fimmtudagur, september 20, 2007

Ja eg er lot.

Eg er latasti bloggari Nordur Evropu. Thad er bara svo margt sem eg er buin ad sja ad eg fae bara adsvif thegar eg aetla ad reyna ad segja fra einhverju.

Um daginn lenti eg i nokkrum furdulegum atvikum. Vid hjonin erum i ibudarleit og thad er buin ad vera vaegast sagt ahugaverd reynsla. Sidasta ibud sem vid skodunum var i gotu og sama dag var madur myrtur af nagranna sinum um thad bil 6 husum nedar. Seinna um daginn forum vid a japanskan veitingastad. Vid beygdum inn gotuna og viti menn, blasir ekki vid okkur allsnakinn madur i einstaklega vondu skapi. Logreglan maetti a svaedid og tha vard herra berrassadur enntha fulli. Svo sat hann bara a troppunum med hond undir feitri kinn og ef vel var ad gad matti sja fjoluraudan pung gaegjast milli laera hans.

Amerikanar eru fyndnir. Their tuda mikid. Eg er haett ad nenna ad tala vid skolafelaga mina thvi thau gera litid annad en ad rofla yfir lestunum, kennurunum, verkefnunum og peningum.
Thad finnst mer ekki ahugavert.

Svo er eg buin ad komast ad thvi ad thegar amerikanar segja: "interesting" eda "creative" tha eru thad innantom ord til ad fylla upp i thognina. Eg er mikid ad vanda mig ad vera jakvaed og fyrsta skrefid i thvi er ad tala bara vid skemmtilegt folk. Thad munu tha vera; Arni, Kristin Anna og Dave, Halli, Sigurjon, Holmar, Michelle og litla Vivienne. Hun er fyndnust. Henni finnst mjog gaman ad bidja folk um ad fa ad sja rassinn a thvi. Svo hlaer hun eins og hross. Skemmtilegur litill strumpur. Agg, mikid sakna eg hennar Lottu minnar og hans Emils mins.
Best ad fa thau til thess ad koma hingad. Eg er nu thegar buin ad finna skemmtilegustu dotabudirnar og teiknimyndasogu og strakabudirnar. Ef eg vaeri rikur adili tha vaeru thau ofdekrudustu dullur i heimi.

Jemm, nuna er eg ad fara i tima og kynna mig og uppahalds voruumbudirnar minar.

A morgun er jardarfor heima a Islandi. Mig langar ad vera thar a morgun og grata med gomlum vinum.

sunnudagur, september 09, 2007

Afturgangan og olíubrákin.

Á þriðjudagsmorgnum klukkan níu er skylduáfangi í skólanum mínum er nefnist Málun fyrir annars árs nema.

Ef skyldur væru eitthvað sem mætti sleppa í stað þess að vera skyldugur til þess á klára, þá myndi ég svo sannarlega sleppa þessum áfanga.

Reyndar held ég að ég hafi gott af honum þar sem tússpennar eru ekki þess eðlis að þeir fleyti manni langt í myndskreytingarbransanum.

Nú, já og nema hvað. Kennarinn í þessum tilteknu tímum er afar furðulegur. Módelið sem situr fyrir er einnig a.f. eða afar furðulegt. Hún er asísk, flúruð á húð og með hanakamb. Svo heitir hún Bob. Kennarinn er voðalega hrifinn af henni Bob og kyssir hana á kinnarnar þegar hún mætir til þess að striplast um á bossanum.

Heimaverkefni síðustu viku var að mála sjálfsmynd í raunstærð. Ég kveið fyrir þessu þar sem penslar láta illa að stjórn.

Á föstudaginn hófst ég handa og núna hangir hálfkláruð grænleit ég á ganginum í íbúðinni. í hvert einasta skipti sem ég hef gengið inn um dyrnar, hef ég æpt upp yfir mig af því að mér sýnist alltaf einhver (jafnhár og ég) standa þarna í leyni.

