Hvar ég er? Nú í vinnunni auðvitað Silly Billy. Mér líður eins og ég sé alltaf hérna þrátt fyrir að vinna bara aðra hvora viku.
Vinnan mín felst í því að koma dagblöðum aftur á tölvutækt form. Tvíverknaður, jú mikið rétt.
Á næturnar neyðist ég til þess að lesa blöðin og hef þar af leiðandi aldrei á ævinni verið jafn vel upplýst um umheiminn og einmitt nú. Síðustu mánuði hef ég staðið sjálfa mig á því að mynda mér skoðanir á öllum fjáranum. Einnig hef ég tekið ástfóstri við suma pistlahöfunda á meðan ég legg fæð á aðra. Sum flón ættu ekki að fá að gaspra í fjölmiðlum.
Aríaprinsinn var að kenna mér að nota radioblog.com. Ég held að þessi internetútvarpsstöð sé betri vinur mannsins heldur en hundurinn og gott ef þetta er ekki þarfari þjón en gamli Gráni. Fyrir mitt leyti slagar þetta hátt í að vera nýi besti vinur minn.
Skoh, þú slærð bara inn www.radioblog.com og skrifar uppáhalds tónlistarmanneskjuna þína eða heila hljómsveit og lo and behold playlistar frá ókunnugum birtast í tonnatali og þá geturðu hlustað á það sem þau hafa fram að færa. Mér líður eins og unglingi sem situr þegjandi inni í herbergi hjá nýjum kunningja og mæli ekki orð af vörum á meðan kunninginn spilar uppáhalds plöturnar sínar. Fjör já og þú sleppur við að þurfa að hlusta á leiðinleg lög til þess að vera kurteis. Þarna er maður kóngur í ríki sínu og getur meira að segja æpt: ,, Svei, svona rusl læt ég ekki inn fyrir mínar hljóðhimnur."
Sá aríski er alltaf að gauka að mér nýjum hlutum enda er hann yngri en ég og ennþá áhugasamur um nýja tækni og veröldina í kringum sig.
Ég nálgast, það nýjasta sem hann hefur upp á að bjóða, varlega. Svo hnusa ég af því eins og gamall, úrillur heimilisköttur. ,, WHISKAS? Þetta er ekki soðin ýsa." Svo læt ég þetta bíða í smá tíma en geri svo skyndiárás og nauðga viðkomandi netsíðu/geisladisk/forriti. Rétt í þessu var ég að sjá fyrir mér manneskju að nauðga forriti í bókstaflegum skilningi. Það var mjög disturbing og núna ætla ég að taka mér smá tíma til þess að skamma heilann minn og biðja hann vinsamlegast um að hætta þessum eilífu óumbeðnu slidesmyndasýningum.
Ég á vin sem er með svo hræðilega fjörugt og hraðvirkt ímyndunarafl að það er nóg að segja bara til dæmis ,,afasafi" og hann koðnar næstum niður og fær hvítuna.
Stundum skil ég ekki hvers vegna hann nennir að púkka upp á manneskju sem er það andlega illa stödd að hún getur ekki stillt sig um að tvinna saman andstyggilegum hlutum bara til þess eins að hrella.
Ókey bæ
sunnudagur, janúar 21, 2007
mánudagur, janúar 15, 2007
Í dag hefi ég setið og skannað. Annað kvöld er ég líka að fara að skanna. Um daginn horfði ég á teiknimynd sem heitir Scanner darkly. Hún var leiðinleg og áhugaverð í senn. Keanu Reeves ætti ekki að tala inn á fleiri teiknimyndir. Greyið konan hans, hann hljómar alltaf svo áhugalaus og þegar hann æsir sig þá virkar hann heimskur.
sunnudagur, janúar 14, 2007
Gleðilegt ár. Seint óska sumir gleðilegs árs en óska þó.
Ég gerði eitt áramótaheit fyrir tveimur vikum og mun uppljóstra því að ári. Ef ég verð ekki dauð þ.e.a.s. Sem minnir mig á það. Ég veit ekki hvort ég hafi bloggað um það í fyrri blogglífum eða ekki en skítt með það, í eigin persónu er ég hvort eð er alltaf að endurtaka sömu sögurnar aftur og aftur eins og gamall bóndi. Eða bara gamal/gömul _ _ _ _ _ _ _ (fyllið inn í eyðurnar eftir eigin hentisemi).
Við erum sumsé stödd niðri í miðbæ Reykjavíkur (þetta er flassbakk) ég er bólugrafinn unglingur og andsetinn upp að vissu marki. Dagurinn er sautjándi júní 1994. Aldrei þessu vant er ég stödd með föður mínum í bænum. Eins og með flestar gelgjur, var ég með ákveðinn radíus sem foreldrar mínir máttu ekki stíga inn fyrir á almannafæri og man því ekki hvers vegna ég var þarna á vappi með pápa. Sautjándajúni mannþröngin er alla lifandi að drepa og skyndilega heyrist muldrað, bólugröfnum rómi: ,, Ég skil ekki hvað við erum að gera hérna, það eina sem við eigum sameiginlegt með þessu fólki er að við eigum öll eftir að deyja." Ég þarf víst ekki að nefna það að viðbrögð föður míns voru vægast sagt neikvæð enda hafði hann takmarkaða kímnigáfu fyrir my gloomy remarks.
Ég held að pabbi sé búinn að setja gelgjuár okkar systra í eitthvað læst hólf í heilanum á sér. Ég hef ekki heyrt neina ,,sniðugar" sögur af okkur sem gerast á tímabilinu 1989-2007. Minningar tengdar okkur eru frekar í átt við: ,, Heyrðu, hvar er rauða borðið sem ég lánaði þér þegar þú bjóst með kærastunum þarna...eh.. hvað hét hann nú aftur?"
Djöfull ýki ég. Mér finnst bara svo leiðinlegt að segja satt.
Ég verð að fara í bað, annars endar með því að einhver tekur sig til og sáir karsafræjum í drullulagið á mér eins og í barnabókinni ,, Sigga Vigga og börnin í bænum." Ef einhver hefur ekki séð þessa bók þá mæli ég með henni fyrir uppalendur. Einstaklega smekklega framreiddur sadismi handa foreldrum.
Hér kemur svo listi yfir nokkuð sem mér er kært og er í mestu uppáhaldi þessa dagana:
1. The Mighty Boosh (breskir grínþættir sem spila ekki inn á meðvirknis/vandræðalega húmorinn.
2. Fables (myndasögur sem fjalla um gamlar ævintýrahetjur í nýju umhverfi. Rauðhettu og fleira lið. Hún er borgarstjóri í leyndum hluta New York)
3. Heimasíðan http://www.juneberry78s.com/ þar sem hægt er að hlusta og downloada gamalli amerískri tónlist. Jóðli og kántrí og blús og fleira dundi.
4. Leitarkerfinu stumble upon. Þar skráir maður sig og sín áhugamál og leitarvélin finnur heimasíður. Mjög fínt ef maður á dauðan tíma og situr fyrir framan tölvu. Ekki gott fyrir fíkla
Um daginn keypti ég svo hina langþráðu Monster Club. Ég horfði á hana þegar ég var tíu ára og ældi af skelfingu. Þetta er víst í flokknum Horror-comedy. Nú viku eftir innkaupin situr diskurinn enn óágláptur. Aumingjaskapur minn var algjörlega ófyrirséður þar sem ég stóð í búðinn og æpti af fögnuði þegar ég fann myndina.

