miðvikudagur, júní 04, 2008

Verði ljós.

Kæru félagar, ég er komin heim.

Heimkoma mín samanstendur af um það bil átta þúsund símtölum, loforðum og kaffihittingum. Núna er ég byrjuð að vinna hjá systur og mági á margrómuðum veitingastað þerira. Kvöldið í kvöld var hreinræktaður hryllingur og ég er verulega farin að íhuga að útrýma miðaldra konum. Nei, spaug. Þær eru fínar svo lengi sem þær hópa sig ekki saman. Ég og A.P. erum að þeytast á milli heimila og ég hlakka gífurlega mikið til að eignast almennilegt heimili. Ekki það að ég muni gera eitthvað merkilegt á því heimili. Mig langar bara að vita hvar ég muni höfði mínu halla næstu vikurnar. Djöfull er leigumarkaðurinn annars svívirðilegur. Það mætti halda að Reykjavík sé áhugaverðari borg en New York. Ekki skil ég neitt í fólki sem kemur héðan frá austur evrópu. Íbúðaverðið þar er fimmaurabrandari miðað við nauðungaruppboðin hér. Þess má geta að ég las nauðungaruppboð sem nauðgunaruppboð þar til ég var um það bil seytján vetra. Skekkt veruleika skyn mitt þarf því engan að undra.

Stundum minnir lífið mig á ljóðlínur eftir Stæla Steinarr.

og þó þú tapir það gerir ekkert til
það var víst vitlaust gefið

En þetta eru líklegast meðvirkasta ljóð sem ég veit um. Heyrðu já... ég er búin að drekka aðeins of mikið hvítavín. Strax farin að vitna í fokking ljóð. Djöfulsins Íslendingur getur maður verið.

laugardagur, maí 17, 2008

Trébert og fleira svona eitthvað.

Góðir hálsar. Mér til mikillar gleði er allt um garð gengið. Eða sko skólinn já. Áðan fór ég á inn á kerfið sem heitir myschool og tékkaði á einkunnunum mínum. Ég þjáist víst ekki af greindarskorti samkvæmt tölunum þar. Lokaverkefnið í leikfangaáfanganum var að documenta leikfangið.
A.P. hjálpaði mér svo mikið að það fossblæddi úr nefinu á honum. Grín, ég veit ekkert af hverju ég sagði þetta. En þessi indælisdrengur vakti með mér og tók upp og klippti og stóð sig eins og hetjan sem ég er víst ekki. Hér er það.





Þetta er hann trébert. Við gerðum líka vídeó sem er einhverskonar viðtal við mig sem lúðalegt gáfumenni. Það heitir "Inside Treebert" með undirtitlinum "an interview with a genius". Ég fattaði ekki hvað þetta var hellað fyrr en daginn eftir. Þá trúði ég því ekki að við höfðum í alvörunni sett þetta á netið. Ef einhver hefur áhuga á því að sjá það þá verður sá hinn sami að finna það.

Heldurðu ekki bara að foreldrar mínir séu búnir að hegða sér eins og englar. Ég hef bara ekkert um þau að segja. Í gær fórum við á Guggenheim og heimsóttum litlu Guggenheimana. Þeir voru hressir. Svo var líka sýning eftir kínverskan mann sem heitir..... öhhhh ég gæti gúglað það en heilinn minn verður að fá að spreyta sig ræfillinn...... Cai... Quong....We....nei ég man það ekki. Augnablik. Já sýningin hans Cai Guo Qiang. Jebbbb.


Kaffivélin er eitthvað að reyna að fá mig yfir til sín. Ég get svarið fyrir það að hún sagði nafnið mitt í alvörunni. Með draugalegri uppáhellingarröddu.
En hvað veit ég, sótugi minningaþjófurinn?

sunnudagur, maí 11, 2008

abbsakið

jæja þá er ég bara sest við tölvuna. Tveir dagar eftir af skólanum og ég á eftir að mála heilt málverk, prenta fimm myndir og gera eitt stykki vídeó.

Talandi um vídeó Ég var að föndra vídeó með Árna mæn.

