn.

Af hverju er Ásgeir Davíðsson látinn líta út eins og einhver hress karl í áhugaverðum atvinnurekstri? Hvers vegna eru myndir af honum í Séð og Heyrt þar sem hann er faðmaður af fáklæddum konum eins og það sé eðlilegasta mál í heimi? Hvað á það að þýða að á um það bil hálfu kílómetra svæði séu þrír soraklúbbar í miðbæ Reykjavíkur?

Mér finnst þetta bara hvorki fyndið né eðlilegt. Það þarf enginn að segja mér að þarna vinni hamingjusamar konur sem hafi ákveðið að leiðast á út á þessa braut af því að draumastarf þeirra hafi verið að dansa berar fyrir framan graða karla.

Af hverju erum við að þykjast vera siðmenntað fólk. Leyfum bara allt sem fólki dettur í hug og sjáum hvað gerist. Vændi, vopn, eiturlyf, misnotkun, engar hraðatakmarkanir. Þetta hlýtur hvort eð er að reddast allt saman.

mánudagur, júní 25, 2007

Þá er að koma sér í vinnugírinn. Það eru engin takmörk fyrir því hversu löt ég get orðið. Frekar sit ég og spila tilgangslausa tölvuleiki þangað til ég er komin með náladofa í lappirnar og vöðvabólgu í axlirnar.

Áðan var ég á heimasíðu doktor Gunna. Hann var eitthvað að minnast á að rita endurminningar sínar. Mér fannst það nú ágætis hugmynd. Þegar ég hugsa um eigin endurminningar er ég hreinlega ekki með það á tæru hvað sé minning og hvað sé uppspuni. Ég var greinilega lyginn krakki.

Samkvæmt BMI staðlinum er ég ofalinn grís. Spurning hvað ég nenni að gera í því. Mér líður ágætlega og hef ekki lent í því að fólk sé að benda á mig úti á götu. Kannski eru allir svona kurteisir.

ég nenni ekki að vinna. yarghhhh.

sunnudagur, júní 24, 2007

njöhh. já hvert var ég komin. Við ákváðum nú samt að fara til London þrátt fyrir að við værum ekki að fara að spila á tónleikum. Svo bauðst okkur að fara á Glastonbury hátíðina og við slógum til. Þar óð ég drullu í kínaskónum mínum. Svo var ég að vakna núna eftir 15 klst og 45 mínútna svefn. Mig dreymdi að ég væri að öskra á melludólg.
Jæjahh. Þá er ruglaðasta helgi ársins senn á enda. Á fimmtudaginn fór ég upp á Leifsstöð klukkan fimm um morguninn. Við áttum að fljúga klukkan tíu mínútur í átta en flugvélin bilaði og biðum við því til 15:30. Í milli tíðinni fórum við í Bláa Lónið sem er orðið grænt. Starfsfólkið laug og sagði eitthvað blaður um þörunga og að lónið væri eins tært og það gæti orðið. Þörungarnir væru þarna út af sólinni. Svo undarlega vill til að lónið sem er fyrir framan húsið er ennþá tannkremsblátt. Þar skín sólin alveg jafn skært. Ég held bara að vatnið sé sýkt út af of miklum straumi fólks. Kannski lónið hafi líka orðið grænt af viðbjóði þegar það frétti að það kostar 1800 krónur ofan í.

Þegar við komum upp úr lóninu græna fórum við í skemmtiferð til Keflavíkur og aftur upp á flugvöll. Þar komumst við að því að tónleikunum okkar hafði verið aflýst .... ég kem aftur síðar.

mánudagur, júní 18, 2007

Áðan sat ég öll útötuð í sósu. Héðan í frá er víst best að ég borði pítur í einrúmi. Í gær var ég ekki í einrúmi eina einustu sekúndu. Þetta var einstaklega fínn þjóðhátíðardagur. Það eina sem var skrítið var að þegar klukkan var hálftólf helltist yfir mig löngun að eyða pening í drasl. Bara eitthvað drasl. Ég hafði komist í gegnum allan daginn án þess að kaupa mér gasblöðru, tveggja kílóa sleikjó, sleikjósnuð, candy floss, popp, fuglaflautu eða límmiða á kinnina. Þegar miðnætti nálgaðist arkaði ég sem óð manneskja og keypti eitthvað hauskúpudrasl fullt af pipardufti. Hvarf þá löngunin eins og dögg fyrir sólu.