mánudagur, desember 18, 2006
Ég hef vakið athygli mína á að ég tala óvenju mikið um þarmastarfsemi mína. Tjah, það mætti næstum því segja að yfirlýsingagleði mín í sambandi við klósettferðir og kúk sé yfirþyrmandi og verulega þreytandi til lengdar. Guði sé lof að ég eigi ekki afkvæmi sem þurfa að skammast sín fyrir mig.
,, Mamma, nennirðu að hætta að tala um rassinn og kúkinn þinn?"
,,Al-drei."
En að áhugaverðari efnum, ég veit ekki hvort ég sé svona þurr á höndunum út af óeðlilega tíðum handþvotti síðustu daga eða vegna ofþurrks. Andskotinn, þarna var ég að reyna að brydda upp á nýju umræðuefni en varð fyrir því óheppilega atviki að beinast aftur inn á sömu braut. Fyrir þá sem heima sitjið: handþvottur og þurrkur eru fylgifiskar niðurgangs.

Kæru vinir og vandamenn og ókunnugir sem hafa gaman af því að lesa bloggsíður ókunnugra. Heilsufari mínu er hægt að lýsa í einu orði: Ebóla. Á fjórða degi niðurgangs gaf Ristill frændi mér: Höfuðverk og brúnglæran kúk.
Hvort brúnglær sé alvöru orð veit ég harla lítið um en á þessu stigi málsins er mér alveg sama. Ef þetta er ekki bráðdrepandi sótt frá þróunarlöndunum þá er þetta eitthvað sem kom til landsins með Oslóartrénu. Það eru margar kenningar uppi, allar frá mér komnar, þar sem fáir hafa jafn mikinn áhuga á furðulegu magapestinni minni og ég.
Þið getið sparað ykkur áhyggjurnar, ég er hvorki að blogga af klósettinu né ætla ég að koma í heimsókn og smita ykkur af drepsóttinni. Fyrir þá sem eru ekki búnir að kaupa handa mér jólagjafir, sleppið því bara, ég mun ekki tóra lengur en að Þorláksmessu. Better yet þá held ég að það sé bara best að draga síðasta andann og skíta síðustu hrinunni á myrkasta degi ársins 22. desember. Ég ætla að drífa mig að kaupa jólagjafirnar í vikunni til að gera dauðdaga minn ennþá sorglegri. Spurning hvernig ég fer samt að því. Það veit ekki á gott að teipa plastpoka við rassinn á sér og fara svo með strætó í Kringluna og drulla svo kannski á sig á Miklubrautinni. Ætli það flokkist ekki undir félagslegt sjálfsmorð.

