fimmtudagur, mars 22, 2007

Já, nú sit ég og borða hina dularfullu amerísku fæðu Pop Tarts.

Ég tróð þessu í brauðristina/ristavélina, beið andartak og svo þeyttust þessar dúllur upp á yfirborðið og inn í skolt minn.

Sá aríski brá sér nefnilega til fyrirheitna landsins og kom til baka með rotvarnar- og litarefna sprengjur. Innyfli mín eru nú varin um ókomna tíð og ekki sakar að þau eru þrútin og marglituð eins og regnbogi úr kjöti.

Í gær var ég að hlusta á Við og við. Þetta er platan hennar Ólafar Arnalds. Það er langt síðan ég hef orðið svona hrifin. Platan er stöðugt á fóninum og hér hef ég gengið um gólf hálf snöktandi hálf hlæjandi eins og miðaldra kona með tíðahvörf.

Annars er það að frétta að nú eru Músíktilraunir í fullum gangi og þar er ég að vinna. Sko vinna sem starfsmaður ekki sigurvegari. Þessi ósköp hef ég nú kallað yfir mig þrjú ár í röð. Miðað við almennt óþol mitt á flestum hárlausum tvífættum spendýrum þá er þetta skemmtun hin mesta.

Hárlausu, tvífættu spendýrin sem keppa í þessari íþrótt eru nefnilega hið bærilegasta fólk. Þær sem eru með tíðahvörf ættu alveg að kannast við þessa keppni þar sem hún hefur verið í gangi í um tuttugu ár. Ef ekki þá voru þær dáldið miklir lúðar.

Ég veit ekki af hverju ég er að ráðast á miðaldra konur í dag. Kannski er það vegna þess að ég er að vinna með unglingum og er meðvirk. OMG, lol nei glætan þú getur bara fokkað þér með það. HEY GAUR! Fokking mamma þín er með tíðahvörf.

Æi ég ætti kannski bara að vinna á elliheimili á meðan ég er að standa í þessu bloggveseni.

Jæja, bless.

þriðjudagur, mars 13, 2007

Í dag er ég að fara í Pilates með systur minn. Á morgun er ég að fara í Langintes með mömmu. Ekki á morgun heldur hinn er ég að fara í Fúsintes með ömmu.

Að mér sækir Baðhúskvíði. Líkamsræktarstöðvar hafa þau áhrif á mig að mér líður eins og afskræmdu svíni. Núna er ég tuttugu og átta vetra en get samt sem áður ekki hrist af mér svona lúðalega sjálfsmynd. Ótrúlegt alveg hreint. Það verður að segjast að ég hef orðið fyrir gífurlegum vonbrigðum með fullorðnu útgáfuna af mér.

Ennþá þjáist ég af myrkfælni. Aríaprinsinn er í Texas og ég sef með ljósið kveikt. Ég veit nú reyndar ekki við hverju ég bjóst en ég hélt að fólk á mínum aldri væri skynsamara. Fólk á mínum aldrei.

Ennþá bora ég í nefið.

Ennþá borða ég Cocoa Puffs.

Ennþá fresta ég hlutum og horfi á teiknimyndir í staðinn.

Ennþá verð ég móðguð ef einhver bíður mér ekki í afmælið sitt.


Systir mín Pilates er einnig grasekkja um þessar mundir. Ég fór með henni og afkvæmum í sund í gær. Mér til ánægju var ég alls ekki afskræmdasta spendýrið. Til að mynda sá ég mann.... nú verð ég að vara fólk við ef það er viðkvæmt fyrir andstyggilegheitum..... já humm mann ég sá sem var mjög undarlega loðinn. Upphandleggirnir á honum voru eins og ef sminkari hjá áhugaleikfélagi hefði reynt að gera hann loðinn með því að á hann afklippt hár. Þetta leit út eins og grín úr Police Academy ef einhver man eftir því fallega sorpi.

Ég og systir mín grínuðust með að hann væri dúkalagningamaður sem hefði farið í klippingu ber að ofan.

Nei þetta var nú kannski ekki svo andstyggilegt.

Bæ

mánudagur, mars 12, 2007

Fyrir tveimur árum var ég að vinna á leikjanámskeiði. Einn samstarfsmanna minna var mjög hugmyndaríkur og óskaplega góður í múgsefjun barna. Þetta gerði það að verkum að þegar við skiptum börnunum í hópa þá þurfti ekki að mata hann með fyrirmælum heldur var bara hægt að rétta honum lúku af börnum og tilkynna að þetta væri hans hópur.
Eitt sinn kom ég að hópnum hans þar sem börnin sátu þögul í hring í lótusstellingunni og tilkynntu mér að þau væru í jóga. Þess má geta að samstarfsmaður minn kunni ekki jóga, hann bullaði bara og börnin skemmtu sér konunglega.

Þegar kom að strætóferðum var þetta vandamál þar sem drengnum fannst fyndið að fá öll börnin til að öskra: ,, WHO LET THE DOGS OUT, WHO, WHO WHO WHO???!!" um það bil ellefuþúsund sinnum. Já eða HEY BALÚBBA og fleiri smelli. Þegar hann komst svo að því að ég væri með ofnæmi fyrir Who let the dogs out?, æstust leikar og hver strætóferð varð sem ferðalag í gegnum smáþarma Lúsifers.

Dag einn mætti drengsi í vinnuna í bol með mynd af erni Sjálfstæðisflokksins. Ég fékk tár í augun, hland fyrir hjartað og æpti: ,,HVAÐ!". Hann flissaði bara og talaði eins og þetta gæti komið fyrir hvern sem er. Síðan þá hef ég séð myndir af honum í blöðunum að kreista spaðana á misjöfnum sauð í flokksfénu. Mig grunar að seinna meir muni þessi fallni félagi minn verða áróðursstjóri fyrir eitthvað illmenni.

