sunnudagur, mars 30, 2008

eh.

já sko allt í einu fór ég að velta því fyrir mér hvort að það væri ekki ólöglegt að segja að einhverjum verði hlátur um hug. Ég held að ég hafi verið að rugla saman fjötur um fót og og hlátur í hug.

Mér kom ekki hlátur í hug.

Af hverju vefst þetta blessaða móðurmál mitt ennþá fyrir mér. Eftir að einhver smámunasamur málfasistadreddi minntist á það, á Rás eitt, að þjóð vor væri alltaf að rugla saman af og að þá varð mér allri lokið. Ekki var á það bætandi. Mér finnst mjög erfitt að muna hvenær maður á að segja að eða af. Að mér er annars gott af frétta.

En þetta af og að havarí hefur orðið til þess að ég gef mér aldrei tilefni.

Tekið til á internetinu


Nú veit ég hvað var að. Ég var komin með leið á útlitinu á blogginu mínu. Hér er gömul teikning af bræðrum sem eru eitthvað að vesenast.

Aríaprinsinn er búinn að ganga hér um gólf og spangóla af eirðarleysi. Ungfrú Margrét Eyrð(ég) skilur ómögulega hvers vegna honum leiðist. Á endanum sendi ég hann bara út úr húsi til að hitta kunningja. Ég nenni ekki að færa mig spönn frá rassi þar sem ég eyddi deginum í að þramma á the Armory Show sem er dáldið eins og heimilisiðnaðarsýning í Laugardalshöllinni nema bara með ríkara fólki og fleiri svörtum rúllukragabolum. Hananú, varð mér að orði þegar ég gekk inn ásamt frænku minni og eiginmanni hennar eða öllu heldur listfræðingnum og hjartaskurðlækninum. Þau eru einstaklega indæl og skemmtileg og líta út fyrir að vera 15 árum yngri en þau eru í raun og veru og ég veit ekki af hverju ég læt þær upplýsingar fljóta með. Kannski af því að ég var að horfa á þau í dag og dást að húðinni þeirra eða öllu heldur húðunum þeirra.

í gærkvöldi fórum við á Caribou eða Caribo eða... æi hljómsveit. Það var gubbað fjör. Hljómsveitin var samt með kjánalegustu visjúala sem ég hefi á glápt. Þeir voru svo andlausir og beisik að þeir voru næstum því snilld, en bara næstum því. Ég var farin að heyra í hausnum á mér, litlu lagbútana sem heyrast þegar að unglingarnir í That 70´s Show eru að glenna sig ofan á síkadelísku bakgrunnana í litlu milliköflunum í þáttunum. Þetta var í fyrsta sinn sem ég upplifði mig sem visuala fasista.

Á undan Caribou (ég gúgglaði það bara motherlicker) sáum við Fuckbuttons og litlu bifhárin í eyrunum á mér visnuðu. Þetta var aðeins of mikið træbal diskó, nei veistu, ég er bara að vera neikvæð, þetta var fínt.

úhh, í dag sá ég hund vinafólks okkar hömpa bak á barni. Það hefði getað verið fyndið en var meira svona eins og sena úr Gummo þ.e.a.s. of undarlegt til þess að manni verði hlátur um hug. Ég skammaði graða hvuttann og ýtti honum með löppinni og hann glefsaði út í loftið. Meiri vitleysingurinn.

Það er samt svo dularfullt að alltaf þegar ég sé eitthvað disturbing þá er ég alltaf svo lengi að ákveða hvað mér finnst um það. Kannski er ég með of þykkan heilabörk. Til dæmis, þegar ég var að fatta hvað hundurinn var að bauka þá heyrðist í heilanum á mér(í slow motion) ,, Er ekki eitthvað athugavert við þetta?" svo komu önnur skilaboð löngu síðar: ,, Júúúú, ég held það" þriðju skilaboðin fylgdu ekki fast á eftir: ,, Ætti ég ekki að gera eitthvað í þessu?". Fjórðu komu ekki um hæl: ,, Júú, en hvað?"

Áratug síðar tók einhver taugafruma við sér og æpti: ,, Látum hana ýta hundinumm í burtu með löppinni!", sem ég og gerði.

Það mætti stundum halda að ég væri heilasködduð eða dagreykingamanneskja. Ég mæli eindregið með því að fólk lendi ekki í slysi fyrir framan mig. Ykkur gæti auðveldlega blætt út fyrir framan mig á meðan ég væri að maula með mér: ,, Skrýtinn þessi vökvi sem lekur úr höfðinu á honum."

Já annars, farið á Santa María á Laugavegi. Ef þið verið fyrir vonbrigðum þá skal ég hundur heita og éta hattinn minn og fara fjandans til.