Dagurinn hófst á því að ég og sambýlisfólk mitt héldum niður í bæ. Þar kíktum við á sólina í gegnum stjörnukíki, fórum í sólbað í Alþingisgarðinum, sáum undarlegt víkinga skemmtiatriði... ég vona að forfeður okkar hafi ekki verið svona miklir lúðar, töldum munaðarlausar gasblöðrur á himninum og virtum fyrir okkur samlanda okkar. Svo fóru ég og aríaprinsinn, hárgreiðslumaðurinn og flugmaðurinn á hljómsveitaræfingu.

Þegar æfingunni lauk fórum við og horfðum á handbolta. Ég er nýbyrjuð að horfa aftur á handboltaleiki. Áður fyrr fékk ég alltaf bullusóttina og ærðist ef landsliðið tapaði. Uppáhaldsleikmaðurinn minn er hann Óli en aðallega af því að hann fer á Sirkus og drekkur sig fullan.

sunnudagur, júní 17, 2007

Magnað að vakna alltaf einu sinni á ári með sama kjánalega lagstúfinn á heilanum. Já ég er að sjálfsögðu að tala um Hæ hó og jibbíjei og jibbíjeij það er kominn sautjándi júní. Hver ætli hafi samið þetta?
Áðan var ég að lesa blogg systur minnar www.hryssa.blogspot.com sem ég á ennþá eftir að setja í linkakerfið mitt sem ég er ekki búin að virkja. Á blogginu hennar má lesa afar fallega bæn. Það er mjög góð tilfinning að fjögurra ára barn í Mexíkó, biðji fyrir manni á kvöldin. Ég varð allaveganna meyrari en ungnautakjöt þegar ég las það.

Helgin fór að miklu leiti í skrall og skemmtanir. Við spiluðum tvisvar á föstudagskvöldið og einu sinni í gærkvöldi. Við erum búin að eignast aðdáendur sem eru miðaldra hjón frá Ameríku. Þau komu á alla tónleikana og í gærkvöldi stóð maðurinn í bleikri skyrtu og tók myndir af okkur. Ég hef aldrei átt mann í bleikri skyrtu og mér finnst það bara næs. Sjálf myndi ég ekki ganga um í bleikri skyrtu. En já þetta voru semsagt indælishjón.

Í dag er þjóðhátíðardagur þjóðar minnar og ég nenni eiginlega ekki niður í bæ. Sautjándi júní er dáldið eins og endurtekið efni.

mánudagur, júní 11, 2007

Sunnudagur þessi hefur verið mér einstaklega drjúgur. Hann hófst vitaskuld á því að ég drattaðist á fætur. Nokkru síðar tók ég til við að heiðra danska forfeður mína og sat í góðu yfirlæti með Hulla og Hlabbadibbi á Jómfrúnni. Ég pantaði mér einhvern djöfulann sem ég át svo eins og hraðvirka matvinnsluvélin sem ég er. Jómfrúin fær kannski svona tvær kámugar stjörnur en bara af því að ég var ekki nógu vel stemmd fyrir súrkál og majónes.
Þegar heim var komið fékk ég skyndilega þá hugmynd að slá garðinn. Ég vissi greinilega ekkert hvað ég var að fara út í þar sem þessi landræma leyndi verulega á sér. Reynsla mín af Unglingavinnunni kom samt að góðum notum þar sem ég er ein af þeim fáu íslensku einstaklingum sem átti skilið á fá laun fyrir vinnu mína. En já aftur að garðinum. Nokkrum stundum síðar rankaði ég við mér þar sem ég stóð drullug í beði að lofa blómum upp í ermina á mér við nágrannann. Hann er gamall og hrýtur mjög hátt og einkennilega. Hulli getur gert eftirhermu af þessum hvalahljóðum og það hefur iðulega kætt mig.

Sá gamli lýsti því yfir að ég hefði átt: ,, grimmilega góða frammistöðu" í garðvinnu minni. Ég át hrósið upp til agna. Ætli ég hafi ekki ofmetnast á þeim tímapunkti, misst minnið og byrjað að tala um yfirvofandi aldingarð.