Við erum leiðitamir aumingjar og ég sé mikla möguleika á að hér verði komið á einræði. Hverjir ættu svo sem að mótmæla aðrir en oflaunuðu grísirnir á Alþingi.

föstudagur, mars 09, 2007

Eins og strúturinn, sem grefur höfuðið í sandinn, hef ég grafið höfuð mitt í snakkpoka. Þegar ég verð stressuð eða niðurdregin eða andlaus þá get ég stundum ekkert annað gert en að úða í mig óhollustu.

Þegar ég finn enga orsök fyrir niðurtúrum mínum þá hugsa ég alltaf að það hljóti nú bara að vera lægð. Núna vildi ég óska þess að einhver sæti á móti mér því þá gæti ég sagt: ,, Það hlýtur nú bara að vera lægð" með fullan munninn af snakki og lakki.. lakkrís meina ég.
Ég er að kafna úr sykurmagnsoverloadi. Ætli ég verði ekki blind á endanum.

Tvíburasysturnar frænkur mínar sömdu lag þegar við voru börn. Lagið heitir ,,Allir eru svo vondir við mig" og textinn er:

Allir eru svo vondir
vondir við miiiiiiig
Allir eru svo vondir
vondir við mig

Þegar fórnarlambshluti persónu minnar tekur yfir þá söngla ég þetta lag í huganum til að kæta mig.

fimmtudagur, mars 01, 2007

Núna er ég í þann mund að þrauka allra síðustu næturvaktina mína. Í dag leið mér hálf illa og ætlaði að hringja og tilkynna veikindi mín. Viti menn, ég hringdi, guggnaði og spurði svo yfirmann minn hvernig hún hefði það. Ég vissi ekki hvert ég ætlaði og inni í höfði mér æpti rödd sem sagði að ég væri aulabárður og ætti skilið að fá ræpu. Svo lagði ég á og ráfaði guggin inn í stofu. Ætli yfirmaður minn hafi ekki líka hrist hausinn og velt því fyrir sér hvers vegna ég hefði skyndilega gerst svo almennileg að hringja í hana og spyrja um almenna líðan.

Það er mjög erfitt að athafna sig ef maður er ekki einu sinni með sjálfum sér í liði.

Hmmm já síðustu helgi heyrði ég í fyrsta skipti geisladiskinn með Doktor Minister og Mister Hamster. Vinafólk okkar notaði þennan tiltekna hljómdisk sem bakgrunnstónlist í matarboði. Aríaprinsinn spurði svo hvað þetta væri og húsráðendur gáfu það upp. Ekki bjóst ég við að það væri hægt að borða við þessa tónlist. En ég hafði sumsé látið fjölmiðla koma gjörsamlega í veg fyrir að ég myndi nokkurn tímann hlusta á þá kátu pilta að eigin frumkvæði. Ég þarf að hlusta á þetta aftur til að fullvissa mig um hvort þetta sé góð músík eða ekki. Nógu erfitt hefur mér þótt að kyngja nafninu Doktor Mister.

Eitt af sambýlisfólki mínu tók sig til á dögunum og samdi söngleik um fóstureyðingar. Allt heila klabbið verður frumflutt í vikunni. Á frumsýningunni munu svo gráir hártoppar fjúka, gangráðar stöðvast og gervitennur hrökkva ofan í kok. Eldri borgarar eru jú fjölmennasti hópurinn meðal leikhúsgesta. Annars er pápi minn bara nokkrum árum frá því að detta inn í þennan fríðindaklúbb og ég held satt að segja að hann myndi nú ekki kippa sér upp við smá fóstureyðingar. .. Þetta hljómaði einkennilega.

Ehhhh....ahahaha... klukkan er hálftvö og mér líður eins og Gísla á Uppsölum. Ein í heiminum að blaðra út í vindinn, í mínu tilviki, blásturinn frá rakatækinu á skrifstofunni.

miðvikudagur, febrúar 28, 2007

Welp, loksins tókst blogger að pína mig til þess að skipta úr gamla usernum yfir í þann nýja.

Áðan var ég reið við þjónustufulltrúa, það hefur gerst nokkrum sinnum áður. Mér finnst svo ergilegt að fá ekki þá þjónustu sem ég er að borga fyrir. Stundum líður mér eins og ég hafi hringt í fjós en ekki banka.

Þegar bankanum berast símtöl fælast kýrnar og spretta dragtklæddar af stað út úr þjónustubásunum sínum. Sumar þeirra standa upp á afturfæturnar og prjóna. Júgrin sveiflast í allar áttir. Á endanum hefur einhver þeirra vit á að ansa. Þá tekur ekki betra við. Rödd viðskiptavinarins ómar í loðnu eyra og tvö blaut kýraugu stækka og verða óttaslegnari með hverri sekúndu sem líður. Hún skilur ekki og baular því á stallsystur sína.

Já já eða eitthvað þannig. Sko, ég er að reyna að fara til Bandaríkjanna í skóla til þess að upplifa langþráðan gelgjudraum. Ekki er útlit fyrir að það muni takast þar sem ég er alveg vonlaus í að skipuleggja mig og er alltaf að rekast á veggi. Til dæmis mun umsókn mín til skólans berast of seint.... æi það þýðir lítið að væla. Þetta fer einhvern veginn. DJÖfulsins samt. En þökk sé þessum umsóknarprósess hef ég nú teiknað fimm teikningar sem ég er einstaklega ánægð með. Ég held að þetta verðskuldi eitt vei. Vei.

