sunnudagur, mars 30, 2008

Meiri hattar.



Hvernig snýr maður þessu helvíti? En já þarna er ég með helvítis hattinn. Ef ég væri hrifin af Vestmannaeyjum og fylleríi með Árna Johnsen þá myndi ég ábyggilega kaupa mér hattinn.

Spurning hvort ég geri það að prinsipp máli að fara aldrei til Vestmannaeyja fyrst ég er ekki ennþá búin að fara þangað.

Matta á fimm hatta.




þetta er nú eitthvað öfugsnúið en hér erum við sem sagt að máta hatta í túristabúð.

Snúlli Snær að kafna í Texas



Ég er í miklum net ham eða ham neti og ætla bara að sýna hitt og þetta fyrst ég nenni. En þetta er sem sagt Krúttbelgurinn að bíða eftir strætó í Texas. Hitinn var næstum óbærilegu svo vesalings drengurinn varð að skýla sér með tösku.

Kubbur og litlu frændur hans



Þessa náunga gerði ég fyrir mexíkanska svilkonu systur minnar og sá stóri var gjöf handa aríaprinsinum litla. Ég var búin að gleyma því hvað veggurinn á Lindargötunni var lifandis laxableikur.

eh.

já sko allt í einu fór ég að velta því fyrir mér hvort að það væri ekki ólöglegt að segja að einhverjum verði hlátur um hug. Ég held að ég hafi verið að rugla saman fjötur um fót og og hlátur í hug.

Mér kom ekki hlátur í hug.

Af hverju vefst þetta blessaða móðurmál mitt ennþá fyrir mér. Eftir að einhver smámunasamur málfasistadreddi minntist á það, á Rás eitt, að þjóð vor væri alltaf að rugla saman af og að þá varð mér allri lokið. Ekki var á það bætandi. Mér finnst mjög erfitt að muna hvenær maður á að segja að eða af. Að mér er annars gott af frétta.

En þetta af og að havarí hefur orðið til þess að ég gef mér aldrei tilefni.

Tekið til á internetinu


Nú veit ég hvað var að. Ég var komin með leið á útlitinu á blogginu mínu. Hér er gömul teikning af bræðrum sem eru eitthvað að vesenast.

Aríaprinsinn er búinn að ganga hér um gólf og spangóla af eirðarleysi. Ungfrú Margrét Eyrð(ég) skilur ómögulega hvers vegna honum leiðist. Á endanum sendi ég hann bara út úr húsi til að hitta kunningja. Ég nenni ekki að færa mig spönn frá rassi þar sem ég eyddi deginum í að þramma á the Armory Show sem er dáldið eins og heimilisiðnaðarsýning í Laugardalshöllinni nema bara með ríkara fólki og fleiri svörtum rúllukragabolum. Hananú, varð mér að orði þegar ég gekk inn ásamt frænku minni og eiginmanni hennar eða öllu heldur listfræðingnum og hjartaskurðlækninum. Þau eru einstaklega indæl og skemmtileg og líta út fyrir að vera 15 árum yngri en þau eru í raun og veru og ég veit ekki af hverju ég læt þær upplýsingar fljóta með. Kannski af því að ég var að horfa á þau í dag og dást að húðinni þeirra eða öllu heldur húðunum þeirra.

í gærkvöldi fórum við á Caribou eða Caribo eða... æi hljómsveit. Það var gubbað fjör. Hljómsveitin var samt með kjánalegustu visjúala sem ég hefi á glápt. Þeir voru svo andlausir og beisik að þeir voru næstum því snilld, en bara næstum því. Ég var farin að heyra í hausnum á mér, litlu lagbútana sem heyrast þegar að unglingarnir í That 70´s Show eru að glenna sig ofan á síkadelísku bakgrunnana í litlu milliköflunum í þáttunum. Þetta var í fyrsta sinn sem ég upplifði mig sem visuala fasista.

Á undan Caribou (ég gúgglaði það bara motherlicker) sáum við Fuckbuttons og litlu bifhárin í eyrunum á mér visnuðu. Þetta var aðeins of mikið træbal diskó, nei veistu, ég er bara að vera neikvæð, þetta var fínt.

úhh, í dag sá ég hund vinafólks okkar hömpa bak á barni. Það hefði getað verið fyndið en var meira svona eins og sena úr Gummo þ.e.a.s. of undarlegt til þess að manni verði hlátur um hug. Ég skammaði graða hvuttann og ýtti honum með löppinni og hann glefsaði út í loftið. Meiri vitleysingurinn.