Um sjöleytið átti ég stefnumót við foreldra mína. Alveg finnst mér ótrúlegt að þetta fólk sé alræmdir samkvæmisdansarar þar sem þau virðast á stundum taktlaus með öllu. Þetta hófst allt á því að faðir minn leit á mig þar sem ég stóð í nýjum sumarkjól. ,, Ertu ólétt?" glumdi í pabba. Ég brást ókvæða við og tilkynnti honum að hann væri dóni og að svona tali maður ekki við konur. Hann baðst afsökunar samstundis. Af gefinni reynslu er hann farinn að biðjast afsökunar þegar ég tek upp á því að móðgast við hann. Einu sinni fór ég nefnilega í rækilega fýlu og píndi þannig út úr honum afsökunarbeiðni. Ég játa að það er ömurleg aðferð sérstaklega þar sem fýlan var af tegundinni silent treatment. Ætli það sé hægt að fara á stofu og fá silent treatment. Þar sem vandamál og líkamlegir kvillar eru þöguð í hel.

Já en nú að taktleysi móður. Við duttum inn í bíómynd eftir matinn. Móðir var dugleg við að spyrja út í hitt og þetta varðandi atburðarásina í myndinni og ég svaraði samviskusamlega nema þegar hún spurði út í hluti sem áttu eftir að gerast þar sem að ég er bara eðlilegur áhorfandi en ekki skyggn.
Eitthvað undarlegt klukkuverk hefur farið í gang í höfðinu á mömmu þar sem þegar um það bil fjórar mínútur eru eftir af myndinni heyrist: ,, Ég hef séð þessa mynd, hann fer ekki inn og hittir konuna sem hann hefur ekki talað við öll þessi ár." Þar með varð lokasena myndarinnar að engu. Ég leit á múttu og hef líklega verið með raðmorðingjaglampa í augunum því mamma greyið fór að draga í land en varð á endanum að gefast upp því auðvitað rættist það sem hún hafði sagt. Svo fékk ég hláturskast og mamma líka. Ég sá svo innilega fyrir mér mekanismann í höfðinu á mömmu þar sem ryðguð tannhjól snérust hægt í tvo klukkutíma og kveiktu loks á fimmtán vatta peru.

Síðan fór ég að velta því fyrir mér hvort þetta væri arfgengur sjúkdómur. Sérstaklega í ljósi reynslu minnar af Maju systur. Atvik sem gengur undir nafninu ,, The Sixth Sense atvikið" rennur mér seint úr minni.

laugardagur, júní 09, 2007

Happidíhúpp. Í dag sat ég á gildum rassi og seldi skran á markaði. Það var stuð og er seðlaveski mitt fullt af já já seðlum. Græðgisglampinn í augum mér glitraði í sólskininu þar til fór að rigna. Ég gæti orðið ágætis skransali. Mér líður vel þegar ég er umkringd klinki og drasli. Jebbs..ahh..

Ég skaust rétt svo í galleríið um þrjúleytið og skilaði af mér hrossi og apa. Loksins, Ég var búin að trassa það aðeins of lengi. Rakspíraða eiturnaðran var með eitthvað budl. Ég tók mig til og talaði eins og óskipulögð en vingjarnleg listakona. Svo sagði ég bara bæ og valsaði út og snýtti Kölnarvatnsatómum úr nösunum. Já bæ.

fimmtudagur, júní 07, 2007

Jemms og hó. Núna er ég að reyna að vera dugleg að blogga því systir mín er lengst í burtu í suðurhöfum. Hún skammar mig ef ég er löt. Svo er ég líka að reyna að komast í einhvers konar skrifgír. Í dag er ég bara búin að vaska upp og hella upp á kaffi og lesa fréttablaðið. Þarna var ég næstum búin að skrifa ,, lessa fréttablaðið." Ég veit ekki hvernig maður færi að því ó nei. Mögulega er einhver í þessum töluðu orðum einmitt að lessa eitthvert dagblað. Maður veit aldrei með fólk.

Annars finnst mér leiðinlegt að lesa blöðin því það er alltaf einhver dómsdagstónn og hann vil ég ekki heyra svona í byrjun dags. Mig langar frekar að hlusta á Don´t worry be happy eða Baby don´t worry about a thing, ´cause every little thing´s gonna be allright. Þá gengur maður út í daginn mun jákvæðari. Eina ástæðan fyrir því að ég greip þetta blað í morgun var sú að mér finnst dónalegt að taka bækurnar hans Hulla með mér á klósettið. Það minnir mig á þegar George í Seinfeld fór að skíta með bókina úr bókabúðinni og þurfti að kaupa hana því bókabúðin var með eftirlitskerfi til að fylgjast með þessu.