Ég veit ekki með þig en ég ætla að leggjast upp í sófa og horfa á eitthvað og borða frostpinna í leiðinni. Við eigum kassa af frostpinnum í ísskápnum. Lím, þrúgu, stráberja og órans. Oftast sitjum við uppi með þá óranslituðu eftir að hafa sleikt alla hina litina upp til agna. Hvern langar í eitthvað með appelsínubragði, ég bara spyr? Ef þetta eru ekki appelsínur eða appelsínusafi þá ætla ég ekki að japla á því. Sérstaklega þykir mér svívirðilegt þegar fólk reynir að blanda saman appelsínum og súkkulaði. Þegar ég var barn þá fór ég næstum því að gráta þegar ég sá pakka af Jaffakökum. Þær eru áreiðanlega innfluttar frá bakaríinu í helvíti. Bakaðar af fólki sem sveik undan skatti. úbbbb sem minnir mig á það, ég er ekki búin með skattaskýrsluna mína..... góði guð, ég skal hætta að vera reið yfir því að hafa ekki fengið páskaegg ef þú sendir mér endurskoðanda sem vill gera skattaskýrsluna mína ókeypis eða í skiptum fyrir teikningu af...ööö Tollstjórahúsinu í Tryggvagötu.

En já, er ekki bara dáldið fínt um að litast á blogginu mínu?

laugardagur, mars 22, 2008

þriðjudagur, mars 18, 2008

trallilæ

óhóhó, þá erum við eiginlega bara komin heim frá Texas, ef heim skyldi kalla. Það væri nú aðeins of gróft að kalla Bandaríkin heimili eftir nokkurra mánaða dvöl.

Manfriendið mitt er að hamast við að pústa ýldulykt úr botninum á sér. Því sit ég hér í fýlu án þess að vera í vondu skapi.

Þegar við lentum í Texas þá; heyrðum við kántrítónlist, vorum afgreidd af konu sem hét Barbie. Ég stillti mig um að flissa enda rígfullorðin orðin.

Strákarnir í Reykjavík! gistu hjá Swingerum en við eymingjarnir hundskuðumst á hótel. Swingerarnir voru ljótir. Þetta voru hjón á miðjum aldri og kærastan þeirra. Maðurinn var hálfgerður Lebowsky, eiginkonan eins og lukkutröll og kærastan var með starandi augu eins og hún ætti við skjaldkirtilsvandamál að stríða.

Að sjálfsögðu stillti ég mig einnig um að flissa þegar við mættum þessu gengi frjálsra ásta. Við áttum sko upphaflega að gista hjá vinkonu þeirra en sölumaðurinn var svo lasinn að ég og aríprinsinn(eða Jarlinn af Fret eins og ég kalla hann núna) ákváðum að vera ekkert að raska ró hans.

Heyrðu augnablik, leyfðu mér að útskýra. Við vorum í Texas af því að okkur bauðst að glamra og tralla á tónlistarhátíðinni South by Southwest.

Annars var ég að hugsa um eitt sem mér þykir ansi fyndið. Þegar íslenskir fjölmiðlar fjalla um íslenskar hljómsveitir sem hætta sér út fyrir landið til að spila á tónleikum fyrir nokkrar erlendar hræður þá er fréttin alltaf svona: ,,_ _ _ _ gera það gott í Noregi." Svo er allt látið hljóma glamúrus og eins og allir séu að meikaða á nóinu. Úbbb, hvaðan koma allar þessar slettur. Ég sem er vel upp alin.

fimmtudagur, mars 06, 2008

....

Jæji jæjason. Þá er ég búin að sitja enn einn daginn við skrifborðið mitt og teikna. Bakið mitt gefur frá sér undarleg hljóð þegar ég rétti úr mér. Á laugardaginn erum við að fara að spila á tónleikum.

Hmmm.. var það nokkuð fleira? Bjehh, getur varla hafa verið merkilegt.

Járni er steinsofandi, það er hægara sagt en gert að hrinda honum á lappir.

laugardagur, mars 01, 2008

Lóa gamla

Ég var að koma úr teboði. Mjög indælt. Við sátum og drukkum te og spiluðum Scrabble. Ég vildi óska þess að ég væri ellilífeyrisþegi. Það hljómar ekkert smá næs. Dagurinn minn myndi vera einhvern veginn svona:

Vakna klukkan 7
Drekka kaffi eða te og lesa blöðin í svona klukkutíma
Rölta í sund
Hanga í sundi í svona 4 tíma
Fara heim og fá mér hádegismat
Baka
Bjóða einhverjum í kaffi
Spila, slúðra og spjalla í nokkra tíma
Fara á veitingahús
Fara heim og lesa
Glápa á sjónvarpið
Sofa

Repeat.

slepptessö barah.