fimmtudagur, desember 07, 2006
Ég þarf á klósettið en ef ég fer á klósettið þá heyri ég ekki í símanum og veit þá ekki hvenær fjandans sendiferðabíllinn kemur með blöðin svo ég geti byrjað að vinna.
Á meðan ég bíð er ég að spá í að gera smá úttekt á sambandi mínu við íbúa Andabæjar. Áður en ég byrja langar mig að taka fram að þetta er ekki gert vegna eftirspurnar heldur gífurlegrar tjáningarþarfar af minni hálfu. En já sumsé.
Allt frá blautu barnsbeini, þ.e.a.s. frá sex ára aldri (af því að þá gat ég byrjað að lesa Andrés Önd), hef ég fylgst með ævintýrum dýranna í Andabæ og nú nýlega Músabæ því ekki er langt síðan ég komst að því að Mikki býr í Músabæ. Reyndar er ekki heldur langt síðan að ég áttaði mig á því að Andabær sé í Ameríku en ekki Danmörku eins og ég gaf mér í æsku. Það er að sjálfsögðu vegna þess að blöðin sem bárust hingað fyrst um sinn voru dönsk. Margir(pabbar), sem eru fæddir í kringum seinni heimsstyrjöldina, fá aldrei nóg af því að tilkynna stoltir að þeir hafi lært dönsku af lestri Anders And blaða. Hvers vegna það ætti að fylla einhvern stolti er mér ekki fyllilega ljóst.
Jæja, Anders eða Andrés, splittar ekki diff, þessi blöð voru svo samtvinnuð tilveru minni í æsku að ég held svei mér þá að ef ekki hefði verið fyrir Andrés og félaga, hefði ég þjáðst af hægðatregðu alla æsku.
Ég hef ekki tölu á öllum þeim skiptum, sem þessi vinalegu sköpunarverk Walt Disney´s, fylgdu matnum mínum frá vöggu til grafar (þ.e. frá eldhúsborði til klósettskálar). Ekki nóg með að blöðin hafi hjálpað mér við losun hægða, heldur notaði ég þau óspart við að hjálpa mér að sofna. Ég var óskaplega myrkfælið barn og las teiknimyndasögublöð á næturna til þess að bægja frá hugsunum um skrímsli, augnalausar konur, glæpamenn, útburði og drauga. Flestar nætur sofnaði ég því með kveikt ljós og blað á bringunni.
Heh.. fyndið ég ætlaði bara að telja upp alla í Andabæ, hverja ég fílaði og hvaða týpur mér þættu óþolandi en endaði bara á því að rifja upp æskuminningar. Ætli þetta sé ekki vegna þess að ég er að hlusta á Rás 2 og það er þáttur um Ladda og þeir eru að spila lög af DEO og fleiri skemmtilegum plötum. Ég var búin að gleyma hvað mér þykir vænt um Ladda... og Bubba..ég má til með að nota tækifærið og garga ást mína á þessum æskuhetjum mínum. Ætli þeir séu ekki ástæða þess að ég er eins og ég er í dag: hress kókaínfíkill. Fyrir þá sem álpuðust inn á þetta blogg og þekkja mig ekki þá vil ég taka fram að ég er bara að bulla, ég er alls ekki hress.
Þegar ég var unglingur byrjaði ég með strák sem ég var svo með í næstum sjö ár. Tengdamóðir mín fyrrverandi vann með einhverfum á vernduðum vinnustað. Starf þeirra einhverfu var að pakka inn Andrésblöðum. Ég leyfi mér að ganga svo langt að þar hafi ég hitt á gullæð. Ókeypis blöð í næstum áratug. Með þessu móti gat ég auðveldlega fylgst með fiðruðu vinum mínum frá unglingsaldri til fullorðinsára. En hjónabandinu lauk fyrir næstum fjórum árum síðan og nú til dags kemst ég aðeins í blöðin þegar ég fer í fjölskylduboð. Þá lauma ég mér pent inn í eitthvert barnaherbergið og tek til við að sinna mínu andfélagslega áhugamáli. En gott og vel, ég hef hugsað mér að enda þessa langloku á að gera það sem ég upphaflega ætlaði mér og gefa álit mitt á persónum og leikendum úr verkinu Sögur úr Andabæ.
Andrés Önd: Ekki nóg með að Andrés sé skapstór og hefnigjörn önd heldur er hann sjálfskipaður leiksoppur örlaganna. Ekkert er honum að kenna, aðrir sjá um að gera hann að fórnarlambi að hans mati.
Andrésína Önd: Sjálfumglaður tækifærissinni sem hefur verið trúlofuð sama skaphundinum í meira en hálfa öld en er of meðvirk til þess að slíta trúlofuninni og heldur því Andrési í lausu lofti með því að segja aldrei af eða á. Í gegnum tíðina hefur hún gerst sek um fjölmörg framhjáhöld með misheppnuðum árangri. Meðal annars fer hún oft á stefnumót með frænda Andrésar og etur þeim saman.
Hábeinn hepppni: Hann er í einu orði sagt óþolandi en það þyrfti ansi dyggðuga önd til þess að vera ekki óþolandi ef maður væri svona fáránlega heppinn í spilum, happdrættum, fjársjóðsleitum og tombólum. Skapgerðarbrestir hans eru tilkomnir vegna ofeldis en hann mætti nú alveg stunda smá sjálfsskoðun og kannski gera eitt og eitt góðverk.
Ok, ég veit ekki hvort ég ætti að halda áfram núna, þetta er ekki sanngjörn greining vegna þess að ég er í hræðilegu skapi. Klukkan er eitt, skanninn er hálfviti og ég er farin að hegða mér eins og ónefnd skapstór önd. Ég þarf verulega að halda aftur af mér til þess að kasta ekki þessu ömurlegasta tæki veraldarsögunnar út um gluggann.
Spurning hvort að þessi næturvinna sé getting to me.