Það er samt svo dularfullt að alltaf þegar ég sé eitthvað disturbing þá er ég alltaf svo lengi að ákveða hvað mér finnst um það. Kannski er ég með of þykkan heilabörk. Til dæmis, þegar ég var að fatta hvað hundurinn var að bauka þá heyrðist í heilanum á mér(í slow motion) ,, Er ekki eitthvað athugavert við þetta?" svo komu önnur skilaboð löngu síðar: ,, Júúúú, ég held það" þriðju skilaboðin fylgdu ekki fast á eftir: ,, Ætti ég ekki að gera eitthvað í þessu?". Fjórðu komu ekki um hæl: ,, Júú, en hvað?"

Áratug síðar tók einhver taugafruma við sér og æpti: ,, Látum hana ýta hundinumm í burtu með löppinni!", sem ég og gerði.

Það mætti stundum halda að ég væri heilasködduð eða dagreykingamanneskja. Ég mæli eindregið með því að fólk lendi ekki í slysi fyrir framan mig. Ykkur gæti auðveldlega blætt út fyrir framan mig á meðan ég væri að maula með mér: ,, Skrýtinn þessi vökvi sem lekur úr höfðinu á honum."

Já annars, farið á Santa María á Laugavegi. Ef þið verið fyrir vonbrigðum þá skal ég hundur heita og éta hattinn minn og fara fjandans til.

Ég veit ekki með þig en ég ætla að leggjast upp í sófa og horfa á eitthvað og borða frostpinna í leiðinni. Við eigum kassa af frostpinnum í ísskápnum. Lím, þrúgu, stráberja og órans. Oftast sitjum við uppi með þá óranslituðu eftir að hafa sleikt alla hina litina upp til agna. Hvern langar í eitthvað með appelsínubragði, ég bara spyr? Ef þetta eru ekki appelsínur eða appelsínusafi þá ætla ég ekki að japla á því. Sérstaklega þykir mér svívirðilegt þegar fólk reynir að blanda saman appelsínum og súkkulaði. Þegar ég var barn þá fór ég næstum því að gráta þegar ég sá pakka af Jaffakökum. Þær eru áreiðanlega innfluttar frá bakaríinu í helvíti. Bakaðar af fólki sem sveik undan skatti. úbbbb sem minnir mig á það, ég er ekki búin með skattaskýrsluna mína..... góði guð, ég skal hætta að vera reið yfir því að hafa ekki fengið páskaegg ef þú sendir mér endurskoðanda sem vill gera skattaskýrsluna mína ókeypis eða í skiptum fyrir teikningu af...ööö Tollstjórahúsinu í Tryggvagötu.

En já, er ekki bara dáldið fínt um að litast á blogginu mínu?

laugardagur, mars 22, 2008

þriðjudagur, mars 18, 2008

trallilæ

óhóhó, þá erum við eiginlega bara komin heim frá Texas, ef heim skyldi kalla. Það væri nú aðeins of gróft að kalla Bandaríkin heimili eftir nokkurra mánaða dvöl.

Manfriendið mitt er að hamast við að pústa ýldulykt úr botninum á sér. Því sit ég hér í fýlu án þess að vera í vondu skapi.

Þegar við lentum í Texas þá; heyrðum við kántrítónlist, vorum afgreidd af konu sem hét Barbie. Ég stillti mig um að flissa enda rígfullorðin orðin.

Strákarnir í Reykjavík! gistu hjá Swingerum en við eymingjarnir hundskuðumst á hótel. Swingerarnir voru ljótir. Þetta voru hjón á miðjum aldri og kærastan þeirra. Maðurinn var hálfgerður Lebowsky, eiginkonan eins og lukkutröll og kærastan var með starandi augu eins og hún ætti við skjaldkirtilsvandamál að stríða.

Að sjálfsögðu stillti ég mig einnig um að flissa þegar við mættum þessu gengi frjálsra ásta. Við áttum sko upphaflega að gista hjá vinkonu þeirra en sölumaðurinn var svo lasinn að ég og aríprinsinn(eða Jarlinn af Fret eins og ég kalla hann núna) ákváðum að vera ekkert að raska ró hans.

Heyrðu augnablik, leyfðu mér að útskýra. Við vorum í Texas af því að okkur bauðst að glamra og tralla á tónlistarhátíðinni South by Southwest.

Annars var ég að hugsa um eitt sem mér þykir ansi fyndið. Þegar íslenskir fjölmiðlar fjalla um íslenskar hljómsveitir sem hætta sér út fyrir landið til að spila á tónleikum fyrir nokkrar erlendar hræður þá er fréttin alltaf svona: ,,_ _ _ _ gera það gott í Noregi." Svo er allt látið hljóma glamúrus og eins og allir séu að meikaða á nóinu. Úbbb, hvaðan koma allar þessar slettur. Ég sem er vel upp alin.

fimmtudagur, mars 06, 2008

....

Jæji jæjason. Þá er ég búin að sitja enn einn daginn við skrifborðið mitt og teikna. Bakið mitt gefur frá sér undarleg hljóð þegar ég rétti úr mér. Á laugardaginn erum við að fara að spila á tónleikum.