Áðan sá ég rauðhærðan mann hlæja í sjónvarpinu, svo hrein hann eða reit óvart. Alltaf finnst mér jafn gaman þegar fólk fer að hrína upp úr þurru eða rýtir óvart. Nú ætla ég að giska, aðallega vegna þess að ég nenni ekki að fletta því upp, að þegar einhver segir ,, hrína" þá sé sá hinn sami að tala um svínavælið sem svín gefa frá sér en þegar þeir segja ,,rýta" þá séu þeir að tala um hitt svínahljóðið.. hmmm... hvað er gott orð yfir það, kannski rymja....já segjum bara að þegar svín rýta þá eru þau í raun og veru að rymja. Æi nú er ég ekki lengur viss.
Yfirleitt þegar ég hef hitt svín þá rýta þau og hrína bæði í einu.
Eins og sjá má á textanum hér á undan þá eru sumir greinilega komnir langt fram yfir háttatímann sinn.

Vðöööhh, þvílíkt antíklímax. Sko, nú þarf ég að útskýra ákveðna atburðarás. Ég er búin að vera að flissa yfir hinu og þessu í kvöld þökk sé manninum sem hrein eða reit. Það hláturskast gerði mig viðkvæma gagnvart öðrum fyndnum atburðum. Ég er ekki alveg viss hvort ég sé búin að vera sérlega heimsk í kvöld eða þá að athyglisgáfa mín sé og hafi verið með besta móti og láti ekki eina einustu grín-ögn framhjá sér fara. Nú nema hvað, maðurinn sem gaf frá sér þetta tiltekna svínahljóð olli því að ég fékk skyndilegan áhuga á því hvort hljóðið væri hrín og hvort væri rýt. Ooog til að gera langa sögu stutta þá gúglaði ég ,, að hrína" og rakst á þetta:

"Aldrei má hleypa straumi á rafskaut um leið og þau eru sett á dýrið. Það er mjög mikilvægt að staðsetja rafskautin vel á dýrinu áður en straumi er hleypt á. Annað er ill meðferð á dýri og hætta á blæðingum í kjöti eykst verulega. Svín eiga helst ekki að hrína þegar þau fá raflost, ef það gerist oft er ástæða til að yfirfara útbúnað og handtök starfsfólks. Þegar rétt er staðið að deyfingu með raflosti þá finnur dýrið ekki til. Ef straumur er ónógur eða ef straumur fer ekki í gegnum heilann þá finnur dýrið mikinn sársauka við raflostið."

Samkvæmt heimasíðunni landbunadur.is, um meðferð sláturdýra.

Stundum gleymi ég því hvað ég er í geðveikri afneitun gagnvart því hvernig kjöt og dýr tengjast. Mér tekst í alvörunni að telja mér trú um að kjötbollur séu bara bollur sem amma mín týnir af trjánum í garðinum hjá sér.

Já Hemmi minn, Ignorance is bliss. Þarna tókst mér að kvóta í Ladda og Matrix í sömu setningunni. Virkilega gott hjá mér. ,,Svonehh, réttið mér medallíjonn og hefið hena úr guddleh."

Fyrst svín eru hér til umræðu, eða já, ekki beinlínis umræðu þar sem ég er bara að tala og enginn annar, þá langar mig að minnast á mjög skemmtilegt svín sem ég sá í sjónvarpinu um daginn. Blessað svínið hét Elvis og var, einhverra hluta vegna, þáttakandi í hryllingsraunveruleikaþáttaröðinni "Make me a Supermodel!". Einhverju gáfnaljósi hafði dottið í hug að láta tilvonandi fyrirsæturnar þramma sýningarpallinn með dýr sér við hlið. Karlmódel nokkuð dróg Elvis litla úr dýrahrúgunni og hélt að það hefði aldeilis dottið í lukkupottinn.
Ef ekki hefði verið fyrir svínið þá hefði ég aldrei komist að því hvað vitleysingarnir í "Gjörið mig að ofurfyrirsætu!" væru að bralla. Málið er nú einfaldlega það að ég er búin að vera lasin þessa vikuna og lagðist því í mikið sjónvarpsgláp. Ég hafði hvorki orku né áhuga á að horfa á neitt sérstakt og var því að flakka um öldur ljósvakans af miklum móð. Þegar Elvis litli birtist á skjánum æpti ég upp yfir mig, hrein eða reit og neyddist til þess að horfa á bút úr þættinum. Elvis þessi var óþekktargrís og neitaði að ganga pallinn. Svo dillaði hann bara rófunni þessi elska. Ég verð að eignast grís. En bara svona puntsvín sem er búið að erfðabreyta á viðbjóðslegan hátt og breyta í eilífðarbarn. Dvergsvín, mig langar í dvergsvín.

Það er ekki heil brú í þessu helvíti.

fimmtudagur, febrúar 28, 2008

Romm

Í morgun rakst ég á nágranna minn og hann reyndi að halda uppi samræðum við mig. Hann veit ekki að ég get varla tjáð mig á eigin móðurmáli á morgnana hvað þá ensku. Ég sagði bara Yes dáldið oft og brosti.