Ég verð að klára fjandans myndina svo ég fari ekki á taugum.

Aríaprinsinnn sefur vært og ég er að velta því fyrir mér hvort það væri bara ekki bráðsniðugt að fara út í búð og kaupa klósettpappír.

Þetta er nú einu sinni The Land of Plenty og maður verður nú að ganga örna sinna reglulega til að gera pláss fyrir meira gums og góss.

Sæl eða Hello how are you?

Loksins er heimilið internettengt. Í tvær vikur höfum við hjónaleysin þeyst frá internetkaffihúsi til internetkaffihúss.

Við erum komin til Bandaríkjanna og það er frábært. Ég vissi að það væri einhver staður sem myndi heilla mig upp úr skónum.

Hérna eru allir skrítnir og maturinn er algjört rugl. Hér er hægt að kaupa ógeðslegustu en jafnframt fallegustu kökur í allri veröldinni. Þær eru svo hræðilegar að mig langar bara að horfa á þær en alls ekki stinga þeim upp í mig.

Í gær fór ég að leita að drasli í búð sem heitir Jack´s 99 cents store. Tiger mætti nú sjúga feitt rassgat fyrir mér.

Nú nema hvað, sem við stöndum í röðinni verður Aríaprinsinum að orði: ,, öh.. he.. Lóa ertu búin að sjá konuna með hárið?" Ég bjóst við því að sjá eitthvað fyndið og eins og klippt út úr myndinni Hairspray en nei. Mér varð ekki að ósk minni. Er ég leit til hægri, hægðist á veröldinni. Líkami minn skók er við mér blasti það allra viðurstyggilegasta hár sem ég hef á ævi minni séð. Svarthærði, síðhærði blettaskalla gaurinn á Laugaveginum átti ekkert í þetta. Hárberinn var lítil gömul kona. Þess má geta að hún var undarlega meikuð og tilhöfð. Ímyndaðu þér soðna lopapeysu, veltu henni svo upp úr skít, bættu hana með nokkrum lúsabúum og límdu hana svo á höfuði á sköllóttri gamalli konu. Gvendur á himnum. Það allra ógeðslegast var að sum staðar mátti sjá hárlokka standa út úr hryllingnum.

Ég fékk vægt áfall og færði mig. Greyið konan hlýtur að vera bláfátækt og vanrækt gamalmenni.

Ef ég ætti að hjálpa henni þá þyrfti ég að minnsta kosti hálfa vodkaflösku til að komast í gegnum hársnyrtiferlið.

Allt í lagi, bless.

fimmtudagur, ágúst 16, 2007

þreyttur litill kall

Æhh hvað ég er þreytt. Svo er ég líka dottin í það. Já sko ég gat ekki hamið mig lengur og festi kaup á nýjustu Harry Potter. Ég var sko búin að spara hana svo ég kæmi öllu í verk sem ég þarf að gera. Tveggja blaðsíðna to do listinn minn er að gera mig gráhærða, magasára og viðskotailla. En jú eins og nördafíkli sæmir get ég bara ekki gert neitt annað en að sitja með nefið ofan í Harry og lesa og lesa. Á föstudaginn förum við til Danmerkur enn einu sinni. Þar munum við leika listir okkar í danska ríkisútvarpshúsinu.

Sko til marks um hversu skelfilegt stressið mitt er orðið vil ég benda á nokkur einkenni sem ég þjáist af:

Ég er byrjuð að fá grátt hár
Ég er með stanslausan niðurgang
Ég er ekki búin að fara á túr síðan í júní (já ég er búin að tékka á hinu)
Ég sef illa
Ég gnísti tönnum þegar ég sef
Ég er með króníska vöðvabólgu
Ég er skapstygg

Úff segi ég nú bara.

mánudagur, júlí 30, 2007

coming to america

Bráðum slæst ég í hópinn með Beckham hjónunum og held til Ameríku. Ég ætla að horfa á Frelsisstyttuna með tárvotum augum og þurrka hvarmana með skítugu slæðunni minni. Svo mun ég að öllum líkindum brosa mildilega og hvísla: ,, Ahmerríkahh".