Nennir einhver að segja mér hvernig á að láta youtube videó yfir á bloggið mitt. Ég hef ekki réttan litningafjölda fyrir þetta helvíti.

Núna er ég með gúlann fullan af jórturleðri. A.P.(aríaprinsinn mun heita þetta hér eftir. Ef þú ert með lélegt minni þá er núna rétti tíminn til þess að hripa þetta niður.) A.P. þreytist seint á því að tala um tyggjósiði mína.
,, Hvað ertu með mörg tyggjó uppí þér núna?" glymur í drengnum. ,, Tvö." lýg ég mjóróma og slefa út um annað munnvikið. ,, Ég trúi þér ekki" segir sjálfskipaði einkaspæjarinn.

Tyggjó er eins og popp fyrir mér. Eitt styk er glatað, tvö er ekkert spes, þrjú er jújú svosem í lagi, fjögur fínt, fimm styk ídeal og þar fram eftir götunum þar til ég get ekki lokað munninum.
Ég er að spá í að vaxa aldrei upp úr þessu. Mér finnst hvort eð er ekkert fullorðinslegt við það að maula á einhverju tyggigúmmíi í tíma og ótíma. Best að fara bara alla leið í þessu máli.

Fyrst ég er að ræða um það sem fullorðið er þá er skemmst frá því að segja að foreldrar vorir guðuðu hér á dyrnar fyrir ekki svo löngu síðan. Blessunin stukku svo upp í rútu í Kínahverfinu og munu ekki láta sjá sig hér fyrr en þann fjórtánda. Mamma fór í keng í leigubílnum á leiðinni frá flugvellinum. Bílstjórinn var glanni og svo ákvað hún að hann myndi nú örugglega ekki rata og tók hún sig því til og las upp öll götunöfnin í um það bil tvo kílómetra eins og það myndi hjálpa einhverjum í heiminum. Á meðan sat pabbi og ataðist í snertiskjánum sem var á bakhlið bílstjórasætisins.

Daginn eftir vaknaði ég klukkan níu. Þegar ég kom inn í stofu þá sátu gömlu hjónin fullklædd í sófanum og vildu fara. Guð má vita hversu lengi þau höfðu setið þarna.

Ég ætla að fara að undirbúa mig andlega fyrir endurkomu þeirra eða bara taka nógu mikið af sljóvgandi ofnæmislyfjum.

laugardagur, apríl 26, 2008

of næm


Já nú er vor í lofti og það þýðir bara eitt. Ónæmiskerfi mitt gerir uppreisn og líkami minn fer í varnarstöðu. Mig klæjar í nefið og augun og hálsinn og eyrun og húðina í andlitinu og ekki nóg með það þá lekur úr augunum á mér og saltvatnið úr augunum veldur sviða í andlitinu á mér. Ekki má gleyma hnerrunum. Ég hnerra um það bil fjórtán sinnum í röð á fimm mínútna fresti. Þetta samsull er eitt stórt áreiti og er ég því ansi skapstygg um þessar mundir. Ef ofnæminu myndu fylgja einhverjir ofurkraftar þá væri ég sáttari við fyrirkomulagið. Enn sem komið er hef ég ekki fundið neina jákvæða punkta, ég er bara að drepast úr þreytu og ergelsi. Á hverjum degi tek ég risastórar ofnæmistöflur og þær virðast ekki virka fullkomlega. Þetta er svo fáránlegt af því að ofnæmi er gjörsamlega tilgangslaust. Þetta er ekki sjúkdómur og gerir heldur ekki gagn. Ég sé þetta bara sem einhverja stæla. Æ hvað tilveran getur verið úldið drasl. Ef einhvern sárvantar manneskju til þess að vorkenna þá skal ég með glöðu geði taka það að mér að þiggja vorkunnina.

Nú hefi ég í hyggju að birta ofnæmislistann minn í heild sinni:

Frjókorn
Gras
Birkitré
Epli
Plómur
Perur
Kirsuber
Kiwi
Valhnetur
Heslihnetur
Kastaníuhnetur
Möndlur
Hveiti
Sinnep
Þorskur
Hundar

Stuð.