Hmmm.. var það nokkuð fleira? Bjehh, getur varla hafa verið merkilegt.

Járni er steinsofandi, það er hægara sagt en gert að hrinda honum á lappir.

laugardagur, mars 01, 2008

Lóa gamla

Ég var að koma úr teboði. Mjög indælt. Við sátum og drukkum te og spiluðum Scrabble. Ég vildi óska þess að ég væri ellilífeyrisþegi. Það hljómar ekkert smá næs. Dagurinn minn myndi vera einhvern veginn svona:

Vakna klukkan 7
Drekka kaffi eða te og lesa blöðin í svona klukkutíma
Rölta í sund
Hanga í sundi í svona 4 tíma
Fara heim og fá mér hádegismat
Baka
Bjóða einhverjum í kaffi
Spila, slúðra og spjalla í nokkra tíma
Fara á veitingahús
Fara heim og lesa
Glápa á sjónvarpið
Sofa

Repeat.

slepptessö barah.

Áðan sá ég rauðhærðan mann hlæja í sjónvarpinu, svo hrein hann eða reit óvart. Alltaf finnst mér jafn gaman þegar fólk fer að hrína upp úr þurru eða rýtir óvart. Nú ætla ég að giska, aðallega vegna þess að ég nenni ekki að fletta því upp, að þegar einhver segir ,, hrína" þá sé sá hinn sami að tala um svínavælið sem svín gefa frá sér en þegar þeir segja ,,rýta" þá séu þeir að tala um hitt svínahljóðið.. hmmm... hvað er gott orð yfir það, kannski rymja....já segjum bara að þegar svín rýta þá eru þau í raun og veru að rymja. Æi nú er ég ekki lengur viss.
Yfirleitt þegar ég hef hitt svín þá rýta þau og hrína bæði í einu.
Eins og sjá má á textanum hér á undan þá eru sumir greinilega komnir langt fram yfir háttatímann sinn.

Vðöööhh, þvílíkt antíklímax. Sko, nú þarf ég að útskýra ákveðna atburðarás. Ég er búin að vera að flissa yfir hinu og þessu í kvöld þökk sé manninum sem hrein eða reit. Það hláturskast gerði mig viðkvæma gagnvart öðrum fyndnum atburðum. Ég er ekki alveg viss hvort ég sé búin að vera sérlega heimsk í kvöld eða þá að athyglisgáfa mín sé og hafi verið með besta móti og láti ekki eina einustu grín-ögn framhjá sér fara. Nú nema hvað, maðurinn sem gaf frá sér þetta tiltekna svínahljóð olli því að ég fékk skyndilegan áhuga á því hvort hljóðið væri hrín og hvort væri rýt. Ooog til að gera langa sögu stutta þá gúglaði ég ,, að hrína" og rakst á þetta:

"Aldrei má hleypa straumi á rafskaut um leið og þau eru sett á dýrið. Það er mjög mikilvægt að staðsetja rafskautin vel á dýrinu áður en straumi er hleypt á. Annað er ill meðferð á dýri og hætta á blæðingum í kjöti eykst verulega. Svín eiga helst ekki að hrína þegar þau fá raflost, ef það gerist oft er ástæða til að yfirfara útbúnað og handtök starfsfólks. Þegar rétt er staðið að deyfingu með raflosti þá finnur dýrið ekki til. Ef straumur er ónógur eða ef straumur fer ekki í gegnum heilann þá finnur dýrið mikinn sársauka við raflostið."

Samkvæmt heimasíðunni landbunadur.is, um meðferð sláturdýra.

Stundum gleymi ég því hvað ég er í geðveikri afneitun gagnvart því hvernig kjöt og dýr tengjast. Mér tekst í alvörunni að telja mér trú um að kjötbollur séu bara bollur sem amma mín týnir af trjánum í garðinum hjá sér.

Já Hemmi minn, Ignorance is bliss. Þarna tókst mér að kvóta í Ladda og Matrix í sömu setningunni. Virkilega gott hjá mér. ,,Svonehh, réttið mér medallíjonn og hefið hena úr guddleh."