Á fimmtudaginn á ég pantaðan tíma hjá bandaríska sendiráðinu. Að sjálfsögðu er ég á nálum um að vera með alla rétta pappíra svo ég verði ekki send öfug heim. Í dag fór ég á ljósmyndastofu og fékk ferkantaða passamynd af sjálfri mér þar sem ég horfi beint fram, með eyrun úti og brosi án þess að það sjáist í tennurnar á mér. Ég þarf varla að taka það fram að myndin er verulega ljót og ef ég eignast börn þá munu þau ekki fá að sjá hana svo þau fari ekki að kvíða því að einn daginn munu þau líta svona út. En þetta var nú útúrdúr.

Um daginn var ég stödd í húsi á Laugaveginum sem verður brátt að víkja fyrir verslunarmiðstöð. Þá datt mér í hug að það gæti verið skemmtilegt ef Íþróttaálfurinn myndi hætta að atast í feitum börnum og einbeitti sér frekar af jafn miklum krafti að því að vernda Laugaveginn. Í dag finnst mér þetta ekkert voðalega góð hugmynd.

Ef einhvern þarna úti langar til þess að sækja um skóla í Bandaríkjunum þá er ég tilbúin til þess að svara alls konar spurningum um hvernig á að bera sig að. Eftir á að hyggja var þetta ekki svo flókið. Þetta lítur bara út fyrir það í fyrstu þegar maður veit ekkert hvernig maður á að snúa sér.

fimmtudagur, júlí 19, 2007

Oh, the humanity.

í þriðja skiptið í sumar ligg ég hér nær dauða en lífi. Þetta eru afleiðingar af bólusetningum. Ég hef alltaf verið sprautuð á mánudögum og lo and behold, á fimmtudegi er ég sem uppvakningur. Að vísu hefur það hvarflað að mér að þetta sé einfaldlega líkami minn að tilkynna mér að ég sé komin með krabbamein.

Núna ætla ég að setja höfuðið á mér í gufubað yfir potti. Ég hef trú á svoleiðis skottulækningum.

þriðjudagur, júlí 17, 2007

Eplaspitt.

Ég er að taka heilsupillur frá Heilsuhúsinu og er orðin sannfærð um að það sé ekki allt með felldu í því húsi. Svei mér þá ef það er ekki spítt í hylkjunum sem þau eru að framleiða.

Núna er klukkan hálftvö eftir miðnætti og ég var að koma úr garðinum þar sem ég stóð og hengdi upp þvott. Áður en ég þaut út í garð vaskaði ég upp eftir sambýlinga mína. Þar með talinn horror pottinn. Aldrei á ævi minni hef ég séð jafn brenndan botn. Ég vissi ekki að það væri hægt að brenna spagettí svona illilega.

En jú jú ef einhver hefur áhuga á lífi mínu og list þá er hér svona mynda síða sem ég apaði upp eftir systur minni.

http://www.flickr.com/photos/loaloaloa/

Þar sem ég er linkasauður þá er bara best að kópí peista þetta. ha? bara kópípeista þennan fjanda.

fimmtudagur, júlí 12, 2007

jubili

Þá er júbílí næstum hálfnaður. Ég er komin með bikínífar og fjarlægist óðum arískan uppruna minn. Í morgun fór ég í sund og synti. Núna þarf ég nauðsynlega að koma mér upp þolinmæði gagnvart óskipulögðum gamalmennum.

mánudagur, júlí 09, 2007

Eitt i viðbot..

Linkasíðan er í stafrófsröð bara svo þið vitið það.

Mein Gott im Himmel!