Eftir tvær vikur erum við að fara til Texas að spila. Ég hlakka gubbað mikið til. Skólinn er farinn að þvælast fyrir mér. Mig langar bara að ferðast og spila og búa til boli. Það er miklu meira stuð en að hlusta á Ameríkana tala um frama og peninga. Sveiolló.

Núna er ég að drekka kaffi úr bollanum sem Tanya vinkona mín stal á kaffihúsi. Ég þekki óvenjulega mikið af fingralöngu fólki. Flestir sem eru með mér í skólanum víla ekki fyrir sér að nappa myndlistarvörum og heima á ég vini sem myndu aldrei borga fyrir neitt sem kemst fyrir í vasanum þeirra. Mjög spes. Ég gæti ekki stolið þó Tony Soprano sjálfur myndi hóta mér og svo borga mér fyrir. Bæði finnst mér eitthvað skrítið við það að taka hluti sem ég á ekki og svo finnst mér líka hræðilegt tilhugsun að vera gómuð með eitthvað aulalegt eins og pensil eða Snickers. Auk þess myndi ég ekki vilja að fólk stæli frá mér. Stæli stælunum stælish. Á laugardaginn eru systir mín og mágur að fara að opna bístró. Mig langar að fara. En í staðinn ætla ég að hjálpa þeim þegar ég kem heim í sumar. Það er að segja ef þau vilja. Lúbbílæ.

Í gær kláraði ég fleiri myndir fyrir Námsgagnastofnun. Núna þarf ég bara að drulla mér að senda þær. Myndirnar eru nú dáldið fínar þó ég segi sjálf frá.

miðvikudagur, febrúar 27, 2008

Einstaklega djúpar pælingar... Mjööög djúpar

Æ oftar kemur það fyrir að mig langi til þess að hringja í móður mína og biðja hana afsökunar. Svo skemmtilega vill nefnilega til að nú er fólk farið að ásaka mig um nákvæmlega sömu hluti og ég sakaði móður mína um forðum daga.

,, Hvað var ég að segja?, nei þú veist það ekki af því að þú varst ekki að hlusta!!", ,,Þetta er ekki fyndið!", ,, Mikið geturðu verið andstyggileg".

Núna sé ég hlutina með augum móður minnar og hef komist að því að ég var viðkvæmt, þreytandi og athyglisfrekt barn. Ég veit reyndar ekki hvort móðir mín hefði valið þessi orð, allaveganna myndi hún ekki viðurkenna það.

Ég er ekki haldin þeim ranghugmyndum að ég yrði betri í því að ala upp barn heldur en foreldrar mínir. Þvert á móti er ég sannfærð um að ég myndi gera öll sömu mistökin. Það eina sem gerir þessa staðreynd bærilega er að ég er alveg ágætis náungi.

mánudagur, febrúar 25, 2008

komin heim

Í gær lentum við á JFK eftir fjórtán ef ekki fimmtán tíma ferðalag frá Noregi. Þar sem við hjónin erum ekki loðin um lófana ákváðum við að finna ódýra miða til og frá Osló. Ég held að við höfum verið aðeins of ökónómísk í miðakaupum. Það ætti ekki að taka mikið meira en sex klukkutíma að fljúga til Noregs en við millilentum í Belgíu á leiðinni út og svo í forgarði vítis, eða Heathrow á leiðinni heim og þurftum að dúsa þar í fimm tíma. Sjaldan hef ég verið á jafn viðbjóðslegum stað og Deathrow. Mér leið eins og ég væri föst í Kringlunni og gæti ekki farið fyrr en einhver myndi sækja mig.

Á leiðinni frá Englandi þá sátum við í fimmmannasætaröð og hjónin við hliðina á mér lyktuðu af plasti, sváfu alla leiðina og þegar við vorum að bíða eftir því að fá að lenda byrjuðu þau að borða negul. Reyndar var ég sátt við negulinn því alltaf þegar annað þeirra byrjaði að tala þá gaus upp svo mikil andfýla að mér varð óglatt.

En í morgun vaknaði ég sumsé með þungan haus af kommum. Augun í mér fljóta um og ég ætla að fara að fá mér te.

miðvikudagur, febrúar 13, 2008

Snjóah.

Hér snjóar og snjóar. Flestir í skólanum kepptust við að tuða út af veðrinu en mér þótti gaman að sjá borgina í vetrarham. Veturinn hefur verið mildur hingað til. Nú verður áhugavert að sjá hvernig Bandaríkjamenn hegða sér í snjó. Ég hef ekki hugmynd um það. Kannski detta þeir oftar en fólkið heima.

Þriðjudagar eru ansi strembnir því þá er ég í skólanum frá níu til níu. Fyrst mála ég í sex klukkutíma, svo æti ég og prenta í þrjá og að lokum set ég saman víra og batterí og ljós og bý til leikföng í þrjá klukkutíma. Ef ekki væri fyrir gífurlegt skemmtanagildi ofantalinna námskeiða, þá væri ég ekki glaði kallinn sem ég er í dag.