Fyrst svín eru hér til umræðu, eða já, ekki beinlínis umræðu þar sem ég er bara að tala og enginn annar, þá langar mig að minnast á mjög skemmtilegt svín sem ég sá í sjónvarpinu um daginn. Blessað svínið hét Elvis og var, einhverra hluta vegna, þáttakandi í hryllingsraunveruleikaþáttaröðinni "Make me a Supermodel!". Einhverju gáfnaljósi hafði dottið í hug að láta tilvonandi fyrirsæturnar þramma sýningarpallinn með dýr sér við hlið. Karlmódel nokkuð dróg Elvis litla úr dýrahrúgunni og hélt að það hefði aldeilis dottið í lukkupottinn.
Ef ekki hefði verið fyrir svínið þá hefði ég aldrei komist að því hvað vitleysingarnir í "Gjörið mig að ofurfyrirsætu!" væru að bralla. Málið er nú einfaldlega það að ég er búin að vera lasin þessa vikuna og lagðist því í mikið sjónvarpsgláp. Ég hafði hvorki orku né áhuga á að horfa á neitt sérstakt og var því að flakka um öldur ljósvakans af miklum móð. Þegar Elvis litli birtist á skjánum æpti ég upp yfir mig, hrein eða reit og neyddist til þess að horfa á bút úr þættinum. Elvis þessi var óþekktargrís og neitaði að ganga pallinn. Svo dillaði hann bara rófunni þessi elska. Ég verð að eignast grís. En bara svona puntsvín sem er búið að erfðabreyta á viðbjóðslegan hátt og breyta í eilífðarbarn. Dvergsvín, mig langar í dvergsvín.

Það er ekki heil brú í þessu helvíti.

fimmtudagur, febrúar 28, 2008

Romm

Í morgun rakst ég á nágranna minn og hann reyndi að halda uppi samræðum við mig. Hann veit ekki að ég get varla tjáð mig á eigin móðurmáli á morgnana hvað þá ensku. Ég sagði bara Yes dáldið oft og brosti.

Eftir tvær vikur erum við að fara til Texas að spila. Ég hlakka gubbað mikið til. Skólinn er farinn að þvælast fyrir mér. Mig langar bara að ferðast og spila og búa til boli. Það er miklu meira stuð en að hlusta á Ameríkana tala um frama og peninga. Sveiolló.

Núna er ég að drekka kaffi úr bollanum sem Tanya vinkona mín stal á kaffihúsi. Ég þekki óvenjulega mikið af fingralöngu fólki. Flestir sem eru með mér í skólanum víla ekki fyrir sér að nappa myndlistarvörum og heima á ég vini sem myndu aldrei borga fyrir neitt sem kemst fyrir í vasanum þeirra. Mjög spes. Ég gæti ekki stolið þó Tony Soprano sjálfur myndi hóta mér og svo borga mér fyrir. Bæði finnst mér eitthvað skrítið við það að taka hluti sem ég á ekki og svo finnst mér líka hræðilegt tilhugsun að vera gómuð með eitthvað aulalegt eins og pensil eða Snickers. Auk þess myndi ég ekki vilja að fólk stæli frá mér. Stæli stælunum stælish. Á laugardaginn eru systir mín og mágur að fara að opna bístró. Mig langar að fara. En í staðinn ætla ég að hjálpa þeim þegar ég kem heim í sumar. Það er að segja ef þau vilja. Lúbbílæ.

Í gær kláraði ég fleiri myndir fyrir Námsgagnastofnun. Núna þarf ég bara að drulla mér að senda þær. Myndirnar eru nú dáldið fínar þó ég segi sjálf frá.

miðvikudagur, febrúar 27, 2008

Einstaklega djúpar pælingar... Mjööög djúpar

Æ oftar kemur það fyrir að mig langi til þess að hringja í móður mína og biðja hana afsökunar. Svo skemmtilega vill nefnilega til að nú er fólk farið að ásaka mig um nákvæmlega sömu hluti og ég sakaði móður mína um forðum daga.

,, Hvað var ég að segja?, nei þú veist það ekki af því að þú varst ekki að hlusta!!", ,,Þetta er ekki fyndið!", ,, Mikið geturðu verið andstyggileg".

Núna sé ég hlutina með augum móður minnar og hef komist að því að ég var viðkvæmt, þreytandi og athyglisfrekt barn. Ég veit reyndar ekki hvort móðir mín hefði valið þessi orð, allaveganna myndi hún ekki viðurkenna það.

Ég er ekki haldin þeim ranghugmyndum að ég yrði betri í því að ala upp barn heldur en foreldrar mínir. Þvert á móti er ég sannfærð um að ég myndi gera öll sömu mistökin. Það eina sem gerir þessa staðreynd bærilega er að ég er alveg ágætis náungi.

mánudagur, febrúar 25, 2008

komin heim

Í gær lentum við á JFK eftir fjórtán ef ekki fimmtán tíma ferðalag frá Noregi. Þar sem við hjónin erum ekki loðin um lófana ákváðum við að finna ódýra miða til og frá Osló. Ég held að við höfum verið aðeins of ökónómísk í miðakaupum. Það ætti ekki að taka mikið meira en sex klukkutíma að fljúga til Noregs en við millilentum í Belgíu á leiðinni út og svo í forgarði vítis, eða Heathrow á leiðinni heim og þurftum að dúsa þar í fimm tíma. Sjaldan hef ég verið á jafn viðbjóðslegum stað og Deathrow. Mér leið eins og ég væri föst í Kringlunni og gæti ekki farið fyrr en einhver myndi sækja mig.