Sjáiði bara. Hvílík litadýrð. Til að heiðra systur mína, tók ég mig til og föndraði allskonar vitleysu við bloggið mitt. Núna er til dæmis hægt að kommenta án þess að vera krafinn skilríkja. Svo er ég loksins búin að koma nokkrum linkum fyrir á síðunni.

Annars var ég að hrynja úr Lödu Sport rétt í þessu (það er að segja fyrir tveimur tímum síðan því ég var að hanga á netinu og svo fór ég að dedúa við bloggið mitt.) Ég og Aríaprinsinn(sjá link), Bixí og Gamli keyrðum í allan dag frá Siglufirði til Reykjavíkur. Við venjulegar aðstæður tekur um fimm og hálfan tíma að keyra en við stoppuðum nokkrum sinnum á leiðinni og sit ég hér með dýrmætt góss úr ferðinni. Ég keypti eftirprentun af mynd eftir Sölva Helgason a.k.a. Sólon Íslandus og svo einstaklega falleg póstkort með fleiri fögrum myndum eftir sama mann.

En já há. Við stöldruðum við i í Lónkoti, Sölvabar, Hofsósi(ég er ekki viss um að það teljist sem staður, ekki hræða á ferð), Sölvabar(sumir gleymdu myndavél ofan á bíl sem vildi ekki hafa myndavél ofan á sér og hrinti henni í grasið), Varmahlíð, Staðarskála(eða Staldrinu eins og aðrir vildu kalla það), Hyrnunni og loks á bensínstöð í Pizzabæ (Mosó já sumir kalla það Pizzabæ, Mosó þar sem mánudagur er Miller time). Ástæðan fyrir síðasta stoppinu er sú að á leiðinni til Siglufjarðar hafði víst gleymst að borga fyrir brúsann, bensínbrúsann það er. Núna verður sviganotkun hætt svo ekki fái mannskapurinn flogakast.

Ég varð reyndar ekki vitni að téðri gleymsku þar sem ég fór degi á undan með Múttu, Pápa og Frú Gutt. Á fimmtudaginn var nefnilega för okkar heitið á þjóðlagahátíð. Já jú það hljómar ekki spennandi í allra eyrum en persónulega er ég aðdáandi þessarar tegundar tónlistar. Langspilssmíði ætti að vera skylduverkefni í grunnskólum landsmanna sem og kennsla á hljóðfærið. Heimurinn á nóg af pizzubrettum og lélegum blokkflautuleikurum.

Það er alveg magnað hversu mikinn tíma maður hefur úti á landi. Ég náði að lesa heila bók þrátt fyrir útstáelsi og tónleikaráp, sundferðir og fleira.

En ég má til með að segja frá markaðnum í Lónkoti. Hann er auglýstur sem stórkostlegur markaður þar sem bændur mæta með fersk matvæli, handunnar vörur og ég veit ekki hvað og hvað. Þegar við mættum á svæðið blasti við okkur risastór sirkustjald sem innihélt í mesta lagi ellefur sölubása.

Markaðurinn:

Bás 1: Kona að selja barnavettlinga
Bás 2: Kona að selja barnavettlinga og kleinur
Bás 3: Maður með tvo brauðhleifa og hálffrosinn fisk
Bás 4: Kona að selja nælon blóm og asíska púða
Bás 5: Kona að selja verksmiðjuunna barnaskó
Bás 6: Kona að selja flöskur, verksmiðjuunnar styttur og lukkupakkar. Birgitta keypti einn pakka og ég annan. Í pakka voru glasamottur og flöskuupptakari í laginu eins og kókflaska, í pakkanum hennar Birgittu leyndust glasamottur og já... ekkert fleira. Á mottunum stóð: New York, Big Apple, Manhattan.
Bás 7: Maður að selja ritfangavörur úr búð sem er á Siglufirði
Bás 8: Kona að selja notuð föt
Bás 9: Kona að selja eitthvað dótarí
Bás 10: Maður að selja harðfisk
Bás 11: Kjaftagleiður maður að selja mótorhjólafatnað á tugþúsundir króna, einn bleikan apa sem gefur frá sér hljóð ef þrýst er á trýnið og tvo farsíma. Annan á þrettán þúsund og hinn á sjöþúsund. Nokia eru víst bestir.