miðvikudagur, desember 06, 2006
Jæja nú sit ég með þurrar glyrnur og stari á tölvuskjáinn og bíð. Nei, ég er ekki að bíða eftir commentum eða friend requestum á meinspaz.com.
Að þessu sinni snýst biðin um títtnefndan skanna... sem öhh...sem ætlar allt um koll að keyra á skemmtistöðum bæjarins.
Á rugl.is má sjá myndir af skannanum í trylltum fansi á Vegamótum í sleik við ljóshærða gellu í svörtum partýtopp, gráum niðurmjóum gallabuxum, svörtum stígvélum yfir skálmarnar, með með eina til fimm hálsfestar (helst gylltar). Hún heitir mjög líklega Eva eða Kristín.
Í nótt ætlar hann að skanna hana.
Hjah, nú verð ég bara að taka að mér hlutverk Almannavarna og vara almenning við eh... nei nú ætlaði ég að tuða eitthvað. Aldrei þessu vant dettur mér ekkert í hug. Húrra fyrir sjálfri mér. Niður með heilaæxli sem láta mann:
Tuða út af engu.
Metast við aðra og láta mann svo alltaf tapa í samanburðinum.
Fara í fýlu þegar fólk gerir ekki nákvæmlega eins og maður hafði ákveðið fyrir það hvað/hvernig/hvenær það ætti að gera það.
Reiðast þulum, þáttastjórnendum, dagskrárgerðarmönnum, kynnum, fréttamönnum, grínurum og leikurum sem álpast inn á skjáinn hjá manni.
Æi heyrðu Skannsi er búinn í sleik. Ég verð að fara að vinna.

mánudagur, nóvember 27, 2006
Í gær var ég að lesa frétt í blaði þar sem rugludallurinn Árni Johnsen var að væla. Að þessu sinni var hann búinn að skipta um lag á plötunni. Hann er greinilega nýbúinn að fatta að það er ekki hægt að segja að glæpurinn sem hann framdi hafi verið ,, tæknileg mistök" án þess að koma út eins og hálfviti. Aftur á móti er maðurinn ekki búinn að fatta að það er ömurlegt að reyna grenja út fyrirgefningu til þess að fá að troða rassinum á sér í þingsæti. Mikið hlýtur hann að langa í þessa oflaunuðu stöðu.
Af hverju fækkum við ekki fólkinu í ríkisstjórn. Þetta blessaða fulltrúalýðræði hljómar nú bara eins og algjört drasl hvort eð er. Mér finnst eins og flestir á þingi séu bara eitthvað lið sem langi í vellaunaða vinnu og völd til þess að skara eld að sinni köku. Davíð Oddssyni, tókst í sinni valdatíð, að hann kerfið nákvæmlega svo það myndihentaði honum best. Verst að maðurinn skuli ekki vera öryrki.
Í öðru blaði er hægt að skyggnast inn á heimili Árna í Breiðholtinu. Hann er einn af fáum Breiðhyltingum sem býr í einbýlishúsi. Á nánast hverjum einasta vegg var uppstoppað dýr.
Heimilið leit út eins fólkið sem byggi þar væri blanda af aðalbornum Englendingum og nýríkum Könum.
Blahh, ég er allaveganna endanlega búin að sannfærast að VG sé eini flokkurinn sem ég geti hugsað mér að kjósa. Ekki skaðar að ég hef verið aðdáandi Ögmunds frá því að ég var grunnskólanemi.

fimmtudagur, nóvember 16, 2006
Þá er þessi vika senn á enda. Mér leiðist þetta endalausa gnauð í vindinum. Það er svo niðurdrepandi. Ég eyddi tveimur kvöldum í að leira karla og komst svo að því að það er lítill munur á þeim og einhverju drasli í Tiger. Svei, alltaf þarf ég að missa móðinn við minnsta mótlæti. Fyrir utan það að hver sem er myndi vera ósammála Tiger samlíkingunni, nema ég náttúrulega, ég myndi vera sammála mér.
Ég veit að það er ekkert frumlegt að tala um veðrið en guð almáttugur hvað það er kalt. Ég las um pólska stelpu sem flutti bara til Karabíahafsins og borgar 17.000 krónur á mánuði fyrir leigu á einbýlishúsi við ströndina. ,, Vóah dúd.." hugsaði ég, ,, ..djöfull er maður heimskur að hanga á þessu frosna skeri."
Ekki þykir mér nú skrítið að helvíti í norrænni goðafræði, sé helkalt. Persónulega hefur mér aldrei þótt neitt sérstaklega óhugnalegt við heitt helvíti. Það hljómar nú bara notalega, álíka ógnvekjandi og arineldur og kakó. Ætli maður myndi hegða sér betur ef kalda helvítið hefði haldist í núgildandi ríkistrú. Ekki það að ég viti mikið um núgildandi ríkistrú. Er helvíti til í mótmælendatrú? Það er greinilegt, að hin skírða og fermda ég, hafi aldrei fylgst með í tímunum sem báru heitið Kristinfræði.