Á leiðinni frá Englandi þá sátum við í fimmmannasætaröð og hjónin við hliðina á mér lyktuðu af plasti, sváfu alla leiðina og þegar við vorum að bíða eftir því að fá að lenda byrjuðu þau að borða negul. Reyndar var ég sátt við negulinn því alltaf þegar annað þeirra byrjaði að tala þá gaus upp svo mikil andfýla að mér varð óglatt.

En í morgun vaknaði ég sumsé með þungan haus af kommum. Augun í mér fljóta um og ég ætla að fara að fá mér te.

miðvikudagur, febrúar 13, 2008

Snjóah.

Hér snjóar og snjóar. Flestir í skólanum kepptust við að tuða út af veðrinu en mér þótti gaman að sjá borgina í vetrarham. Veturinn hefur verið mildur hingað til. Nú verður áhugavert að sjá hvernig Bandaríkjamenn hegða sér í snjó. Ég hef ekki hugmynd um það. Kannski detta þeir oftar en fólkið heima.

Þriðjudagar eru ansi strembnir því þá er ég í skólanum frá níu til níu. Fyrst mála ég í sex klukkutíma, svo æti ég og prenta í þrjá og að lokum set ég saman víra og batterí og ljós og bý til leikföng í þrjá klukkutíma. Ef ekki væri fyrir gífurlegt skemmtanagildi ofantalinna námskeiða, þá væri ég ekki glaði kallinn sem ég er í dag.

Áðan sá ég agnarsmáan pulsuhund í rauðri úlpu kúka. Fyndið? Já, svo sannarlega. Af svipnum að dæma fannst eiganda voffans það ekkert spes.
Á fimmtudaginn erum við að fara til Portúgal. Ég missi af fyrsta deginum af NY Toy fair en get að öllum líkindum bætt mér það upp á mánudeginum. Ef ekki þá mun ég kasta upp af vonbrigðum. Helst fyrir utan húsið sem hýsir ráðstefnuna.

En já já, sjáum bara hvað setur. Nú ligg ég eins og bölvuð klessa og mun bráðum rísa upp til þess að snæða. Sæl að sinni.

föstudagur, febrúar 08, 2008

vahú

Jæja, afmælið mitt var dásamlegt þökk sé yndislegu fólki. Ég fékk skemmtileg símtöl og email og comment og ég var bara mjög hamingjusöm.

Í gær var ég að rölta heim, framhjá mér hjólaði lúði á fjallahjóli og flautaði fít fíjú á mig. Ég setti upp svip en svo fór ég að hlæja í laumi af því að ég hélt að menn hefðu hætt að flauta fít fíjú fyrir mörgum árum síðan. Í hádegishlénu mínu í gær gengu ég og Lulu skólasystir mín framhjá konu með svartan kross á enninu. Ég leit glottandi á Lulu og sagði: ,, Eitthvað er nú að." Þá sagði Lulu: "It´s Ash Wednesday lúðinn þinn."
,, Ha?" hváði ég ósköp heimóttarlega. Það sem eftir lifði dags sá ég fullt af fólki með öskukross á enninu. Þetta eru víst kaþólikkar sem fara í kirkju á Öskudegi og presturinn klínir ösku í kross á ennið á þeim. Mjög furðulegt og dramatískt á að líta. Ég útskýrði öskudag fyrir Lulu og henni fannst okkar aðferð til að halda upp á öskudag vera mun skrítnari.

Aríprinsinn er að reka á eftir mér og því verð ég að drulla mér. Ég man samt ekki af hverju við þurfum að flýta okkur. Ætli það sé kviknað í?

sunnudagur, febrúar 03, 2008

blöhh.

Einstaka sinnum tékka ég á sjónvarpsstöðvum sem eru sérstaklega ætlaðar börnum. Þar er stundum hægt að finna skemmtilega þætti en að mestu leiti eru þær eintómur hryllingur. Ég skil ekki af hverju Scooby Doo, The Jetsons, Yogi Bear og Flintstones séu ennþá á dagsskrá. Mér þótti þetta ekki einu sinni skemmtilegt þegar ég var barn.

Mjeh, ég hef í alvörunni ekkert áhugaverðara að segja í dag.

laugardagur, febrúar 02, 2008

Bráðum á ég afmæli. Það er svo sem allt í lagi. Ég hef tekið þá gáfulegu ákvörðun að hætta í tímanum með pólitísku dark konunni. Þá verð ég með 14 einingar og svo get ég fært eina einingu á milli anna. Ég var nefnilega með 17 einingar fyrir jól. LÍN leyfir víst svoleiðis tilfæringar og hananú.