Ég bjóst nú ekki við Mið-Evrópsku Blómavali en þetta var nú bara eins og eitthvað Chernobyl Kolaport.

Framhald síðar. Mér er orðið óglatt af þreytu. Góða nótt

miðvikudagur, júlí 04, 2007

Jæja starfsfólk Guinnes Book of Records dragið fram penna og skrifblokk. Nýtt met var í þann mund að fæðast.

Ef frá taldar eru bronseftirmyndir af fólki þá held ég að ég eigi heimsmetið í að vera kúkuð á af fuglum. Áðan sat ég í makindum úti í garði og las. Skyndilega féll eitthvað volgt og slepjulegt á öxlina sem slettist niður á framhandlegg og á kjólinn minn. Þetta var tilræði númer fjögur.

Nú er mér allri lokið. Nú verð ég hreinlega að gerast trúuð og komast að því hvað það er sem vekur reiði Guðs. Þetta hlýtur að vera áminning vegna einhvers sem ég hef gert.

Engan þekki ég sem getur toppað þetta met og þegar ég hafði einungis lent í þessu þrisvar gat heldur enginn toppað mig. Ég þarf greinilega að fara niður í Klifurhús og rannsaka þetta meðal fjallaklifursgarpa.

Á eftir kemur Lísa Páls og sækir mig. Hún ætlar að keyra mig á æskustöðvarnar og taka viðtal við mig um Breiðholt. Jibbí, mér finnst einmitt svo skemmtilegt að tala um einmitt það og núna er ég ekki að vera kaldhæðin.

fimmtudagur, júní 28, 2007

Sei sei jájá hér. Ég var að frétta af honum kæra vini Hulla. Hann er að verða arfavitlaus í Svíþjóð því bölvaðir Skandínavarnir neita að tala á engilsaxnesku. Hann situr bara eins og daufdumbur á einhverjum námskeiðum allan daginn. Mætti ég stinga upp á flótta. Það myndi ég gera. Flýja í hraðbanka og svo á hótel. Núna væri jafnvel sniðugt að fara í sund. Þaldénú.
í morgun bjó ég til pönnukökur, beikon og egg og sitthvað fleira. Svo skar ég mig á glasi þegar ég gekk frá. í gær fór ég í Laugardalslaugina með móður. Við fórum í rennibrautina og ég kenndi 57 ára gamalli móður minni að setja sundbolinn upp í rassinn til þess að komast hraðar. Hún átti ekki til orð. Mér finnst furðulegt að ég hafi verið að ljóstra upp þessari staðreynd fyrst núna. Ég hef lumað á þessu síðan 1986 eða 7. Já eða sko síðan rennibrautin kom fyrst í dalinn.

miðvikudagur, júní 27, 2007

Ég mæli eindregið með því að fólk drekki gin á virkum dögum. Nema það sé með ofnæmi fyrir áfengi eins og alkóhólistar segjast vera með. Þetta hljómaði dáldið illa en það er bara af því að ég er gegnsósa af gini.

Jalliraddirí ég fór áðan á tónleika á Nasa. Þegar þangað var komið sá ég það skásta í stöðunni að hella í mig. Motion Boys og Rapture trylltu lýðinn á meðan ég gerði mér dælt við barþjóninn ljóta. Núna er ég komin heim og hef ekkert betra að gera en að blogga.