En já ef ég kemst ekki inn í skólann þá veit ég ekki alveg hvað gera skal. Pffffff.

laugardagur, febrúar 17, 2007

Tha er eg komin til Danmerkur. I gaer spiludum vid a tonleikum. Vid svidid stod kona og var hun med einhverjar bendingar. Hun leit fyrir ad vita eitthvad thannig ad eg beygdi mig nidur ad henni. Konan bad mig um ad spila eitthvad med Janis Joplin. Tha mælti eg ekki ord af vorum heldur helt afram ad skemmta lydnum. Thad eru vitleysingar a hverju strai.

Ég er búin ad finna kommurnar. Í leidinni fann ég eitt sem ég er búin ad vera ad leita ad á mínu lyklabordi. Thetta er verdlaunathraut vikunnar. Hún er mjøg erfid og ekki fyrir børn. Var ég búin ad minnast á ad ég er í Danmørku.

föstudagur, febrúar 02, 2007

Í gær tókst mér að fullkomna bitter shrew útlit mitt. Ég keypti mér svartan kerlingatúrban. Barnlausar íslenskar konur eru ekki á hverju strái og þær fáu sem eftir eru ættu endilega að kaupa sér svona höfuðfat. Með þetta á hausnum eru afar litlar líkur á því að börn muni ónáða ykkur á götum úti.

Þar sem ég er gjörn á að endurtaka mig þá er ég næstum handviss um að ég hafi einhvern tímann, í fyrri blogglífum, sagt söguna af því þegar ég reif húfu af ókunnugu barni í Austurstræti og fleygði út á götu. Enn þann dag í dag skil ég ekki hvað kom yfir mig.

Núnú ég var á gangi í Austurstræti þegar tvö börn ákváðu að ónáða mig. Þau létu öllum illum látum, ulluðu, bentu og æptu. Þess má geta að ég er meðalhá, meðalbreið, skolhærð, með gráblá augu, ég haltra ekki og fötin mín eru dökk og óáberandi(fyrir utan nýja túrbaninn minn). Það sem ég er að reyna að segja er: Ég skaga ekki út úr á nokkurn hátt(nema núna með nýja túrbaninn minn). Nema hvað, þarna stóð ég umkringd ullandi börnum og vissi ekki mitt rjúkandi ráð. Fyrsta hugsunin var að sjálfsögðu: ,, Er ég með opna buxnaklauf?". En sú var ekki raunin. Eftir smá stund fengu börnin leið á mér og löbbuðu áfram. Á þeim tímapunkti missti ég vitglóruna. Það síðasta sem ég hugsaði var ,, Þetta skulu þau sko ekki komast upp með." Svo hljóp ég af stað, reif húfuna af öðru barninu, henti henni á götuna, æpti : HAH!, og rölti svo í hægðum mínum inn í KB banka þangað sem för minni var heitið. Börnin göptu en héldu svo í humátt á eftir mér. Þegar ég staðnæmdist fyrir framan gjaldkerann voru þau komin upp að mér. Annað barnanna setti hönd undir kinn og spurði hvers vegna ég hefði rifið af honum húfuna. ,, Bara" svaraði ég að bragði. ,, Langaði þig bara til þess?" spurði þá barnið. Þegar ég jánkaði því þá sagði barnið ókey og svo yfirgáfu þau bankann.

Ég get engar skýringar gefið á athæfi mínu. Impulsive doesn´t quite cover it.

sunnudagur, janúar 21, 2007

Hvar ég er? Nú í vinnunni auðvitað Silly Billy. Mér líður eins og ég sé alltaf hérna þrátt fyrir að vinna bara aðra hvora viku.

Vinnan mín felst í því að koma dagblöðum aftur á tölvutækt form. Tvíverknaður, jú mikið rétt.

Á næturnar neyðist ég til þess að lesa blöðin og hef þar af leiðandi aldrei á ævinni verið jafn vel upplýst um umheiminn og einmitt nú. Síðustu mánuði hef ég staðið sjálfa mig á því að mynda mér skoðanir á öllum fjáranum. Einnig hef ég tekið ástfóstri við suma pistlahöfunda á meðan ég legg fæð á aðra. Sum flón ættu ekki að fá að gaspra í fjölmiðlum.

Aríaprinsinn var að kenna mér að nota radioblog.com. Ég held að þessi internetútvarpsstöð sé betri vinur mannsins heldur en hundurinn og gott ef þetta er ekki þarfari þjón en gamli Gráni. Fyrir mitt leyti slagar þetta hátt í að vera nýi besti vinur minn.

Skoh, þú slærð bara inn www.radioblog.com og skrifar uppáhalds tónlistarmanneskjuna þína eða heila hljómsveit og lo and behold playlistar frá ókunnugum birtast í tonnatali og þá geturðu hlustað á það sem þau hafa fram að færa. Mér líður eins og unglingi sem situr þegjandi inni í herbergi hjá nýjum kunningja og mæli ekki orð af vörum á meðan kunninginn spilar uppáhalds plöturnar sínar. Fjör já og þú sleppur við að þurfa að hlusta á leiðinleg lög til þess að vera kurteis. Þarna er maður kóngur í ríki sínu og getur meira að segja æpt: ,, Svei, svona rusl læt ég ekki inn fyrir mínar hljóðhimnur."

Sá aríski er alltaf að gauka að mér nýjum hlutum enda er hann yngri en ég og ennþá áhugasamur um nýja tækni og veröldina í kringum sig.