Áðan sá ég agnarsmáan pulsuhund í rauðri úlpu kúka. Fyndið? Já, svo sannarlega. Af svipnum að dæma fannst eiganda voffans það ekkert spes.
Á fimmtudaginn erum við að fara til Portúgal. Ég missi af fyrsta deginum af NY Toy fair en get að öllum líkindum bætt mér það upp á mánudeginum. Ef ekki þá mun ég kasta upp af vonbrigðum. Helst fyrir utan húsið sem hýsir ráðstefnuna.

En já já, sjáum bara hvað setur. Nú ligg ég eins og bölvuð klessa og mun bráðum rísa upp til þess að snæða. Sæl að sinni.

föstudagur, febrúar 08, 2008

vahú

Jæja, afmælið mitt var dásamlegt þökk sé yndislegu fólki. Ég fékk skemmtileg símtöl og email og comment og ég var bara mjög hamingjusöm.

Í gær var ég að rölta heim, framhjá mér hjólaði lúði á fjallahjóli og flautaði fít fíjú á mig. Ég setti upp svip en svo fór ég að hlæja í laumi af því að ég hélt að menn hefðu hætt að flauta fít fíjú fyrir mörgum árum síðan. Í hádegishlénu mínu í gær gengu ég og Lulu skólasystir mín framhjá konu með svartan kross á enninu. Ég leit glottandi á Lulu og sagði: ,, Eitthvað er nú að." Þá sagði Lulu: "It´s Ash Wednesday lúðinn þinn."
,, Ha?" hváði ég ósköp heimóttarlega. Það sem eftir lifði dags sá ég fullt af fólki með öskukross á enninu. Þetta eru víst kaþólikkar sem fara í kirkju á Öskudegi og presturinn klínir ösku í kross á ennið á þeim. Mjög furðulegt og dramatískt á að líta. Ég útskýrði öskudag fyrir Lulu og henni fannst okkar aðferð til að halda upp á öskudag vera mun skrítnari.

Aríprinsinn er að reka á eftir mér og því verð ég að drulla mér. Ég man samt ekki af hverju við þurfum að flýta okkur. Ætli það sé kviknað í?

sunnudagur, febrúar 03, 2008

blöhh.

Einstaka sinnum tékka ég á sjónvarpsstöðvum sem eru sérstaklega ætlaðar börnum. Þar er stundum hægt að finna skemmtilega þætti en að mestu leiti eru þær eintómur hryllingur. Ég skil ekki af hverju Scooby Doo, The Jetsons, Yogi Bear og Flintstones séu ennþá á dagsskrá. Mér þótti þetta ekki einu sinni skemmtilegt þegar ég var barn.

Mjeh, ég hef í alvörunni ekkert áhugaverðara að segja í dag.

laugardagur, febrúar 02, 2008

Bráðum á ég afmæli. Það er svo sem allt í lagi. Ég hef tekið þá gáfulegu ákvörðun að hætta í tímanum með pólitísku dark konunni. Þá verð ég með 14 einingar og svo get ég fært eina einingu á milli anna. Ég var nefnilega með 17 einingar fyrir jól. LÍN leyfir víst svoleiðis tilfæringar og hananú.

Ákvörðun þessa tók ég að hluta til út af afmælinu mínu. Ég fór að hugsa um afmælisdaginn minn og mundi þá eftir að ég yrði að eyða stórum hluta af honum í tíma hjá þessum kennara. Það þótti mér prump og svo tók ég allt í einu eftir því að ég er orðin nógu gömul til þess að sleppa því að gera það sem mér finnst leiðinlegt. Fyrir utan náttúrulega að borga reikninga, gera skattaskýrslu, svara þegar á mig er yrt, ekki skella hurðum, borða með hnífapörum, vera kurteis, greiða mér, sleppa því að lemja fólk sem mér finnst leiðinlegt eða vont, taka til, þvo fötin mín og fara reglulega í krabbameinsskoðun og til tannlæknis..... nú þegar ég hugsa um það þá er ég að pæla í að leggjast á götuna og láta FedEx bíl keyra yfir höfuð mitt.

Í gær var úrhellisrigning, engu að síður ákváðum við að trítla út í búð og kaupa eitt og annað. Og þá kom steypiregn og vatnið óx og óx. Nú er ég reyndar ekki alveg viss hvort steypi sé meira en úrhelli en sumsé þá rigndi meira. Þar sem við stöndum á götuhorni, blaut inn að beini, tek ég eftir brotinni regnhlíf og loðhúfu á jörðinni. Við nánari athugun er húfan alls ekki húfa heldur stór, blaut, dáin rotta.

Ég æpti, að vísu ekki kvenlega því það hef ég aldrei getað gert, og svo fékk ég tourette og gat ekki hætt að segja: ,, Oj."

Mig hefur alltaf langað til þess að geta æpt dömulegu hryllingsmyndaópi. Öskrin mín eru meira í átt við áreynslustunur kraftlyftingamanna.