Jæja, en hér koma jákvæðar fréttir. Við þurfum ekki að borga leigu fyrir maí. Þar spara ég mér 103.000 krónur. Auk þess er ég að leggja lokahönd á teikningar fyrir Námsgagnastofnun. Þá get ég einbeitt mér að því að klára lokaverkefnin fyrir skólann. Talandi um skólann, þrjár vikur eftir. Júhúú. Djöfull er ég fegin.

miðvikudagur, apríl 23, 2008

tammtítei

Hér sit ég og teikna eins og sturluð kona. Talandi um sturlað, fjandans vottarnir komu aftur í dag. Í þetta skiptið voru þau þrjú. Sem betur fer er ég með greind á við meðalstórt spendýr já eða rottu og hafði þess vegna að vit á því að njósna í gegnum gægjugatið til að sjá hver væri að koma. Bölvaðir dónarnir hringdu bjöllunni tvisvar. Þarna stóðu þau í hnapp með bæklingana sína, konan síðan um daginn og tveir litlir vinir hennar. Ég lokaði gægjugatinu hljóðlega og læddist frá hurðinni. Þegar ég fór út stuttu síðar, voru þau búin að troða bækling milli stafs og hurðar. Mikið finnast mér svona óumbeðin trúboð leiðinleg. Það eina næstum því jákvæða við þetta, og kannski hef ég minnst á það áður, er að þau eru í alvörunni að reyna að bjarga manni. Ég skil samt ekki alveg hvað vottarnir eru að bauka með að banka upp á og reyna að frelsa fólk. Eftir því sem ég best veit trúa þau því að guð sé búinn að ákveða fyrirfram hverjir komast til himna, eitthvað um 144.000 manns auk þess eru þau ekki með neitt helvíti þannig að þetta er fullkomin ráðgáta fyrir mér. Mig persónulega langar ekki að lifa að eilífu með 143.999 vottum svo ég vona að þau hafi ekki rétt fyrir sér. Ef þau hafa rétt fyrir sér eftir allt saman, þá vona ég að ég hafi ekki lent í þessu guðsúrtaki. Ég var að enda við að fletta þessu upp og trúðurinn sem stendur fyrir þessari vitleysu heitir Charles Taze Russel. Kannski ég stríði vottunum og skrifi nafnið hans á bjölluna hjá mér. Svo læt ég lak yfir höfuðið þegar þau koma, lími yfirvaraskegg á lakið og þykist vera afturgangan hans Russels. Góð hugmynd. Jafn góð og lazershow í boði Íslandsbanka.

Um daginn fór ég á tónleika með hljómsveitinni Mini Kiss, þetta eru dvergar sem covera kiss lög. Aulinn sem ég er, gleymdi myndavél og því var þessi menningalegi viðburður ekki heimildaður af minni hálfu. Dvergarnir voru í fullum Kiss skrúða og Mini Gene Simmons var með tunguna út um allt. Ég fór með Haraldi og Jóhannesi. Við Halli vorum svo spennt að við skríktum á víxl.
Eftir að dvergarnir höfðu trítlað af sviðinu, mætti hljómsveitin Tragedy. Þeir eru metal hljómsveit sem spilar bara Bee Gees.
Á sömu stundu var gáfaði vinur okkar Eiríkur staddur á experimental jazz fusion tónleikum á smekklegum stað. Gjáin á milli okkar breikkaði eftir þetta kvöld og ég er ekki frá því að daginn eftir hafi Eiríkur litið á mig með fyrirlitningarsvip er hann las langa grein í New York Times og drakk makkíatóinn sinn. Ég yppti bara öxlum, drakk kokteilsósuna mína og fletti í slúðurblaði.

þriðjudagur, apríl 15, 2008

Barn með andlitshár.

Já ég skal segja ykkur það. Við fórum í kvöldgöngutúr og viti menn, í götunni lá manneskja. Skyndilega spratt upp drengur, um það bil ellefu eða tólf ára, sem hafði bara verið að grínast í vini sínum. Þegar betur var að gáð þá var ungi grínarinn með skegg. Það þótt mér mun fyndnara en ,,liggja í götunni" djókið.