þriðjudagur, nóvember 14, 2006
Núna er ég andvaka. Klukkan er ellefu mínútur í sex og mér hefur ekki komið dúr á auga. Enn fremur veit ég ekki hvort ég eigi að mæta í vinnuna á eftir eða ekki.
Mútta kom í heimsókn fyrr í kvöld og bað mig um að falda gardínur og gera saum fyrir gardínustöng. Hún er ekki mikil hannyrðakona blessunin og neyðist því til þess að heimsækja Fúsa fúskara. Það er sko ég.
Allt sem ég kann er klastr og plástr og fúsk. Ég held að ég hafi ekki lært neitt verklegt almennilega alla mína ævi. Mér finnst erfitt að læra þegar fólk er að sýna mér eitthvað. Ég verð að prófa það sjálf og hingað til hef ég ekki mætt mörgum þolinmóðum kennurum.
Ein af mínum verstu handmenntaminningum er úr ellefu ára bekk.
Verkefnið hafði verið að búa til stuttbuxur. Mér var lífsins ómögulegt að skilja sniðagerð og saumavélar og klúðraði þar af leiðandi helvítis buxunum. (Þess má geta að ég var óskaplega metnaðargjarnt barn og það truflaði mig mjög mikið að saumar og leikfimi lækkuðu alltaf meðaleinkunnina mína..... ég þess má einnig geta að þetta leiddi til haturs á penum jazzballetstelpum sem hlógu kurteisislega á meðan þær saumuðu óaðfinnanlega í.)
En já.. þar sem mér tókst ekki að leysa buxnaverkefnið, brá ég á það ráð að láta eins og mig langaði meira í pils og hófst handa við að drulla saman einhvers konar flík.
Kennarinn skammaði mig harkalega af því að í raun og veru var þetta pils bara skálm og svo brjálaðist hún þegar ég bað um hjálp við pilsið mitt. Aldrei mun ég gleyma þessum risastóra kennararassi í svörtu rassafýluefnabuxunum þar sem hún stóð og snéri baki í mig fussandi og sveiandi. Ég hímdi fyrir aftan hana, grátandi, full af fallörvæntingu þar til óttinn breytist í logandi reiði og ég lét mig dreyma um að keyra nál á kaf í þessar spikuðu rasskinnar. Hmm.. ætli ég hafi verið yngri.. ég efast um að ég hafi bara verið í rassgatshæð þegar ég var ellefu ára enda ekki þekkt fyrir að vera lágvaxið barn.
Fórnarlambssaga dagsins var í boði Eimskips.
,, Eimskip, flytur ljót saumaefni frá þriðja heiminum til allra grunnskóla Reykjavíkur."
Mikið væri nú gaman að fara í gamla skólann minn og gá hvort að þau séu ennþá með lager af þessum efnum. Ég man eftir einu sem var með munstri sem leit út eins og veggur með neonlituðu veggjakroti.
Aríaprinsinn keypti sér svoleiðis munstrað veski í Góða Hirðinum um daginn. Ég fékk flashback, henti mér á gólfið í fósturstellinguna og muldraði: ,, Fyrirgefðu Sigrún saumakennari, fyrirgefðu mér."
Nam veterans eiga ekkert í fólk sem gekk í gegnum grunnskóla í Breiðholti.