þriðjudagur, júní 26, 2007

Mikið væri ánægjulegt ef að allir litlu pastafeitu jakkafatasmeðjungarnir hjá Sjálfstæðisflokknum myndu skyndilega ákveða að draga sig úr pólitík og flytja til Austur Evrópu. Þessi einstaklingsmiðaða frjálshyggja er bara bull og vitleysa og hönnuð til þess níðast á þeim sem minna mega sín. Það mætti halda að þessir rökuðu sjálfstæðispungar hefðu aldrei fylgst með í samfélagsfræði.
Vændi ætti að sjálfsögðu að vera ólöglegt með öllu. Elsta atvinnugreinin my ass. Ég held svei mér þá að þetta helvítis lið gangi ekki heilt til skógar. Þeir mættu alveg ganga til skógar mín vegna, heilir sem hálfir.

Þegar ég opnaði Fréttablaðið í morgun mætti mér mynd af klámgeltinum Geira Gullfingri. Hann er spurður hvort að stúlkurnar hans fari ekki bara að dansa undir borðum fyrst að einkadans verði bannaður um næstu mánaðamót. ,, Ég held að það hljóti að vera eina leiðin" segir Geir og glottir við tönn.

Af hverju er Ásgeir Davíðsson látinn líta út eins og einhver hress karl í áhugaverðum atvinnurekstri? Hvers vegna eru myndir af honum í Séð og Heyrt þar sem hann er faðmaður af fáklæddum konum eins og það sé eðlilegasta mál í heimi? Hvað á það að þýða að á um það bil hálfu kílómetra svæði séu þrír soraklúbbar í miðbæ Reykjavíkur?

Mér finnst þetta bara hvorki fyndið né eðlilegt. Það þarf enginn að segja mér að þarna vinni hamingjusamar konur sem hafi ákveðið að leiðast á út á þessa braut af því að draumastarf þeirra hafi verið að dansa berar fyrir framan graða karla.

Af hverju erum við að þykjast vera siðmenntað fólk. Leyfum bara allt sem fólki dettur í hug og sjáum hvað gerist. Vændi, vopn, eiturlyf, misnotkun, engar hraðatakmarkanir. Þetta hlýtur hvort eð er að reddast allt saman.

mánudagur, júní 25, 2007

Þá er að koma sér í vinnugírinn. Það eru engin takmörk fyrir því hversu löt ég get orðið. Frekar sit ég og spila tilgangslausa tölvuleiki þangað til ég er komin með náladofa í lappirnar og vöðvabólgu í axlirnar.

Áðan var ég á heimasíðu doktor Gunna. Hann var eitthvað að minnast á að rita endurminningar sínar. Mér fannst það nú ágætis hugmynd. Þegar ég hugsa um eigin endurminningar er ég hreinlega ekki með það á tæru hvað sé minning og hvað sé uppspuni. Ég var greinilega lyginn krakki.

Samkvæmt BMI staðlinum er ég ofalinn grís. Spurning hvað ég nenni að gera í því. Mér líður ágætlega og hef ekki lent í því að fólk sé að benda á mig úti á götu. Kannski eru allir svona kurteisir.

ég nenni ekki að vinna. yarghhhh.

sunnudagur, júní 24, 2007

njöhh. já hvert var ég komin. Við ákváðum nú samt að fara til London þrátt fyrir að við værum ekki að fara að spila á tónleikum. Svo bauðst okkur að fara á Glastonbury hátíðina og við slógum til. Þar óð ég drullu í kínaskónum mínum. Svo var ég að vakna núna eftir 15 klst og 45 mínútna svefn. Mig dreymdi að ég væri að öskra á melludólg.
Jæjahh. Þá er ruglaðasta helgi ársins senn á enda. Á fimmtudaginn fór ég upp á Leifsstöð klukkan fimm um morguninn. Við áttum að fljúga klukkan tíu mínútur í átta en flugvélin bilaði og biðum við því til 15:30. Í milli tíðinni fórum við í Bláa Lónið sem er orðið grænt. Starfsfólkið laug og sagði eitthvað blaður um þörunga og að lónið væri eins tært og það gæti orðið. Þörungarnir væru þarna út af sólinni. Svo undarlega vill til að lónið sem er fyrir framan húsið er ennþá tannkremsblátt. Þar skín sólin alveg jafn skært. Ég held bara að vatnið sé sýkt út af of miklum straumi fólks. Kannski lónið hafi líka orðið grænt af viðbjóði þegar það frétti að það kostar 1800 krónur ofan í.