Ég nálgast, það nýjasta sem hann hefur upp á að bjóða, varlega. Svo hnusa ég af því eins og gamall, úrillur heimilisköttur. ,, WHISKAS? Þetta er ekki soðin ýsa." Svo læt ég þetta bíða í smá tíma en geri svo skyndiárás og nauðga viðkomandi netsíðu/geisladisk/forriti. Rétt í þessu var ég að sjá fyrir mér manneskju að nauðga forriti í bókstaflegum skilningi. Það var mjög disturbing og núna ætla ég að taka mér smá tíma til þess að skamma heilann minn og biðja hann vinsamlegast um að hætta þessum eilífu óumbeðnu slidesmyndasýningum.

Ég á vin sem er með svo hræðilega fjörugt og hraðvirkt ímyndunarafl að það er nóg að segja bara til dæmis ,,afasafi" og hann koðnar næstum niður og fær hvítuna.

Stundum skil ég ekki hvers vegna hann nennir að púkka upp á manneskju sem er það andlega illa stödd að hún getur ekki stillt sig um að tvinna saman andstyggilegum hlutum bara til þess eins að hrella.

Ókey bæ

mánudagur, janúar 15, 2007

Í dag hefi ég setið og skannað. Annað kvöld er ég líka að fara að skanna. Um daginn horfði ég á teiknimynd sem heitir Scanner darkly. Hún var leiðinleg og áhugaverð í senn. Keanu Reeves ætti ekki að tala inn á fleiri teiknimyndir. Greyið konan hans, hann hljómar alltaf svo áhugalaus og þegar hann æsir sig þá virkar hann heimskur.

sunnudagur, janúar 14, 2007

Gleðilegt ár. Seint óska sumir gleðilegs árs en óska þó.

Ég gerði eitt áramótaheit fyrir tveimur vikum og mun uppljóstra því að ári. Ef ég verð ekki dauð þ.e.a.s. Sem minnir mig á það. Ég veit ekki hvort ég hafi bloggað um það í fyrri blogglífum eða ekki en skítt með það, í eigin persónu er ég hvort eð er alltaf að endurtaka sömu sögurnar aftur og aftur eins og gamall bóndi. Eða bara gamal/gömul _ _ _ _ _ _ _ (fyllið inn í eyðurnar eftir eigin hentisemi).

Við erum sumsé stödd niðri í miðbæ Reykjavíkur (þetta er flassbakk) ég er bólugrafinn unglingur og andsetinn upp að vissu marki. Dagurinn er sautjándi júní 1994. Aldrei þessu vant er ég stödd með föður mínum í bænum. Eins og með flestar gelgjur, var ég með ákveðinn radíus sem foreldrar mínir máttu ekki stíga inn fyrir á almannafæri og man því ekki hvers vegna ég var þarna á vappi með pápa. Sautjándajúni mannþröngin er alla lifandi að drepa og skyndilega heyrist muldrað, bólugröfnum rómi: ,, Ég skil ekki hvað við erum að gera hérna, það eina sem við eigum sameiginlegt með þessu fólki er að við eigum öll eftir að deyja." Ég þarf víst ekki að nefna það að viðbrögð föður míns voru vægast sagt neikvæð enda hafði hann takmarkaða kímnigáfu fyrir my gloomy remarks.

Ég held að pabbi sé búinn að setja gelgjuár okkar systra í eitthvað læst hólf í heilanum á sér. Ég hef ekki heyrt neina ,,sniðugar" sögur af okkur sem gerast á tímabilinu 1989-2007. Minningar tengdar okkur eru frekar í átt við: ,, Heyrðu, hvar er rauða borðið sem ég lánaði þér þegar þú bjóst með kærastunum þarna...eh.. hvað hét hann nú aftur?"

Djöfull ýki ég. Mér finnst bara svo leiðinlegt að segja satt.

Ég verð að fara í bað, annars endar með því að einhver tekur sig til og sáir karsafræjum í drullulagið á mér eins og í barnabókinni ,, Sigga Vigga og börnin í bænum." Ef einhver hefur ekki séð þessa bók þá mæli ég með henni fyrir uppalendur. Einstaklega smekklega framreiddur sadismi handa foreldrum.

Hér kemur svo listi yfir nokkuð sem mér er kært og er í mestu uppáhaldi þessa dagana:

1. The Mighty Boosh (breskir grínþættir sem spila ekki inn á meðvirknis/vandræðalega húmorinn.

2. Fables (myndasögur sem fjalla um gamlar ævintýrahetjur í nýju umhverfi. Rauðhettu og fleira lið. Hún er borgarstjóri í leyndum hluta New York)

3. Heimasíðan http://www.juneberry78s.com/ þar sem hægt er að hlusta og downloada gamalli amerískri tónlist. Jóðli og kántrí og blús og fleira dundi.

4. Leitarkerfinu stumble upon. Þar skráir maður sig og sín áhugamál og leitarvélin finnur heimasíður. Mjög fínt ef maður á dauðan tíma og situr fyrir framan tölvu. Ekki gott fyrir fíkla

Um daginn keypti ég svo hina langþráðu Monster Club. Ég horfði á hana þegar ég var tíu ára og ældi af skelfingu. Þetta er víst í flokknum Horror-comedy. Nú viku eftir innkaupin situr diskurinn enn óágláptur. Aumingjaskapur minn var algjörlega ófyrirséður þar sem ég stóð í búðinn og æpti af fögnuði þegar ég fann myndina.

mánudagur, desember 18, 2006

Ég hef vakið athygli mína á að ég tala óvenju mikið um þarmastarfsemi mína. Tjah, það mætti næstum því segja að yfirlýsingagleði mín í sambandi við klósettferðir og kúk sé yfirþyrmandi og verulega þreytandi til lengdar. Guði sé lof að ég eigi ekki afkvæmi sem þurfa að skammast sín fyrir mig.
,, Mamma, nennirðu að hætta að tala um rassinn og kúkinn þinn?"
,,Al-drei."