mánudagur, nóvember 13, 2006
Úff lalalala. Vikan hefur verið mér erfið. Ég er þreytt lítið hænsn. Sjö næturvinnuvaktir í röð hahahaha arrrgggh...hvað var ég að pæla? Einn daginn mun ég gera ítarlega greinargerð sem mun bera titilinn: ,,Vinnumarkaðurinn og fólk á rangri hillu."
En það góða við að vera í næturvinnu er að það er einmitt tíminn sem sumir eiga auðveldast með að fá hugmyndir. Svo vel vill til að ég er ein af þeim.
Í þessari viku er ég búin að semja heila barnabókaseríu . Á morgun hefst svo vinnan við að koma þessu öllu skipulega á blað. Bókaflokkurinn heitir ,, Feðgarnir". Ég er nú reyndar bara að spauga. Bækurnar hafa ekki fengið neitt nafn ennþá.
Þegar ég ofkeyri mig, á ég það til að verða dáldið rugluð og veruleikafirrt. Að vísu hefur mér oftar en ekki verið tilkynnt að dags daglega sé ég ekki með hefðbundnar skoðanir og ekki alltaf að hegða mér mjög eðlilega. Þannig að ég gef mér að þegar mér finnst ég vera veruleikafirrt, þá sé eitthvað mikið að.
Nema hvað, á fimmtudagskvöldið fór ég í sund. Skyndilega fannst mér eitthvað svo skelfilega undarlegt að vera að synda fram og til baka með helling af ókunnugu hálfnöktu fólki, í flísalagðri, upplýstri holu , fullri af klórvatni. Á endanum komst ég yfir þetta og gat synt án þess að vera alltaf að stoppa og líta í kringum mig og furða mig á því af hverju ég væri ekki bara heima hjá mér. Ja... þegar ég hugsa mig betur um þá held ég að þessi upplifun sé meira í ætt við að raunveruleikasjokk heldur en firringu. Eða bara síðbúið menningarsjokk.
Núna er ég að kljást við eitt það leiðinlegasta vítistól sem fyrirfinnst á þessari guðsvoluðu jörð: Skannann í vinnunni minni. Ó hve heitt ég hata hann.
Núna er ég á síðasta vinnudegi í þessari viku og þá tekur við vikufrí. Í fríinu væri mjög sniðugt af mér að skrá mig á eitthvað námskeið í skipulögðu ofbeldi á borð við íþróttir. Ef ég sit mikið við tölvu og þarf að endurtaka einhvern verknað þá safnast bara upp hjá mér einhver gífurleg ofbeldishneigð.
Þessi áðurnefnda hneigð mín náði hámarki á föstudaginn þar sem ég sat í uppi í Háskóla Íslands í alþjóðlegu enskuprófi.
Erkiflónið ég ákvað að fara illa sofin og óundirbúin í próf sem kostaði 10.000 krónur. Eftir því sem á leið próftímann langaði mig meira og meira til þess að ráðast á einhvern og rífa í hálsmálið á honumog tryllast og æpa: ,, HVAÐ ERUM VIÐ AÐ GERA HÉRNA??? SÉRÐU EKKI AÐ ÞAU ERU AÐ HAFA OKKUR AÐ FÍFLUM?? VIÐ KUNNUM ALVEG ENSKU!!! AF HVERJU ER VERIÐ AÐ GRILLA SVONA Í MANNI??"
Á meðan á ópunum stæði myndi ég svo hrista manneskjuna fyrir framan mig þangað til að útlínur hennar myndu mást út.
Mannkyninu til happs er ég ein af þeim sem heldur sig oftast réttu megin við landamæralínuna á milli þess geðveika og geðfríska. Þegar ég segi ,, heldur sig" á ég við að ég er réttu megin en held ekki að ég sé það. Já... eh... æi vonum bara það besta.
Ég veit ekki hvort ég náði prófinu vegna þess að mestan hluta tímans sat ég þarna eins og glápti á tölvuna eins og naut á nývirki, sökum herfilegs áunnins athyglisbrests. Ég verð að fara að ná mér í greiningu eða eitthvað. Þetta er ekki eðlilegt einbeitingarvandamál.
Ef ég er að lesa texta sem er ekki beinlínis tengdur mínu áhugasviði, fjarar athyglisgáfa mín út.
Til að mynda, ef einhver tæki nú upp á því að lesa fyrir mig upp úr Viðskiptablaðinu og spyrja mig svo spurninga eftir lesturinn, er bókað að ég myndi ekki geta rifjað upp neitt sem viðkomandi hefði lesið fyrir mig.
Nema kannski eitthvað í ætt við: ,, Óvenjulega mikil aukning á sölu teiknimyndasagna í Noregi" eða: ,,Japönsk vélmenni innkölluð sökum forritunargalla sem framkallar morðfýsn."
Hvað er með þessar játningar á internetinu hjá mér? Þetta er mun skrítnara fyrirbæri en t.d. almenningssundlaugar. Pehh.. ég ætla að snúa mér að einhverju leiðinlegu eins og að skanna.

fimmtudagur, nóvember 09, 2006
Hvenær ætlar löggan að finna þessa bévuðu nauðgara?
Ég held reyndar að núna séu ,,feðgarnir", (en það kalla ég nauðgarana, vinum mínum til mikillar armæðu) búnir að skipta um starfsvettvang og stundi nú íkveikjur í gríð og erg.
Mér finnst að lögreglan eigi að gefa öllum konum brúsa með neonlituðu lakkspreyi. Þá er hægt að merkja þá, finna, hengja, brenna og skíta á.
Veikir menn my ass. Nauðgara, níðinga og morðingja ætti að hýða á Lækjatorgi og að eftir það ætti að láta þá drekka vatn úr tjörninni. Þetta fólk er búið að segja af sér sem manneskjur og núna er ég orðin brjáluð bara af því að hugsa um þetta. Ég nenni ekki að vera umburðarlynd gagnvart svona fólki.
Ég er dauðhrædd að labba um á kvöldin og mér finnst vegið að frelsi mínu. Mig langar í piparsprey í jólagjöf.