Þegar við komum upp úr lóninu græna fórum við í skemmtiferð til Keflavíkur og aftur upp á flugvöll. Þar komumst við að því að tónleikunum okkar hafði verið aflýst .... ég kem aftur síðar.

mánudagur, júní 18, 2007

Áðan sat ég öll útötuð í sósu. Héðan í frá er víst best að ég borði pítur í einrúmi. Í gær var ég ekki í einrúmi eina einustu sekúndu. Þetta var einstaklega fínn þjóðhátíðardagur. Það eina sem var skrítið var að þegar klukkan var hálftólf helltist yfir mig löngun að eyða pening í drasl. Bara eitthvað drasl. Ég hafði komist í gegnum allan daginn án þess að kaupa mér gasblöðru, tveggja kílóa sleikjó, sleikjósnuð, candy floss, popp, fuglaflautu eða límmiða á kinnina. Þegar miðnætti nálgaðist arkaði ég sem óð manneskja og keypti eitthvað hauskúpudrasl fullt af pipardufti. Hvarf þá löngunin eins og dögg fyrir sólu.

Dagurinn hófst á því að ég og sambýlisfólk mitt héldum niður í bæ. Þar kíktum við á sólina í gegnum stjörnukíki, fórum í sólbað í Alþingisgarðinum, sáum undarlegt víkinga skemmtiatriði... ég vona að forfeður okkar hafi ekki verið svona miklir lúðar, töldum munaðarlausar gasblöðrur á himninum og virtum fyrir okkur samlanda okkar. Svo fóru ég og aríaprinsinn, hárgreiðslumaðurinn og flugmaðurinn á hljómsveitaræfingu.

Þegar æfingunni lauk fórum við og horfðum á handbolta. Ég er nýbyrjuð að horfa aftur á handboltaleiki. Áður fyrr fékk ég alltaf bullusóttina og ærðist ef landsliðið tapaði. Uppáhaldsleikmaðurinn minn er hann Óli en aðallega af því að hann fer á Sirkus og drekkur sig fullan.

sunnudagur, júní 17, 2007

Magnað að vakna alltaf einu sinni á ári með sama kjánalega lagstúfinn á heilanum. Já ég er að sjálfsögðu að tala um Hæ hó og jibbíjei og jibbíjeij það er kominn sautjándi júní. Hver ætli hafi samið þetta?
Áðan var ég að lesa blogg systur minnar www.hryssa.blogspot.com sem ég á ennþá eftir að setja í linkakerfið mitt sem ég er ekki búin að virkja. Á blogginu hennar má lesa afar fallega bæn. Það er mjög góð tilfinning að fjögurra ára barn í Mexíkó, biðji fyrir manni á kvöldin. Ég varð allaveganna meyrari en ungnautakjöt þegar ég las það.

Helgin fór að miklu leiti í skrall og skemmtanir. Við spiluðum tvisvar á föstudagskvöldið og einu sinni í gærkvöldi. Við erum búin að eignast aðdáendur sem eru miðaldra hjón frá Ameríku. Þau komu á alla tónleikana og í gærkvöldi stóð maðurinn í bleikri skyrtu og tók myndir af okkur. Ég hef aldrei átt mann í bleikri skyrtu og mér finnst það bara næs. Sjálf myndi ég ekki ganga um í bleikri skyrtu. En já þetta voru semsagt indælishjón.

Í dag er þjóðhátíðardagur þjóðar minnar og ég nenni eiginlega ekki niður í bæ. Sautjándi júní er dáldið eins og endurtekið efni.