Mandag

Mandag mandag, sa god med mig.

Ég var að koma úr skólanum. Frægur teiknimyndasöguhöfundur, Kim Deitch, var að leysa kennarann minn af. Því miður gat ég ekki nýtt mér ótæmandi viskubrunn gamla refsins því hann var svo skelfilega andfúll. Hann var eitthvað að skoða dótið mitt og tala og ég kúgaðist lítillega. Sem betur fer er ég svo mikil dama að ég gat kúgast án þess að vera með læti.

En jú og jemm, ég sat bara og teiknaði og lét lítið á mér bera. Ég gat ekki hugsað mér að finna þessa lykt aftur. Lyktin var svona dáldið eins og streptókokkalykt ef einhver kannast við þá ýldufýlu.

Þennan fnyk hef ég ekki fundið síðan smiðurinn með streptókokkana reyndi við mig í strætó þarna um árið. Svo þegar hann bað mig um símanúmerið mitt átti ég erfitt með að hemja undrun mína. Ég snéri nefnilega höfðinu að glugganum alla ferðina og svaraði í einsatkvæðisorðum og spurði engra spurninga. Furðulega vanhæfur í því að meta andstæður greyið. Kannski var hann bara með hita eða eitthvað vanheill á geði.

Eiginmaður minn er að skoða skipaferðir á netinu. Það væri nú bara gaman að sigla heim.

laugardagur, apríl 12, 2008

dæ

ÍÍííííkh. Heili minn er að sjóða upp úr kúpu. Í dag er ég búin að prenta sex ætingarmyndir og klára eitt stykki portrettmálverk og þarf víst að sætta mig við það að vinna og vinna alla helgina.
Lappirnar á mér eru búnar að sofna um það bil, tre million sinnum vegna þess að ég sit eins og kjáni þegar ég er að vinna.

Núna ligg ég í sófanum með prentsvertu undir nöglunum, plástur á fingrinum og belginn fullan af osti og maískornum eins og hvað, jú eins og grís eða gríslingur.
Aríaprinsinn... sem minnir mig á það, ég þarf að finna nýtt nafn á hann. En já sumsugt, herra Hávær..hehehe, mikið er ég fyndin lítil ófreskja. Drengurinn er meira að vera tillitsamur um þessar mundir og situr því á móti mér með heyrnatól. Ætli hann sé ekki að búa til einhverja kakófóníska kransaköku. En ég gæti ómögulega vitað það því hér ríkir þögn.

Í gærkveldi fórum við á tónleika með gesti vorum herra Trumpington. Hann ásamt indælli stúlku frá Hol-landi spila dularfulla tónlist á undarlegum stöðum. Áður en við mættum á staðinn var ég að sjálfsögðu búin að snúa upplýsingunum, sem mér voru gefnar af sjálfum Trumpington, á hvolf og var allt kvöldið að undirbúa mig að hlýða á hörmulega Seinfeld slap bassa drullu. Svo reyndist alls ekki vera og ég var fegin og þetta var fallegt.

Um daginn var ég að ræða um broskarla við Hallarmúla. Hann heldur því fram að broskarla séu mikilvægir í samtölum á netinu, kommentum og þannig löguðu. Ég skil argúmentið en ég er bara rétt svo byrjuð að nota upphrópunarmerki. Mér hefur nefnilega alltaf fundist furðulegt að vera með einhverjar upphrópanir í texta! En kannski hef ég rangt fyrir mér og lífið er betra með :) og !

uppáhaldsorðin mín úr þessari bloggfærslu eru; ligg, grís, argúment og slapbassadrulla

Bæ

laugardagur, apríl 05, 2008

Lalalalaaa

Ég er að fara í barnasturtu eða baby shower. Það var dáldið skemmtilegt að fara í barnafatabúð og kaupa lítil föt. Ætli ég verði ekki bara í barnabúðum þegar ég kem heim fyrst fólk er að fjölga sér svona mikið í kreppunni. Sverrir Stormsker er ábyggilega búinn að semja lag um þetta.