þriðjudagur, nóvember 07, 2006
Hahahaha, velkomin til Maraþoníu.
Íbúafjöldi: 1
Loftslag: Manískt/Depressíft.
Æi heyrðu klukkan er að verða tólf. Ég verð að fara í Hagkaup og skófla bakteríusýktu kolvetni í plastbakka. Síðan mun ég rúlla skítugu límbandi utan um bakkann og hlaupa aftur hingað.
Í dauðans ofboði mun ég svo misbjóða meltingarfærum mínum með illa samsettu mauki. Allt þetta mun verða framkvæmt á innan við þremur kortérum.
Svo við höldum nú áfram með þrjú kortér þá svaf ég einmitt í 45 mínútur í nótt. Ég er fegin að hafa ekki verið vopnuð á Hlemmi í morgun. Einhver höfuð hefðu fokið þegar ég missti af þriðja strætóinum í röð sökum eigin eftirtektarleysis.
MAT NÚNA!! BÆ

fimmtudagur, nóvember 02, 2006
ahhahá já. Núna er ég í fimm vinnum. Hraðbraut, Fjölmiðlavaktin, HittHúsið, Snuðra og Tuðra og Stundin okkar. Fyrir utan það er ég í tveimur hljómsveitum.
Núna langar mig bara að hanga og sitja og sitja og hanga. Helst með; kolsýrðan sykraðan vökva, msg saltaðar kartöflumjölsflögur, kemískan lakkrís og eitthvað klístrað í poka, fyrir framan mig.
Í gær fór ég í sweat. Ég ætla ekki að ajfds´lkfjæghasædjfadsligja jaggggga andsetin.

þriðjudagur, október 24, 2006
Mér er skapi næst að hrinda af stað herferðinni: Auðunn Blöndal úr sviðsljósinu.
Ég veit að ég þarf ekki að sjá þáttinn hans og ég vil taka það fram að ég horfi ekki á hann. Það þyrfti einhvers konar Clockwork Orange pyntingaraðferð til þess. Engu að síður hef ég ekki sloppið við auglýsingar sem kynna forheimskandi hermþáttinn ,, Tekinn!".
Það ætti að taka þennan mann og láta gigtveika manneskju plokka hvert eitt og einasta hár úr andlitinu á honum. Þá er ég auðvitað bæði að tala um unibrowið og fáránlega þéttu skeggrótina.
Jább ok, þá er það frá. Seinna mun ég fjalla ítarlega um hvers vegna ég legg fæð á Auðunn og Ashton Kutcher. Fyrst þarf ég að vísu að kafa djúpt í sálarfylgsnum mínum. Þetta hatur er einkennilega djúpstætt og flókið.

sunnudagur, október 22, 2006
Veii, airwaves er búið og ég er ennþá með hár á hausnum, ennþá reyklaus, ekki þunn og hef hingað til sloppið við að vera grýtt á Lækjatorgi af reiðum tónleikagestum.
Þetta gekk bara afar vel. Það ein slæma við þetta var að einhver furðufugl á fremsta bekk var með kynfærin á sér út um buxnaklaufina allan tímann. Mig langaði að sparka í draslið en ákvað að gera það ekki. Ég nennti ekki að vera með tættar pungleifar á nýju stígvélunum mínum.
Ekki grunaði mig að það væri hægt að skemmta sér svona vel án þess að vera á eyrunum. Ég tók þá skynsamlegu ákvörðun að sleppa því að drekka yfir hátíðina og sé ekki eftir því. No siree.
Ég sá systur mína og mág og mágkonu og vinkonur mínar og vini úti í sal. Það gladdi mig svo mikið að núna er ég komin með með tár í augun bara af því að rifja það upp. Hnnngn...
Núna er ég að reyna að vekja aríaprinsinn. Að öllum líkindum mun ég leggjast svo lágt að berja sleif í pönnu og æpa: ,, EEEELDUR!"

fimmtudagur, október 19, 2006
Tætum og tryllum á Grensásveginum
Í morgun varð ég fyrir því skemmtilega atviki að rekast næstum því á bíl.
Ógnarstór jálkur var að leggja á bílastæðinu fyrir framan Tippaland-Kúkaland á Grensásveginum. Bílstjórinn var af kæruleysislegum toga og lagði afar glannalega. Ég hrökk í kút og stökk til hliðar. Í sömu andrá varð mér litið á bílnúmerið. Þar stóð: ROKK. Það munaði minnstu að manninum tækist að stimpla þetta orð á kálfann á mér.
Ég held að þetta sé bíllinn hans Sæma Rokk. Annar tvíburanna sem héldu á upprúlluðu teppi í auglýsingunni forðum dag.