Ákvörðun þessa tók ég að hluta til út af afmælinu mínu. Ég fór að hugsa um afmælisdaginn minn og mundi þá eftir að ég yrði að eyða stórum hluta af honum í tíma hjá þessum kennara. Það þótti mér prump og svo tók ég allt í einu eftir því að ég er orðin nógu gömul til þess að sleppa því að gera það sem mér finnst leiðinlegt. Fyrir utan náttúrulega að borga reikninga, gera skattaskýrslu, svara þegar á mig er yrt, ekki skella hurðum, borða með hnífapörum, vera kurteis, greiða mér, sleppa því að lemja fólk sem mér finnst leiðinlegt eða vont, taka til, þvo fötin mín og fara reglulega í krabbameinsskoðun og til tannlæknis..... nú þegar ég hugsa um það þá er ég að pæla í að leggjast á götuna og láta FedEx bíl keyra yfir höfuð mitt.

Í gær var úrhellisrigning, engu að síður ákváðum við að trítla út í búð og kaupa eitt og annað. Og þá kom steypiregn og vatnið óx og óx. Nú er ég reyndar ekki alveg viss hvort steypi sé meira en úrhelli en sumsé þá rigndi meira. Þar sem við stöndum á götuhorni, blaut inn að beini, tek ég eftir brotinni regnhlíf og loðhúfu á jörðinni. Við nánari athugun er húfan alls ekki húfa heldur stór, blaut, dáin rotta.

Ég æpti, að vísu ekki kvenlega því það hef ég aldrei getað gert, og svo fékk ég tourette og gat ekki hætt að segja: ,, Oj."

Mig hefur alltaf langað til þess að geta æpt dömulegu hryllingsmyndaópi. Öskrin mín eru meira í átt við áreynslustunur kraftlyftingamanna.

Núna þarf ég að fara að vinna.
Bráðum kemur hann Halli minn og þá verður gaman.

mánudagur, janúar 28, 2008

Skúli fúli.

Ekki veit ég hvers vegna en ég er í svakalega fúlu skapi. Mér finnst allt leiðinlegt í dag. Í morgun fór ég í fyrsta hugmyndafræðitíma annarinnar. Kennarinn er agalega hrifinn af pólitískri list svo að verkefni vikunnar er að skissa upp eitthvað helvíti. Þemað er: Mannvonska mannsins við manninn. Þetta er að sjálfsögðu lauslega þýtt. Svo þarf allt að vera mjög dark og niðurdrepandi. Ef þessi kona myndi glugga aðeins í skissubækurnar mínar myndi hún áreiðanlega henda mér út. Ég er ekkert voðalega dark týpa. Ég er hrifnari af því að teikna feit börn eða konur með risastórt hár að borða ofskreyttar tertur. Ojj og sveii. Svo fór ég til námsráðgjafans til þess að fá að skipta um kennara en hann reyndi bara enn eina ferðina að skrá mig í ensku. Ég fór út í vægast sagt fúlu skapi en það er ekkert að marka því ég gekk inn í vægast sagt fúlu skapi hvort eð er.

Núna um það bil tíu Reese´s minicups síðar er ég ennþá í vondu skapi. Hvað gera bændur þá? Kannski ég fari að mjólka nágrannakonuna eða smala dópsölum hverfisins inn á löggustöð. Helst langar mig nú að slátra námsráðgjafanum sem neitaði að leyfa mér að skipta um kennara.

sunnudagur, janúar 27, 2008

Komum, sáum og hækkuðum verðið.

Ég elbska morgna, hádegi og fyrri part eftirmiðdags. Að sama skapi er ég alls ekki hrifin af því þegar klukkan er orðin fimm eða þegar kvöldið siglir að landi. Núna er klukkan eitt eftir hádegi og ég er strax farin að kvíða kvöldinu. Ég veit ekki hvort þetta hefur eitthvað með dagsbirtuna að gera eða þá að þetta séu leifar af kvöldkvíða barnæskunnar. Mér fannst aldrei gaman að fara að sofa.

Hérna á horninu er subbuleg lítil búðarhola. Í gærkveldi örkuðum við þangað inn og litli arabinn með loðhúfuna heilsaði okkur fagnandi og kyssti mig á kinnina með yfirvaraskegginu sínu. Við völdum nokkrar vörur og gengum loks að búðarborðinu. Fullur miðaldra maður var að kaupa einhvern fjandann og þegar hann heyrði verðið þá leit hann á okkur og æpti: ,, Alltaf hækkar helvítis verðið þegar hvíta fólkið flytur í hverfin!" Svei. Þetta er svipað og að segja að fasteignaverðið lækki þegar svart fólk flytur í hverfið. "There goes the neighbourhood." Argasti dónaskapur. Ég hlakka til þegar fólk hættir að taka eftir því hvernig allir eru á litinn. Þetta er ansi þreytandi.