Í gærkvöldi slökkti ég á sjónvarpinu þegar einhver náungi byrjaði að lesa upp úr viðtali við þriggja ára barn sem hafði verið misnotað af djöfuls ógeði. Af hverju er ekki bara hægt að dæma svona fólk og birta myndir af því svo það geti drullast til að skammast sín. Stundum væri ég alveg til í að Dexter byggi í nágrenninu svo hann gæti dílað við níðingana sem sleppa í gegnum kerfið. Já já nú er hann pápi minn líklega farinn að hugsa: ,, Alltaf við sama heygarðshornið, fasistinn dóttir mín." Ég sé bara ekki tilganginn í að vera liðlegur við fólk sem stundar það að rústa sálarlífi barna.

En humm og já. Í fjóra daga hefi ég ekki gert neitt sjálfri mér að gagni. Tilgangsleysi mitt er samt ekki farið að há mér alvarlega. Í þessa fjóru daga hefi ég stuðst við afsökunina: ,, Ég var í bólusetningu og maður getur fengið hita."

Aðdáandabréfinu sem ég sendi í gær var svarað samdægurs. Indælis piltur þessi Cooper náungi.

ahhhh núna verð ég að gera eitthvað gagnlegt. Þetta er hálfvitaleg leti.

miðvikudagur, júní 06, 2007

Í dag byrjaði ég á því að labba inn í eldhús, líta í kringum mig og æla lopavettlingi á tærnar á mér.
Svo vaskaði ég upp. Núna er mannhæðarhátt fjall af hreinu leirtaui inni í eldhúsi. Ég mun ekki raða því inn í skáp fyrr en að minnsta kosti einn meðlimur húshaldsins er búinn að berja þetta augum og mögulega fá samviskubit eða veita mér orðu.

Í gær tók ég mig til og skrifaði lista yfir allt það sem ég á eftir að gera, allan pening sem ég á í útistandandi skuldum, allar mínar skuldir og hluti sem ég gæti gert ef ég drullaði mér til þess að vera dugleg. Mér leið aðeins betur eftir listann. Þegar langur tími líður milli lista, á ég það til að mikla hlutina fyrir mér. Upplýsingarnar reyna að halda dauðahaldi í höfuðkúpu og heilabörk og þvælast fyrir hvor annarri. Til að minna á sig æpa þeir hver í kapp við aðra til að keppast um athygli. Þess vegna já virðast vandamálin stærri en þau eru í raun og veru. Já segjum það.

Aríaprinsinn og ég tókum okkur til í gærkveldi og töltum upp í stúdíó. Þar spiluðum við pool og bjuggum til helvíti fínt lag sem heitir Forsetinn eða The President þar sem það er auðveldara að jarma einhverja vitleysu á ensku heldur en að semja stuðlaða snilld á hinu ástkæra ylhýra. Þar sem við erum hvorki í ástarsorg né sjálfsmorðsmiðuð fjalla textarnir yfirleitt um eitthvað allt annað. Vídeótæki, hljómborð, simpansa, karabíska hafið og svo framvegis.

Áðan skrifaði ég fyrsta aðdáendabréfið mitt. Ég var að blaða í gegnum ótrúlega fallega bók sem heitir Overbite og hreinlega varð að þakka fyrir mig.

Ef þið vitið ekki hver Dave Cooper er nú þegar þá mæli ég með teiknimyndasögunum hans og málverkabókunum.

þriðjudagur, júní 05, 2007

Ég er komin einu hænuskrefi nær skólanum í hinum guðvsvoluðu Bandaríkjum. Þá er bara að kvíða flugvallaferðinni.

Alveg finnst mér óskiljanlegt hvers vegna maður er grunaður um græsku um leið og maður stígur fæti inn á flugvöll. Hin svokallaða öryggisleit er bara brandari. Það að mega ekki vera með krem í handfarangri er byggt á misskilningi. Fróður maður tjáði mér að ástæðan fyrir því, að maður megi ekki vera með meira en 250 ml af vökva á sér, er sú að þá geti fólk ekki dundað sér við að búa til vökvasprengjur á leiðinni. Einnig tjáði hann mér að vökvasprengjugerð væri ómöguleg við þessar aðstæður því heimatilbúnar sprengjur af þessu tagi myndu sprynga í höndunum á manni áður en þær yrðu nógu öflugar til þess að valda almennilegum skaða. Svo þyrfti að þjappa vökvanum og eitthvað bla dí bla sem er eitthvað flókið og bla bla bla.