En að áhugaverðari efnum, ég veit ekki hvort ég sé svona þurr á höndunum út af óeðlilega tíðum handþvotti síðustu daga eða vegna ofþurrks. Andskotinn, þarna var ég að reyna að brydda upp á nýju umræðuefni en varð fyrir því óheppilega atviki að beinast aftur inn á sömu braut. Fyrir þá sem heima sitjið: handþvottur og þurrkur eru fylgifiskar niðurgangs.
Kæru vinir og vandamenn og ókunnugir sem hafa gaman af því að lesa bloggsíður ókunnugra. Heilsufari mínu er hægt að lýsa í einu orði: Ebóla. Á fjórða degi niðurgangs gaf Ristill frændi mér: Höfuðverk og brúnglæran kúk.

Hvort brúnglær sé alvöru orð veit ég harla lítið um en á þessu stigi málsins er mér alveg sama. Ef þetta er ekki bráðdrepandi sótt frá þróunarlöndunum þá er þetta eitthvað sem kom til landsins með Oslóartrénu. Það eru margar kenningar uppi, allar frá mér komnar, þar sem fáir hafa jafn mikinn áhuga á furðulegu magapestinni minni og ég.

Þið getið sparað ykkur áhyggjurnar, ég er hvorki að blogga af klósettinu né ætla ég að koma í heimsókn og smita ykkur af drepsóttinni. Fyrir þá sem eru ekki búnir að kaupa handa mér jólagjafir, sleppið því bara, ég mun ekki tóra lengur en að Þorláksmessu. Better yet þá held ég að það sé bara best að draga síðasta andann og skíta síðustu hrinunni á myrkasta degi ársins 22. desember. Ég ætla að drífa mig að kaupa jólagjafirnar í vikunni til að gera dauðdaga minn ennþá sorglegri. Spurning hvernig ég fer samt að því. Það veit ekki á gott að teipa plastpoka við rassinn á sér og fara svo með strætó í Kringluna og drulla svo kannski á sig á Miklubrautinni. Ætli það flokkist ekki undir félagslegt sjálfsmorð.

fimmtudagur, desember 07, 2006

Ég þarf á klósettið en ef ég fer á klósettið þá heyri ég ekki í símanum og veit þá ekki hvenær fjandans sendiferðabíllinn kemur með blöðin svo ég geti byrjað að vinna.

Á meðan ég bíð er ég að spá í að gera smá úttekt á sambandi mínu við íbúa Andabæjar. Áður en ég byrja langar mig að taka fram að þetta er ekki gert vegna eftirspurnar heldur gífurlegrar tjáningarþarfar af minni hálfu. En já sumsé.

Allt frá blautu barnsbeini, þ.e.a.s. frá sex ára aldri (af því að þá gat ég byrjað að lesa Andrés Önd), hef ég fylgst með ævintýrum dýranna í Andabæ og nú nýlega Músabæ því ekki er langt síðan ég komst að því að Mikki býr í Músabæ. Reyndar er ekki heldur langt síðan að ég áttaði mig á því að Andabær sé í Ameríku en ekki Danmörku eins og ég gaf mér í æsku. Það er að sjálfsögðu vegna þess að blöðin sem bárust hingað fyrst um sinn voru dönsk. Margir(pabbar), sem eru fæddir í kringum seinni heimsstyrjöldina, fá aldrei nóg af því að tilkynna stoltir að þeir hafi lært dönsku af lestri Anders And blaða. Hvers vegna það ætti að fylla einhvern stolti er mér ekki fyllilega ljóst.

Jæja, Anders eða Andrés, splittar ekki diff, þessi blöð voru svo samtvinnuð tilveru minni í æsku að ég held svei mér þá að ef ekki hefði verið fyrir Andrés og félaga, hefði ég þjáðst af hægðatregðu alla æsku.
Ég hef ekki tölu á öllum þeim skiptum, sem þessi vinalegu sköpunarverk Walt Disney´s, fylgdu matnum mínum frá vöggu til grafar (þ.e. frá eldhúsborði til klósettskálar). Ekki nóg með að blöðin hafi hjálpað mér við losun hægða, heldur notaði ég þau óspart við að hjálpa mér að sofna. Ég var óskaplega myrkfælið barn og las teiknimyndasögublöð á næturna til þess að bægja frá hugsunum um skrímsli, augnalausar konur, glæpamenn, útburði og drauga. Flestar nætur sofnaði ég því með kveikt ljós og blað á bringunni.

Heh.. fyndið ég ætlaði bara að telja upp alla í Andabæ, hverja ég fílaði og hvaða týpur mér þættu óþolandi en endaði bara á því að rifja upp æskuminningar. Ætli þetta sé ekki vegna þess að ég er að hlusta á Rás 2 og það er þáttur um Ladda og þeir eru að spila lög af DEO og fleiri skemmtilegum plötum. Ég var búin að gleyma hvað mér þykir vænt um Ladda... og Bubba..ég má til með að nota tækifærið og garga ást mína á þessum æskuhetjum mínum. Ætli þeir séu ekki ástæða þess að ég er eins og ég er í dag: hress kókaínfíkill. Fyrir þá sem álpuðust inn á þetta blogg og þekkja mig ekki þá vil ég taka fram að ég er bara að bulla, ég er alls ekki hress.