föstudagur, janúar 25, 2008

í fréttum er þetta helst

Nú veit ég ekki alveg hvar ég á að byrja. Aldrei þessu vant hef ég frá mörgu að segja. Jæja, á þriðjudagskvöldið vorum við stödd á Lower Eastside með Kollu systur Jóns hárgreiðslumanns og Salóme nýju frænku minni. Við höfðum eytt deginum í að ræða skyndilegt dauðsfall Heath Ledger(s) og einhverra hluta vegna vorum við, nú veit ég ekki með aríaprinsinn en allaveganna við þrjár, afar spenntar að fara að húsinu sem maðurinn lést í. Við gengum Broome Street þar til við komum að sjónvarpsbílum, stálgrindverkum og blómvandahaug. Þar sem Kolla er frakkur fréttahaukur, óð hún upp að dyrum og myndaði herlegheitin. Fréttamennirnir sem voru þarna voru ástralir og við reiknuðum út að ástæðan fyrir því að þau væru svona sein á vettvang væri sú að það tæki langan tíma að fljúga frá Ástralíu. Annað hvort það eða að þau væru að reyna að mjólka málið út í hið óendanlega.

Mig langar að minnast á nokkra hluti varðandi þetta mál. Í fyrsta lagi þá var hinn látni jafnaldri minn. Hann bjó í íbúð í mjög fallegu húsi í Soho þar sem fasteignaverð er eintómur hryllingur. Í þriðja lagi var hann að bíða eftir nuddkonu sem hann hafði pantað heim til sín. Ég bý í Brooklyn og get í mesta lagi pantað mér mat heim til mín. Þetta hugsaði ég og svo skammaðist ég mín fyrir að öfunda látinn jafnaldra minn. Ef það væri mögulega hægt að láta fjarlægja öfundarkirtilinn þá myndi ég með glöðu geði leggjast undir skurðhnífinn.

Ég get talið á fingrum beggja handa, tám beggja fóta og öllum þeim fæðingarblettum sem líkama minn þekja, þau skipti sem ég hef öfundað einhvern. Í hvert einasta skipti, sem þessi tilfinning gerir vart við sig, fæ ég óbragð í munninn og tilvera mín verður ömurlegri um stundarsakir.
Þegar ég stóð þarna fyrir utan hús látinnar Hollywood stjörnu sem ég hef bara séð í tveimur bíómyndum, áttaði ég mig á því að ég hafði aldrei áður öfundað dána manneskju. Nýtt met. Nú verð ég bara að finna aðferð til þess að hætta að öfunda.

Á mánudagskvöldið var ég á leiðinni heim og fyrir utan húsið mitt kemur ungur maður upp að mér og spyr hvort ég reyki gras. Ég neitaði því og þá kom spurningin ,, En tekurðu E?". Einnig neitaði ég því og ætlaði að labba í burtu. Sá ungi gafst ekki upp og spurði mig hvort ég þekkti einhvern sem hefði áhuga á eiturlyfjum. ,, Nei" sagði ég vingjarnlega og hélt að nú væri ég sloppin. ,, Hvað heitirðu?" spurði kauði þá. Lygaviðbragð mitt er ágætt og því svaraði ég ,, Erin". Þá kynnti hann sig og tilkynnti mér að hann byggi í hverfinu.
Mikið er ég fegin að vera loksins búin að kynnast dópsala hverfisins. Svei, ekki er nú öll vitleysan eins.
Reyndar þekkti ég landasalana í Breiðholti en verslaði reyndar aldrei við þá. Ég fékk nú samt 750 ml af landa í 16 ára afmælisgjöf sem endaði með því að ég ældi svörtu í vask á Villta Tryllta Villa ef einhver man eftir þeim mæta unglingaskemmtistað. Good times.

Ég man ekki hvernig landi er á bragðið þar sem ég hef ekki drukkið hann í um það bil ellefu ár. Ég man bara eftir því að við blönduðum hann með bráðnuðum gúmmíböngsum og sprite eða fylltum brúsana af piparbrjóstsykrum. Svo fórum við niður í bæ og löbbuðum Austurstræti þvert og endilangt og skemmtilegast þótti okkur þegar klukkan var þrjú og bærinnn fylltist af fólki sem okkur fannst töff af því að þau voru eldri. Greyið unglingar. Ég sakna þess samt stundum að vera að deyja úr spenningi fyrir einhverju jafn ómerkilegu og jakka eða varasalva úr body shop.

Skólinn er byrjaður og um þessar mundir er ég að reyna að komast hjá því að fara í ensku. Ég sé nefnilega fram á að vera orðin blönk í maí og er ekki viss um að ég hafi efni á því að fara aftur í skólann í haust. Þar af leiðandi nenni ég ekki að eyða tíma mínum í einhver ömurlegheit eins og enskutíma. Ég sendi námsráðgjafanum mínum kurteist bréf þar sem ég útskýrði hvers vegna hann ætti ekki að neyða mig til þess að skrá mig í þessa tíma. Yfirmaður námsráðgjafans sagði honum nefnilega að ef ég myndi ekki skrá mig þá yrði hann að gera það. Einu tímarnir sem eru hentugir miðað við stundarskrána mína eru á föstudögum. Ég vil ekki vera í skólanum á föstudögum af maður má bara missa úr þrjá tíma og við erum búin að bóka okkur á tónleika þrjár helgar sem þýðír að ég myndi hvort eð er falla í ensku.

spennandi no?

föstudagur, janúar 18, 2008

Föstudagur

Ég var að komast að því að ég er óvenju léleg að nefna hluti. Þar með taldir eru bloggfærslu titlar. Af þeim sökum skírði ég færslu dagsins í höfuðið á degi dagsins sem er, jú jú mikið rétt, föstudagur.