Líkurnar á því að lenda í vél sem er þéttsetin hryðjuverkamönnum eða flugræningjum eru mjög litlar. Ef ég mætti velja þá myndi ég frekar vilja fá góða þjónustu þar sem fólk er kurteist, maður er ekki grunaður um græsku og fær að halda tannkreminu sínu og taka bara sénsinn á því að vélinni verði rænt. Þá verður henni bara rænt. Mér líður ekkert öruggri með það að geta lent í tollvörðunum, flugvallalögreglunni eða einhverju þaðan af verra, í hvert einasta skipti sem ég fer t.d. til DANMERKUR. Mér finnst þetta fábjánalegt. Fólk sem ætlar að fremja glæpi fremur þá bara. Það finnur bara upp einhverja sniðugri aðferð næst. Bandaríkjamenn eru hvort eð er búnir að myrða alla sem eru ekki að deyja úr hungri eða AIDS í Afríku eða þá sem eru uppteknir við að drepa nágrannaþjóð sína eða verða drepnir af nágranna sínum.

Stundum finnst mér svo skrítið að það sé ennþá fólksfjölgunarvandamál í heiminum. Miðað við fréttir af dauðsföllum, styrjöldum, fuglaflensum, offitu, reykingum og náttúruhamförum ætti nú að vera tómlegt um að litast.

Ef skattpeningar mínir færu frekar í að hjálpa bágstöddum í stað þess að fá enn aðra óskiljanlega umferðarslaufu þá væri ég sátt.
Hmmm.. ég held að ég hafi fengið vitlausa sprautu hjá lækninum í gær. Hún hlýtur að hafa látið mig fá reiðisprautuna.

mánudagur, júní 04, 2007

Góðan dag. Á eftir fer ég í bólusetningu. Þangað til ætla ég að sitja í plaststól og bíða þangað til Guð kemur og færir mér dömubindi eða breytir mér í karlmann. Í dag verð ég bólusett fyrir heilahimnubólgu, mislingum og mænusótt. Þetta verð ég að gera fyrir skólann þrátt fyrir að vera ekki par hrifin af nálum, stungum eða það sem verra er, hálfdauðum sjúkdómum í æðum mínum. Einu sinni átti ég kennara sem var á móti bólusetningum. Það má víst en ég veit ekki hvernig maður fær vottorð upp á það.

Á laugardaginn fór ég í danska rússíbanan Demon eða Deamoun. Það var erfitt að lesa flippuðu leturgerðina. Röðin í banann var hálftími, ferðin var hálfrar mínútu öskurreið. Ég náði að fá um það bil fimmtán kvíðaköst í röðinni. Ég fattaði ekki að ég væri svona mikil skræfa fyrr en ég heyrði mig tuða í fimmtánda skiptið: ,, Ég er ekki bakveik, hjartveik eða ólétt, ég er yfir 132 cm, þetta verður allt í lagi. Heldurðu að það verði ekki gaman? Ætti ég að fara úr skónum? Það er fullt af unglingum og tíu ára krökkum hérna og þessi þarna er miðaldra" Svo æpti ég í hálfa mínútu og kom út glottandi og sigurreif.

Í miðborg Kaupmannahafnar voru 30.000 svíar. Þeir voru allir í bláum og gulum fötum og sungu lagið wouh oh oh oh ooooooh. Um kvöldið kepptu Danir og svíar í hérna... fótbolta held ég. Óeirðalöggan var að sjálfsögðu mætt á staðinn. Ég held að þeir séu bara svona hressir og hrifnir af mannfagnaði.

Mér er að blæða út hérna. Svo mun ég á eftir telja mér trú um að ég sé komin með áður upptalda sjúkdóma. Ég ætti kannski að googla einkenni mislinga, heilahimnubólgu og mænusóttar svo ég viti hvernig mér, helsjúkri manneskjunni á að líða á eftir.
Núna ætla ég að standa upp, taka hatt minn og staf og reyna að gera eitthvað úr þessum degi. Fjandinn hafi það.