Þegar ég var unglingur byrjaði ég með strák sem ég var svo með í næstum sjö ár. Tengdamóðir mín fyrrverandi vann með einhverfum á vernduðum vinnustað. Starf þeirra einhverfu var að pakka inn Andrésblöðum. Ég leyfi mér að ganga svo langt að þar hafi ég hitt á gullæð. Ókeypis blöð í næstum áratug. Með þessu móti gat ég auðveldlega fylgst með fiðruðu vinum mínum frá unglingsaldri til fullorðinsára. En hjónabandinu lauk fyrir næstum fjórum árum síðan og nú til dags kemst ég aðeins í blöðin þegar ég fer í fjölskylduboð. Þá lauma ég mér pent inn í eitthvert barnaherbergið og tek til við að sinna mínu andfélagslega áhugamáli. En gott og vel, ég hef hugsað mér að enda þessa langloku á að gera það sem ég upphaflega ætlaði mér og gefa álit mitt á persónum og leikendum úr verkinu Sögur úr Andabæ.

Andrés Önd: Ekki nóg með að Andrés sé skapstór og hefnigjörn önd heldur er hann sjálfskipaður leiksoppur örlaganna. Ekkert er honum að kenna, aðrir sjá um að gera hann að fórnarlambi að hans mati.

Andrésína Önd: Sjálfumglaður tækifærissinni sem hefur verið trúlofuð sama skaphundinum í meira en hálfa öld en er of meðvirk til þess að slíta trúlofuninni og heldur því Andrési í lausu lofti með því að segja aldrei af eða á. Í gegnum tíðina hefur hún gerst sek um fjölmörg framhjáhöld með misheppnuðum árangri. Meðal annars fer hún oft á stefnumót með frænda Andrésar og etur þeim saman.

Hábeinn hepppni: Hann er í einu orði sagt óþolandi en það þyrfti ansi dyggðuga önd til þess að vera ekki óþolandi ef maður væri svona fáránlega heppinn í spilum, happdrættum, fjársjóðsleitum og tombólum. Skapgerðarbrestir hans eru tilkomnir vegna ofeldis en hann mætti nú alveg stunda smá sjálfsskoðun og kannski gera eitt og eitt góðverk.

Ok, ég veit ekki hvort ég ætti að halda áfram núna, þetta er ekki sanngjörn greining vegna þess að ég er í hræðilegu skapi. Klukkan er eitt, skanninn er hálfviti og ég er farin að hegða mér eins og ónefnd skapstór önd. Ég þarf verulega að halda aftur af mér til þess að kasta ekki þessu ömurlegasta tæki veraldarsögunnar út um gluggann.
Spurning hvort að þessi næturvinna sé getting to me.

miðvikudagur, desember 06, 2006

Jæja nú sit ég með þurrar glyrnur og stari á tölvuskjáinn og bíð. Nei, ég er ekki að bíða eftir commentum eða friend requestum á meinspaz.com.

Að þessu sinni snýst biðin um títtnefndan skanna... sem öhh...sem ætlar allt um koll að keyra á skemmtistöðum bæjarins.
Á rugl.is má sjá myndir af skannanum í trylltum fansi á Vegamótum í sleik við ljóshærða gellu í svörtum partýtopp, gráum niðurmjóum gallabuxum, svörtum stígvélum yfir skálmarnar, með með eina til fimm hálsfestar (helst gylltar). Hún heitir mjög líklega Eva eða Kristín.

Í nótt ætlar hann að skanna hana.

Hjah, nú verð ég bara að taka að mér hlutverk Almannavarna og vara almenning við eh... nei nú ætlaði ég að tuða eitthvað. Aldrei þessu vant dettur mér ekkert í hug. Húrra fyrir sjálfri mér. Niður með heilaæxli sem láta mann:

Tuða út af engu.

Metast við aðra og láta mann svo alltaf tapa í samanburðinum.

Fara í fýlu þegar fólk gerir ekki nákvæmlega eins og maður hafði ákveðið fyrir það hvað/hvernig/hvenær það ætti að gera það.

Reiðast þulum, þáttastjórnendum, dagskrárgerðarmönnum, kynnum, fréttamönnum, grínurum og leikurum sem álpast inn á skjáinn hjá manni.

Æi heyrðu Skannsi er búinn í sleik. Ég verð að fara að vinna.

mánudagur, nóvember 27, 2006

Í gær var ég að lesa frétt í blaði þar sem rugludallurinn Árni Johnsen var að væla. Að þessu sinni var hann búinn að skipta um lag á plötunni. Hann er greinilega nýbúinn að fatta að það er ekki hægt að segja að glæpurinn sem hann framdi hafi verið ,, tæknileg mistök" án þess að koma út eins og hálfviti. Aftur á móti er maðurinn ekki búinn að fatta að það er ömurlegt að reyna grenja út fyrirgefningu til þess að fá að troða rassinum á sér í þingsæti. Mikið hlýtur hann að langa í þessa oflaunuðu stöðu.
Af hverju fækkum við ekki fólkinu í ríkisstjórn. Þetta blessaða fulltrúalýðræði hljómar nú bara eins og algjört drasl hvort eð er. Mér finnst eins og flestir á þingi séu bara eitthvað lið sem langi í vellaunaða vinnu og völd til þess að skara eld að sinni köku. Davíð Oddssyni, tókst í sinni valdatíð, að hann kerfið nákvæmlega svo það myndihentaði honum best. Verst að maðurinn skuli ekki vera öryrki.


Í öðru blaði er hægt að skyggnast inn á heimili Árna í Breiðholtinu. Hann er einn af fáum Breiðhyltingum sem býr í einbýlishúsi. Á nánast hverjum einasta vegg var uppstoppað dýr.
Heimilið leit út eins fólkið sem byggi þar væri blanda af aðalbornum Englendingum og nýríkum Könum.