Á laugardaginn erum við, þ.e.a.s. ég aríaprinsinn, sölumaðurinn og fyrrverandi, að fara að spila og tralla á Airwaves. Af þeim sökum og aðeins af þeim sökum, hef ég nælt mér í hálsbólgu. Vart þarf fram að taka að það er engum að kenna, hvorki mér né æðri máttarvöldum. Svona skítadrulluhelvíti gerist bara.
Auk þess væri bjánalegt að reyna að vera reið við sýkla og/eða bakteríur. Eitthvað segir mér að þess konar lífverur séu undanskildar í flokkuninni milli góðs og ills. Ekki það að t.d. óðir hundar flokkist undir evil. Hmmm ég held að setningarnar hér á undan falli undir það að vera hugsanalega séð, úti að skíta. Þegar heimspeki ber á góma þá er ég yfirleitt þar.... þ.e. úti að skíta. Reyndar er vandamálið meira að ég hef afar brenglaða sjálfsmynd og er ekki dómbær á það hvort ég sé úti að skíta eða ekki. Eh... já en takmark mitt er að vera búin að klístra sjálfsmyndinni saman rétt fyrir fertugsafmælið mitt. Best að vera raunsæ. Annað takmark fyrir fertugsafmælið: hætta að nota orðasambandið ,,úti að skíta."
Síðustu daga hef ég mikið spáð í karma, karmalöggum og karmabönkum. Öh..já sko ég ætlaði að fara að delera um karma en skyndilega varð ég óörugg á stafsetningunni og ákvað því að slá því upp í google eða googla það eins og þeim sem þykir ekki vænt um tungumálið sitt segja. Nema hvað, að öllum hroka slepptum, þá lenti ég á karmasíðunni hjá www.wikipedia.com og komst að því að ég veit greinilega lítið um málið. Þar af leiðandi hef ég ákveðið að blaðra um þetta mál síðar.
(Nokkru síðar).. Jámm eins og ég hélt, karmabankar eru bull og vitleysa. Samkvæmt alfræðibálknum Wikipedia þá hef ég ekki misskilið þetta. Eða eins og þar segir:
Karma is not about retribution, vengeance, punishment or reward. Karma simply deals with what is. The effects of all deeds actively create past, present and future experiences, thus making one responsible for one's own life, and the pain and joy it brings to others.
Ég ætla samt ekki að leiðrétta fólk þegar það segir: ,, Best að leggja inn hjá Karmabankanum." Af því að það er í rauninni ekki hægt. Það á ekki að gera góðverk til þess að geta tekið þau út síðar. Ástæðan fyrir því að ég ætla ekki að leiðrétta fólk er sú að mér finnast leiðréttarar vera leiðinlegir og svo held ég að fólk, sem hefur í alvörunni áhuga á Karma, geti bara flett því upp í hægðum sínum þegar tími gefst til.
bla bla bla, ég er farin í mat.

fimmtudagur, október 12, 2006
Nú held ég að það sé endanlega staðfest: Ég er bloggfíkill.
Afneitunarmengunin var gríðarlega þykk en nú sést loksins til sólar. Hér með faðma ég minn innri blogglúða.
Það er óskiljanlegt hvers vegna ég er sólgin í þetta athæfi. Ekki þykir mér nú skemmtilegt að skrifa dagbækur. Eða jú.. reyndar finnst mér það skemmtilegt en þegar ég les þær aftur eftir langan tíma, hríslast hrollur um mig.
Annað hvort þjáist ég af margföldum persónuleika eða þá að ég tek stórkostleg þroskastökk á hálfsárs fresti. Miðað við allt það sem ég hef hér og nú..nei ég meina séð og heyrt, finndist mér það fyrra líklegra. En..hvert var ég nú komin, jú merkilegt nokk, þá fæ ég ekki þessa tilfinningu þegar ég les gamalt blogg eftir sjálfa mig. Ég virðist halda mig á hallærismottunni þegar blogg er annars vegar. Já, ég vil taka það fram að þetta er að mínu mati. En ekki hvað?
Ég er nýbyrjuð í nýrri vinnu. Það er mjög fínt.
,, Að slæpast" er ekki hluti af starfslýsingunni en mig grunar að þau hafi bara gleymt að skrifa það. Ahhhh, ef einhver er góður í að finna auðveldar vinnur þá er það ég. Mér finnst algjör óþarfi að slíta út vöðvunum fyrir eitthvað fólk út í bæ.
Ég vann einu sinni með börnum og eftir þrjá mánuði, þegar ég hafði loksins tíma, leit ég í spegil og horfði í augun á Tarzan. Ég var búin að týna sex kílóum og orðin eins og leðurjakki af sólbruna og útiveru. Ég var komin með upphandleggsvöðva af barnaburði. Hárið á mér var upplitað og tætt og pokarnir undir augunum á mér voru á stærð við undirhökuna á manninum með skrítnu röddina sem gerir eitthvað sjálfstæðis-thingamabob fyrir bæjarfélagið Kópavog. Úff fjandinn.. hann heitir... æi af hverju ætti mér svo sem ekki að vera sama. En þetta var sem sagt langsóttasta líking í heimi.. segjum í hverfinu, bara til að vera örugg.
Eh.. og nú er ég búin að tapa þræðinum...bla bli... já erfið vina slæm, auðveld vinna veiii.
Ég er einmitt í vinnunni núna en er að fara heim. Hahahaha ég hlæ bara að fólki sem tekur að sér yfirvinnu. Til hvers? Til að kaupa meira bensín? Mig langar ekki einu sinni í bíl. Ég skilur ekki.. ég bara skilur ekki.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)