Núna þarf ég að fara að vinna.
Bráðum kemur hann Halli minn og þá verður gaman.

mánudagur, janúar 28, 2008

Skúli fúli.

Ekki veit ég hvers vegna en ég er í svakalega fúlu skapi. Mér finnst allt leiðinlegt í dag. Í morgun fór ég í fyrsta hugmyndafræðitíma annarinnar. Kennarinn er agalega hrifinn af pólitískri list svo að verkefni vikunnar er að skissa upp eitthvað helvíti. Þemað er: Mannvonska mannsins við manninn. Þetta er að sjálfsögðu lauslega þýtt. Svo þarf allt að vera mjög dark og niðurdrepandi. Ef þessi kona myndi glugga aðeins í skissubækurnar mínar myndi hún áreiðanlega henda mér út. Ég er ekkert voðalega dark týpa. Ég er hrifnari af því að teikna feit börn eða konur með risastórt hár að borða ofskreyttar tertur. Ojj og sveii. Svo fór ég til námsráðgjafans til þess að fá að skipta um kennara en hann reyndi bara enn eina ferðina að skrá mig í ensku. Ég fór út í vægast sagt fúlu skapi en það er ekkert að marka því ég gekk inn í vægast sagt fúlu skapi hvort eð er.

Núna um það bil tíu Reese´s minicups síðar er ég ennþá í vondu skapi. Hvað gera bændur þá? Kannski ég fari að mjólka nágrannakonuna eða smala dópsölum hverfisins inn á löggustöð. Helst langar mig nú að slátra námsráðgjafanum sem neitaði að leyfa mér að skipta um kennara.

sunnudagur, janúar 27, 2008

Komum, sáum og hækkuðum verðið.

Ég elbska morgna, hádegi og fyrri part eftirmiðdags. Að sama skapi er ég alls ekki hrifin af því þegar klukkan er orðin fimm eða þegar kvöldið siglir að landi. Núna er klukkan eitt eftir hádegi og ég er strax farin að kvíða kvöldinu. Ég veit ekki hvort þetta hefur eitthvað með dagsbirtuna að gera eða þá að þetta séu leifar af kvöldkvíða barnæskunnar. Mér fannst aldrei gaman að fara að sofa.

Hérna á horninu er subbuleg lítil búðarhola. Í gærkveldi örkuðum við þangað inn og litli arabinn með loðhúfuna heilsaði okkur fagnandi og kyssti mig á kinnina með yfirvaraskegginu sínu. Við völdum nokkrar vörur og gengum loks að búðarborðinu. Fullur miðaldra maður var að kaupa einhvern fjandann og þegar hann heyrði verðið þá leit hann á okkur og æpti: ,, Alltaf hækkar helvítis verðið þegar hvíta fólkið flytur í hverfin!" Svei. Þetta er svipað og að segja að fasteignaverðið lækki þegar svart fólk flytur í hverfið. "There goes the neighbourhood." Argasti dónaskapur. Ég hlakka til þegar fólk hættir að taka eftir því hvernig allir eru á litinn. Þetta er ansi þreytandi.

föstudagur, janúar 25, 2008

í fréttum er þetta helst

Nú veit ég ekki alveg hvar ég á að byrja. Aldrei þessu vant hef ég frá mörgu að segja. Jæja, á þriðjudagskvöldið vorum við stödd á Lower Eastside með Kollu systur Jóns hárgreiðslumanns og Salóme nýju frænku minni. Við höfðum eytt deginum í að ræða skyndilegt dauðsfall Heath Ledger(s) og einhverra hluta vegna vorum við, nú veit ég ekki með aríaprinsinn en allaveganna við þrjár, afar spenntar að fara að húsinu sem maðurinn lést í. Við gengum Broome Street þar til við komum að sjónvarpsbílum, stálgrindverkum og blómvandahaug. Þar sem Kolla er frakkur fréttahaukur, óð hún upp að dyrum og myndaði herlegheitin. Fréttamennirnir sem voru þarna voru ástralir og við reiknuðum út að ástæðan fyrir því að þau væru svona sein á vettvang væri sú að það tæki langan tíma að fljúga frá Ástralíu. Annað hvort það eða að þau væru að reyna að mjólka málið út í hið óendanlega.

Mig langar að minnast á nokkra hluti varðandi þetta mál. Í fyrsta lagi þá var hinn látni jafnaldri minn. Hann bjó í íbúð í mjög fallegu húsi í Soho þar sem fasteignaverð er eintómur hryllingur. Í þriðja lagi var hann að bíða eftir nuddkonu sem hann hafði pantað heim til sín. Ég bý í Brooklyn og get í mesta lagi pantað mér mat heim til mín. Þetta hugsaði ég og svo skammaðist ég mín fyrir að öfunda látinn jafnaldra minn. Ef það væri mögulega hægt að láta fjarlægja öfundarkirtilinn þá myndi ég með glöðu geði leggjast undir skurðhnífinn.