Blahh, ég er allaveganna endanlega búin að sannfærast að VG sé eini flokkurinn sem ég geti hugsað mér að kjósa. Ekki skaðar að ég hef verið aðdáandi Ögmunds frá því að ég var grunnskólanemi.

fimmtudagur, nóvember 16, 2006

Þá er þessi vika senn á enda. Mér leiðist þetta endalausa gnauð í vindinum. Það er svo niðurdrepandi. Ég eyddi tveimur kvöldum í að leira karla og komst svo að því að það er lítill munur á þeim og einhverju drasli í Tiger. Svei, alltaf þarf ég að missa móðinn við minnsta mótlæti. Fyrir utan það að hver sem er myndi vera ósammála Tiger samlíkingunni, nema ég náttúrulega, ég myndi vera sammála mér.

Ég veit að það er ekkert frumlegt að tala um veðrið en guð almáttugur hvað það er kalt. Ég las um pólska stelpu sem flutti bara til Karabíahafsins og borgar 17.000 krónur á mánuði fyrir leigu á einbýlishúsi við ströndina. ,, Vóah dúd.." hugsaði ég, ,, ..djöfull er maður heimskur að hanga á þessu frosna skeri."

Ekki þykir mér nú skrítið að helvíti í norrænni goðafræði, sé helkalt. Persónulega hefur mér aldrei þótt neitt sérstaklega óhugnalegt við heitt helvíti. Það hljómar nú bara notalega, álíka ógnvekjandi og arineldur og kakó. Ætli maður myndi hegða sér betur ef kalda helvítið hefði haldist í núgildandi ríkistrú. Ekki það að ég viti mikið um núgildandi ríkistrú. Er helvíti til í mótmælendatrú? Það er greinilegt, að hin skírða og fermda ég, hafi aldrei fylgst með í tímunum sem báru heitið Kristinfræði.

þriðjudagur, nóvember 14, 2006

Núna er ég andvaka. Klukkan er ellefu mínútur í sex og mér hefur ekki komið dúr á auga. Enn fremur veit ég ekki hvort ég eigi að mæta í vinnuna á eftir eða ekki.

Mútta kom í heimsókn fyrr í kvöld og bað mig um að falda gardínur og gera saum fyrir gardínustöng. Hún er ekki mikil hannyrðakona blessunin og neyðist því til þess að heimsækja Fúsa fúskara. Það er sko ég.

Allt sem ég kann er klastr og plástr og fúsk. Ég held að ég hafi ekki lært neitt verklegt almennilega alla mína ævi. Mér finnst erfitt að læra þegar fólk er að sýna mér eitthvað. Ég verð að prófa það sjálf og hingað til hef ég ekki mætt mörgum þolinmóðum kennurum.

Ein af mínum verstu handmenntaminningum er úr ellefu ára bekk.

Verkefnið hafði verið að búa til stuttbuxur. Mér var lífsins ómögulegt að skilja sniðagerð og saumavélar og klúðraði þar af leiðandi helvítis buxunum. (Þess má geta að ég var óskaplega metnaðargjarnt barn og það truflaði mig mjög mikið að saumar og leikfimi lækkuðu alltaf meðaleinkunnina mína..... ég þess má einnig geta að þetta leiddi til haturs á penum jazzballetstelpum sem hlógu kurteisislega á meðan þær saumuðu óaðfinnanlega í.)

En já.. þar sem mér tókst ekki að leysa buxnaverkefnið, brá ég á það ráð að láta eins og mig langaði meira í pils og hófst handa við að drulla saman einhvers konar flík.
Kennarinn skammaði mig harkalega af því að í raun og veru var þetta pils bara skálm og svo brjálaðist hún þegar ég bað um hjálp við pilsið mitt. Aldrei mun ég gleyma þessum risastóra kennararassi í svörtu rassafýluefnabuxunum þar sem hún stóð og snéri baki í mig fussandi og sveiandi. Ég hímdi fyrir aftan hana, grátandi, full af fallörvæntingu þar til óttinn breytist í logandi reiði og ég lét mig dreyma um að keyra nál á kaf í þessar spikuðu rasskinnar. Hmm.. ætli ég hafi verið yngri.. ég efast um að ég hafi bara verið í rassgatshæð þegar ég var ellefu ára enda ekki þekkt fyrir að vera lágvaxið barn.

Fórnarlambssaga dagsins var í boði Eimskips.
,, Eimskip, flytur ljót saumaefni frá þriðja heiminum til allra grunnskóla Reykjavíkur."

Mikið væri nú gaman að fara í gamla skólann minn og gá hvort að þau séu ennþá með lager af þessum efnum. Ég man eftir einu sem var með munstri sem leit út eins og veggur með neonlituðu veggjakroti.

Aríaprinsinn keypti sér svoleiðis munstrað veski í Góða Hirðinum um daginn. Ég fékk flashback, henti mér á gólfið í fósturstellinguna og muldraði: ,, Fyrirgefðu Sigrún saumakennari, fyrirgefðu mér."

Nam veterans eiga ekkert í fólk sem gekk í gegnum grunnskóla í Breiðholti.

mánudagur, nóvember 13, 2006

Úff lalalala. Vikan hefur verið mér erfið. Ég er þreytt lítið hænsn. Sjö næturvinnuvaktir í röð hahahaha arrrgggh...hvað var ég að pæla? Einn daginn mun ég gera ítarlega greinargerð sem mun bera titilinn: ,,Vinnumarkaðurinn og fólk á rangri hillu."