En gaskarlinn kom og fór og núna getum við farið í bað. Ekki það að við séum búin að vera drullug í mánuð. Bara svona semí drullug. Við fórum í YMCA, böðuðum okkur heima hjá öðrum og svo voru nokkur kattaþvotts session með köldu vatni í vaskinum inni á baði. Áðan sat ég í garði með yndislegri frænku minni. Ég var að reyna að teikna hana en það var ekki alveg nógu vel heppnað hjá mér svo ég tók ljósmyndir og ætla að reyna að gera smekkleg málverk.

föstudagur, apríl 04, 2008

4.apríl 2008 taka tvö


Nanna reynir að gera Huggó heima hjá sér.

Maníski safnarinn.


Þetta mun vera hluti af smádótasafni mínu. Frá því að ég man eftir mér þá hef ég alltaf fallið í stafi ef ég rekst á smáa hluti. Um daginn fékk ég verkefni í skólanum þar sem við áttum að gera teiknimyndasögu um týndan hlut. Ég gerði endurminningasögu um lukkutröll er ég eitt sinn glataði.

Þegar ég var barn átti ég bleikhært tröll sem hét Júmbi í höfuðið á birninum úr Lukku Láka bókinni Rangláti dómarinn. Sá Júmbi var drykkfelldur, latur og grimmur, minn var frekar edrú og næs. En sumsé, ég bjó til íbúð í gluggasyllu handa tröllinu mínu. Júmbi átti gullrúm og bleikan fataskáp. Dag einn týndist fjandans trölli. Vesalings geðheilsa mín varð aldrei söm. Ég fékk Júmba á heilann og til að bæta upp fyrir tapið fóru ósýnileg tröll að birtast í herbergi mínu. Þau gengu undir samheitinu Litlu tröllin. Fjölskylda mín tók fullan þátt í tröllaævintýrinu. ,, Hvað segja litlu tröllin í dag?" spurði mamma og pabbi minn teiknaði hurð og glugga á vegginn inni í eldhúsi. Fyrir utan dyrnar á heimili tröllanna, lét ég litla matarbita á barbíleirtau. Suma daga héldum við, ég og öll tröllin, risastórar skrúðgöngur í stofunni.
Eina manneskjan, sem fílaði ekki ósýnilega herinn minn, var frænka mín og jafnaldri. ,, Litlu tröllin eru ekki til í alvörunni!" skrækti frænksnið. Eitt sinn, þar sem við sátum við eldhúsborðið, benti frænka á borðið og spurði: ,, Er þetta tröll?". ,, Já" svaraði ég, ánægð með sýndan áhuga. Frænki tók sig til og lamdi með litla hnefanum sínum á borðið. Ég man ekki eftirstöðvar þessa atburðar en yfirleitt enduðu samskipti okkar á því að ég barði, beit eða öskraði á frænku mína. Hún missti sjaldan stjórn á skapi sínu enda var hún mun lúmskara og gáfaðra barn heldur en ég.

Nú verður hún líklega brjáluð af því að henni er ekki vel við þegar ég fer að segja sögur þar sem ég kem út eins og vinalegur einfeldningur og hún eins og evil mastermind. hehehe

4.apríl 2008


Edda var bitin af sporðdreka í Kolaportinu.

fimmtudagur, apríl 03, 2008

Nýtt ekki beinlínis grín.


Magga feita skoðar list.

Gamalt grín.




einu sinni var ég að dunda mér við þetta. Það var stuð. Núna dettur mér ekkert grín í hug. Ég er reyndar búin að teikna eina mynd en hún er ekki beinlínis grínmynd. Henni verður uplódað innan tíðar.

Haltu áfram að trukka.

Snúlli Snær er duglegur að fylgjast með fréttum. Þegar ég fer á fætur gellur í honum: ,, Krónan er komin upp í 75 krónur!" eða ,, Evrópubandalagið hefur ákveðið að sökkva Íslandi í sæ fyrir að vera okurbúlla með lélegt veður og glatað attitude gagnvart miðbænum sínum." Í morgun var hann að sýna mér fréttir af mótmælum vörubílstjóra. Ég varð alveg snar þegar ég sá hvað allir eru fúlir út af mótmælunum. Þetta er í ykkar þágu aularnir ykkar. Hvað með það þó þið komist ekki til Keflavíkur?? Það nennir aldrei neinn að mótmæla og núna loksins þegar flutningabílstjórar gera eitthvað þá eru allir bara að væla og vera aular." Fréttastofan á RÚV var ekkert að hjálpa til þegar að þeir sýndu bara neikvæða hlutann: Reitt fólk að missa af flugi til Ibiza.