Ég get talið á fingrum beggja handa, tám beggja fóta og öllum þeim fæðingarblettum sem líkama minn þekja, þau skipti sem ég hef öfundað einhvern. Í hvert einasta skipti, sem þessi tilfinning gerir vart við sig, fæ ég óbragð í munninn og tilvera mín verður ömurlegri um stundarsakir.
Þegar ég stóð þarna fyrir utan hús látinnar Hollywood stjörnu sem ég hef bara séð í tveimur bíómyndum, áttaði ég mig á því að ég hafði aldrei áður öfundað dána manneskju. Nýtt met. Nú verð ég bara að finna aðferð til þess að hætta að öfunda.

Á mánudagskvöldið var ég á leiðinni heim og fyrir utan húsið mitt kemur ungur maður upp að mér og spyr hvort ég reyki gras. Ég neitaði því og þá kom spurningin ,, En tekurðu E?". Einnig neitaði ég því og ætlaði að labba í burtu. Sá ungi gafst ekki upp og spurði mig hvort ég þekkti einhvern sem hefði áhuga á eiturlyfjum. ,, Nei" sagði ég vingjarnlega og hélt að nú væri ég sloppin. ,, Hvað heitirðu?" spurði kauði þá. Lygaviðbragð mitt er ágætt og því svaraði ég ,, Erin". Þá kynnti hann sig og tilkynnti mér að hann byggi í hverfinu.
Mikið er ég fegin að vera loksins búin að kynnast dópsala hverfisins. Svei, ekki er nú öll vitleysan eins.
Reyndar þekkti ég landasalana í Breiðholti en verslaði reyndar aldrei við þá. Ég fékk nú samt 750 ml af landa í 16 ára afmælisgjöf sem endaði með því að ég ældi svörtu í vask á Villta Tryllta Villa ef einhver man eftir þeim mæta unglingaskemmtistað. Good times.

Ég man ekki hvernig landi er á bragðið þar sem ég hef ekki drukkið hann í um það bil ellefu ár. Ég man bara eftir því að við blönduðum hann með bráðnuðum gúmmíböngsum og sprite eða fylltum brúsana af piparbrjóstsykrum. Svo fórum við niður í bæ og löbbuðum Austurstræti þvert og endilangt og skemmtilegast þótti okkur þegar klukkan var þrjú og bærinnn fylltist af fólki sem okkur fannst töff af því að þau voru eldri. Greyið unglingar. Ég sakna þess samt stundum að vera að deyja úr spenningi fyrir einhverju jafn ómerkilegu og jakka eða varasalva úr body shop.

Skólinn er byrjaður og um þessar mundir er ég að reyna að komast hjá því að fara í ensku. Ég sé nefnilega fram á að vera orðin blönk í maí og er ekki viss um að ég hafi efni á því að fara aftur í skólann í haust. Þar af leiðandi nenni ég ekki að eyða tíma mínum í einhver ömurlegheit eins og enskutíma. Ég sendi námsráðgjafanum mínum kurteist bréf þar sem ég útskýrði hvers vegna hann ætti ekki að neyða mig til þess að skrá mig í þessa tíma. Yfirmaður námsráðgjafans sagði honum nefnilega að ef ég myndi ekki skrá mig þá yrði hann að gera það. Einu tímarnir sem eru hentugir miðað við stundarskrána mína eru á föstudögum. Ég vil ekki vera í skólanum á föstudögum af maður má bara missa úr þrjá tíma og við erum búin að bóka okkur á tónleika þrjár helgar sem þýðír að ég myndi hvort eð er falla í ensku.

spennandi no?

föstudagur, janúar 18, 2008

Föstudagur

Ég var að komast að því að ég er óvenju léleg að nefna hluti. Þar með taldir eru bloggfærslu titlar. Af þeim sökum skírði ég færslu dagsins í höfuðið á degi dagsins sem er, jú jú mikið rétt, föstudagur.

Aríaprinsinn sefur á sínu græna eyra. Ef ég vissi ekki betur þá myndi ég halda að hann væri haldinn Narcolepsíu eða svefnsýki. Ég aftur á móti þjáist ekki af slíkri veiki heldur er ég með heilkenni sem hinn almenni borgari kallar leti og stunda íþróttina Lata Sport. Þess má geta að ég geri mér grein fyrir að þetta var ekki góður brandari.

Núna ligg ég uppi í sófa og góni á Never Mind the Buzzcocks sem má finna hér http://www.youtube.com/watch?v=yTK3UNv0DZE&feature=related.

Þess má einnig geta að ég er of löt til þess að finna út úr því hvernig linkar eru gerðir virkir á bloggum og því verða áhugasamir að kópía linkinn upp á eigin spýtur og peista þeim, einnig upp á eigin spýtur, í litla heimilisfangagluggann efst á þeim vefsíðuglugga sem þeir hafa valið sér.