En það góða við að vera í næturvinnu er að það er einmitt tíminn sem sumir eiga auðveldast með að fá hugmyndir. Svo vel vill til að ég er ein af þeim.
Í þessari viku er ég búin að semja heila barnabókaseríu . Á morgun hefst svo vinnan við að koma þessu öllu skipulega á blað. Bókaflokkurinn heitir ,, Feðgarnir". Ég er nú reyndar bara að spauga. Bækurnar hafa ekki fengið neitt nafn ennþá.

Þegar ég ofkeyri mig, á ég það til að verða dáldið rugluð og veruleikafirrt. Að vísu hefur mér oftar en ekki verið tilkynnt að dags daglega sé ég ekki með hefðbundnar skoðanir og ekki alltaf að hegða mér mjög eðlilega. Þannig að ég gef mér að þegar mér finnst ég vera veruleikafirrt, þá sé eitthvað mikið að.
Nema hvað, á fimmtudagskvöldið fór ég í sund. Skyndilega fannst mér eitthvað svo skelfilega undarlegt að vera að synda fram og til baka með helling af ókunnugu hálfnöktu fólki, í flísalagðri, upplýstri holu , fullri af klórvatni. Á endanum komst ég yfir þetta og gat synt án þess að vera alltaf að stoppa og líta í kringum mig og furða mig á því af hverju ég væri ekki bara heima hjá mér. Ja... þegar ég hugsa mig betur um þá held ég að þessi upplifun sé meira í ætt við að raunveruleikasjokk heldur en firringu. Eða bara síðbúið menningarsjokk.

Núna er ég að kljást við eitt það leiðinlegasta vítistól sem fyrirfinnst á þessari guðsvoluðu jörð: Skannann í vinnunni minni. Ó hve heitt ég hata hann.
Núna er ég á síðasta vinnudegi í þessari viku og þá tekur við vikufrí. Í fríinu væri mjög sniðugt af mér að skrá mig á eitthvað námskeið í skipulögðu ofbeldi á borð við íþróttir. Ef ég sit mikið við tölvu og þarf að endurtaka einhvern verknað þá safnast bara upp hjá mér einhver gífurleg ofbeldishneigð.

Þessi áðurnefnda hneigð mín náði hámarki á föstudaginn þar sem ég sat í uppi í Háskóla Íslands í alþjóðlegu enskuprófi.
Erkiflónið ég ákvað að fara illa sofin og óundirbúin í próf sem kostaði 10.000 krónur. Eftir því sem á leið próftímann langaði mig meira og meira til þess að ráðast á einhvern og rífa í hálsmálið á honumog tryllast og æpa: ,, HVAÐ ERUM VIÐ AÐ GERA HÉRNA??? SÉRÐU EKKI AÐ ÞAU ERU AÐ HAFA OKKUR AÐ FÍFLUM?? VIÐ KUNNUM ALVEG ENSKU!!! AF HVERJU ER VERIÐ AÐ GRILLA SVONA Í MANNI??"
Á meðan á ópunum stæði myndi ég svo hrista manneskjuna fyrir framan mig þangað til að útlínur hennar myndu mást út.
Mannkyninu til happs er ég ein af þeim sem heldur sig oftast réttu megin við landamæralínuna á milli þess geðveika og geðfríska. Þegar ég segi ,, heldur sig" á ég við að ég er réttu megin en held ekki að ég sé það. Já... eh... æi vonum bara það besta.

Ég veit ekki hvort ég náði prófinu vegna þess að mestan hluta tímans sat ég þarna eins og glápti á tölvuna eins og naut á nývirki, sökum herfilegs áunnins athyglisbrests. Ég verð að fara að ná mér í greiningu eða eitthvað. Þetta er ekki eðlilegt einbeitingarvandamál.
Ef ég er að lesa texta sem er ekki beinlínis tengdur mínu áhugasviði, fjarar athyglisgáfa mín út.

Til að mynda, ef einhver tæki nú upp á því að lesa fyrir mig upp úr Viðskiptablaðinu og spyrja mig svo spurninga eftir lesturinn, er bókað að ég myndi ekki geta rifjað upp neitt sem viðkomandi hefði lesið fyrir mig.

Nema kannski eitthvað í ætt við: ,, Óvenjulega mikil aukning á sölu teiknimyndasagna í Noregi" eða: ,,Japönsk vélmenni innkölluð sökum forritunargalla sem framkallar morðfýsn."

Hvað er með þessar játningar á internetinu hjá mér? Þetta er mun skrítnara fyrirbæri en t.d. almenningssundlaugar. Pehh.. ég ætla að snúa mér að einhverju leiðinlegu eins og að skanna.

fimmtudagur, nóvember 09, 2006

Hvenær ætlar löggan að finna þessa bévuðu nauðgara?

Ég held reyndar að núna séu ,,feðgarnir", (en það kalla ég nauðgarana, vinum mínum til mikillar armæðu) búnir að skipta um starfsvettvang og stundi nú íkveikjur í gríð og erg.

Mér finnst að lögreglan eigi að gefa öllum konum brúsa með neonlituðu lakkspreyi. Þá er hægt að merkja þá, finna, hengja, brenna og skíta á.

Veikir menn my ass. Nauðgara, níðinga og morðingja ætti að hýða á Lækjatorgi og að eftir það ætti að láta þá drekka vatn úr tjörninni. Þetta fólk er búið að segja af sér sem manneskjur og núna er ég orðin brjáluð bara af því að hugsa um þetta. Ég nenni ekki að vera umburðarlynd gagnvart svona fólki.

Ég er dauðhrædd að labba um á kvöldin og mér finnst vegið að frelsi mínu. Mig langar í piparsprey í jólagjöf.