Auðvitað myndu þeir hleypa sjúkrabílum í gegn. Þetta er ekki disney mynd þar sem vörubílstjórarnir eru hreinræktuð illmenni, brúnklæddir með sixpensara og svífast einskis eins og í dalmatíuhundamyndinni þetta eru venjulegir náungar sem eru ábyggilega mjög næs en eru bara komnir með ógeð á gerpunum sem reka þetta land.

Þetta er ekki þeim að kenna heldu olíufélugunum, ríkisstjórninni, olíusvolgrandi bandaríkjunum og aulanum sem fannst sniðugt að knúa ökutæki með risaeðlukúk.

Áfram trukkabílstjórar. Ég myndi skrifa þetta á bolinn minn og standa við Reykjanesbrautina ef ég væri ekki að spóka mig í Ameríku og drekka olíu úr martini glasi.

En já hér er að koma vor og í gær stóð ég eins og væminn auli og horfði á tré með bleikum blómum og brosti. Svo fór ég heim, rotaðist og vaknaði óvart klukkan 10 um kvöld. Jaaá.

þriðjudagur, apríl 01, 2008

egg

Núna er ég paranoid af því að það svarar enginn emailunum mínum. Er ég með svona andfúlt email?

Vinnuherbergi og örlítið baktal um skólafélaga.



Þetta er minn hluti af heimatilbúnu skrifstofunni okkar. Eins og sjá má þá er ég skipulögð og snyrtileg.

Ég var að koma úr tíma. Mjög skemmtilegur tími atarna en 85 prósentuhlutar nemendanna eru ljótu vitleysingarnir. Tökum Frank sem dæmi. Hann situr þarna með helvítis húfuna sína ofan á albínóahárinu sínu og teiknar myndir af konum í Borat-sundbolum. Þær eru allar með risabrjóst og sítt hár og allt er einhvern veginn þakið manga slikju. Hann er nú ekki einn um mangaslikjuna hún liggur hérna yfir öllu. Það er eitthvað asíuæði í gangi. Æi mér finnst þetta bara jafn lélegt og hvítt fólk með dredda. En aftur að Frank eða Frankie sem er gæluyrðið yfir þetta draslmenni. Ef hann væri ekki svona latur þá væri mér sama þótt hann myndi sýna þennan viðbjóð á Moma. Auk þess er það ekki strákfjandanum að kenna að kennararnir flestir eyða jafn miklum tíma í að tala um myndir sem eru augljóslega gerðar í skröltandi lest á þremur mínútum og myndir sem tóku marga daga í vinnslu. Böhhh, hvenær kemur maturinn minn?

mánudagur, mars 31, 2008

Hans og Greta



Jæja búin að laga þetta. Ég þakka Jónínu aðstoðina við að leysa myndsnúningavandamálið. En þetta eru sem sagt Hanzel og Gretel. Myndin er frekar stór í raun og veru. Lófinn á Gretu er svipað stór og lófi fimm ára barns. OK bæ.

Tuskudýr







Þar sem Kristín hreifst svo af Kubbi og frændum hans, þá ákvað ég bara að demba tuskudýrahrúgunni minni hérna inn. Þetta eru bæði skólaverkefni og svo eitthvað sem ég hef verið að dunda í tilgangsleysi mínu.

sunnudagur, mars 30, 2008

Meiri hattar.



Hvernig snýr maður þessu helvíti? En já þarna er ég með helvítis hattinn. Ef ég væri hrifin af Vestmannaeyjum og fylleríi með Árna Johnsen þá myndi ég ábyggilega kaupa mér hattinn.

Spurning hvort ég geri það að prinsipp máli að fara aldrei til Vestmannaeyja fyrst ég er ekki ennþá búin að fara þangað.