Um daginn keypti ég púða sem er í laginu eins og kjúklingalæri. Hann er þægilegur og hvílir undir lötu höfði mínu.

New Jersey ferðin var fín fyrir utan tíðar tilkynningar, ónefndrar vinkonu minnar, um skemmtanagildi ferðarinnar. Þær voru einhvern veginn svona (í lauslegri íslenskri þýðingu): ,, úúhh hvað það er gaman hjá okkur!", ,, Við verðum að gera þetta oftar!". Þetta endurtók hún svo í lúppu. Svo sagði hún mér og Árna hvað við værum sætt par. Ég fór að hafa áhyggjur þegar hún lýsti yfir áhuga sínum á að búa með okkur í stóru húsi sem við gætum öll deilt og svo myndum við elda saman og búa til tónlist og gera list. Ég held að gera list þýði ekki að kúka heldur teikna og eitthvað svoleiðis.

Þau vilja endilega hitta okkur aftur. Í dag vildu þau fá okkur á tónleika með mjög leiðinlegri hljómsveit. Eþnískt big band. Og á laugardaginn ætla þau að skella sér á eitthvað fyrirbæri þar sem allir eru í búningum og svo sitja sumir og teikna eventið eða skrifa um það. Eitthvað ljóðrænt eða absúrd ætla ég að giska á.

Svei mér. Í skjóli leynimáls, 300.000 manna og kvenna, blogga ég viðbjóð um fólk sem langar bara að eignast vini.
Ég legg til að sleppa því að reyna að vingast við mig. Augljóslega er sál mín skítug sem nærbuxur íþróttamanns.

fimmtudagur, janúar 17, 2008

New Jersey

Í dag ætlum við að fara til New Jersey. Okkur var boðið í mat hjá vinafólki okkar. Vinafólkið er sko fólkið sem á erfitt með að vera eitt og sér sem par. Eftir mörg símtöl og nokkur email, ákváðum við að skella okkur bara yfir ána og hitta þau. Það verður ábyggilega bara fínt. Meira um það síðar.

Í gær ráfuðum við um borgina, fórum í banka og skólaskrifstofuna og í búðir. Við enduðum loks á fáránlegum indverskum veitingastað. Kjörorð staðarins var: "Where chili lights meet christmas tree lights." Staðurinn er á fyrsta Avenue og í sama húsi eru tveir aðrir indverskir veitingastaðir. Fyrir utan staðina eru þrír menn sem keppast um athygli. "FREE WINE" æpir einn. "FREE DESSERT" æpir annar. Sá þriðji reynir að sannfæra mann um að koma inn á sinn stað en fleygir engum gylliboðum í andlit manns. Allir staðirnir eru skreyttir upp í rjáfur með um það bil hálfu tonni af jólaseríum. Við ákváðum að fara á "FREE DESSERT" staðinn efst til hægri. Hinir karlarnir urðu fúlir.

En jú, núna verðum við að drulla okkur til New Jersey.

Vonandi rekumst við á Tony Soprano og ruslamafíuna.

þriðjudagur, janúar 15, 2008

Frú Sennelier

Í byrjun þessa mánaðar tölti ég upp í slipp og spreðaði í rándýrt blek. Í Slippnum átti ég í nördalegum samræðum við tvo indæla afgreiðslumenn. Ég vandaði mig við að hljóma svöl og yfirveguð en það var erfitt af því að ég er svo mikill blek-, vatnslita-, trélita-, tússpenna- og teiknipennalúði. Svo labbaði ég út og hélt báðum höndum um góssið. Ó, hve fagurt blekið er. Ef það er eitthvað í heiminum sem er andstæða við slor þá er það Sennelier blek. Loksins skil ég móðurbróður minn. Hann snobbar sko fyrir matarsalti. Snobba, en fyndið. Nú skulum við snobba. Í kvöld ætla ég að snobba. Snobb. Ég er svo leið..snobb.

Í gær fóru ég og gesturinn okkar í innkaupaferð. Við fórum inn í allar kvenfatabúðir sem fyrirfinnast á Manhattan og mátuðum. Þegar ég segi allar, þá er ég að ýkja.

Áðan sópaði ég stigaganginn í blokkinni okkar. Það bað mig enginn um það en þar sem ég breyttist í maníska kellingu fyrir nokkrum árum, gat ég ekki lengur setið á mér. Ef ég hefði þurft að horfa á sömu ruslhrúgurnar stundinni lengur, hefði ég þurft að fara á þunglyndislyf. Ekki hlakka ég til tíðahvarfa, þá mun ég líklega ráðast inn í íbúðir hjá nágrönnum mínum og þrífa. Þá mun svitinn leka ofan í hrukkurnar í andliti mínu og mynda litla fossa út úr húðinni á neðri kjálka og höku.

jájá best að hætta bara núna.