Aríaprinsinn sefur á sínu græna eyra. Ef ég vissi ekki betur þá myndi ég halda að hann væri haldinn Narcolepsíu eða svefnsýki. Ég aftur á móti þjáist ekki af slíkri veiki heldur er ég með heilkenni sem hinn almenni borgari kallar leti og stunda íþróttina Lata Sport. Þess má geta að ég geri mér grein fyrir að þetta var ekki góður brandari.

Núna ligg ég uppi í sófa og góni á Never Mind the Buzzcocks sem má finna hér http://www.youtube.com/watch?v=yTK3UNv0DZE&feature=related.

Þess má einnig geta að ég er of löt til þess að finna út úr því hvernig linkar eru gerðir virkir á bloggum og því verða áhugasamir að kópía linkinn upp á eigin spýtur og peista þeim, einnig upp á eigin spýtur, í litla heimilisfangagluggann efst á þeim vefsíðuglugga sem þeir hafa valið sér.

Um daginn keypti ég púða sem er í laginu eins og kjúklingalæri. Hann er þægilegur og hvílir undir lötu höfði mínu.

New Jersey ferðin var fín fyrir utan tíðar tilkynningar, ónefndrar vinkonu minnar, um skemmtanagildi ferðarinnar. Þær voru einhvern veginn svona (í lauslegri íslenskri þýðingu): ,, úúhh hvað það er gaman hjá okkur!", ,, Við verðum að gera þetta oftar!". Þetta endurtók hún svo í lúppu. Svo sagði hún mér og Árna hvað við værum sætt par. Ég fór að hafa áhyggjur þegar hún lýsti yfir áhuga sínum á að búa með okkur í stóru húsi sem við gætum öll deilt og svo myndum við elda saman og búa til tónlist og gera list. Ég held að gera list þýði ekki að kúka heldur teikna og eitthvað svoleiðis.

Þau vilja endilega hitta okkur aftur. Í dag vildu þau fá okkur á tónleika með mjög leiðinlegri hljómsveit. Eþnískt big band. Og á laugardaginn ætla þau að skella sér á eitthvað fyrirbæri þar sem allir eru í búningum og svo sitja sumir og teikna eventið eða skrifa um það. Eitthvað ljóðrænt eða absúrd ætla ég að giska á.

Svei mér. Í skjóli leynimáls, 300.000 manna og kvenna, blogga ég viðbjóð um fólk sem langar bara að eignast vini.
Ég legg til að sleppa því að reyna að vingast við mig. Augljóslega er sál mín skítug sem nærbuxur íþróttamanns.

fimmtudagur, janúar 17, 2008

New Jersey

Í dag ætlum við að fara til New Jersey. Okkur var boðið í mat hjá vinafólki okkar. Vinafólkið er sko fólkið sem á erfitt með að vera eitt og sér sem par. Eftir mörg símtöl og nokkur email, ákváðum við að skella okkur bara yfir ána og hitta þau. Það verður ábyggilega bara fínt. Meira um það síðar.

Í gær ráfuðum við um borgina, fórum í banka og skólaskrifstofuna og í búðir. Við enduðum loks á fáránlegum indverskum veitingastað. Kjörorð staðarins var: "Where chili lights meet christmas tree lights." Staðurinn er á fyrsta Avenue og í sama húsi eru tveir aðrir indverskir veitingastaðir. Fyrir utan staðina eru þrír menn sem keppast um athygli. "FREE WINE" æpir einn. "FREE DESSERT" æpir annar. Sá þriðji reynir að sannfæra mann um að koma inn á sinn stað en fleygir engum gylliboðum í andlit manns. Allir staðirnir eru skreyttir upp í rjáfur með um það bil hálfu tonni af jólaseríum. Við ákváðum að fara á "FREE DESSERT" staðinn efst til hægri. Hinir karlarnir urðu fúlir.

En jú, núna verðum við að drulla okkur til New Jersey.

Vonandi rekumst við á Tony Soprano og ruslamafíuna.

þriðjudagur, janúar 15, 2008

Frú Sennelier

Í byrjun þessa mánaðar tölti ég upp í slipp og spreðaði í rándýrt blek. Í Slippnum átti ég í nördalegum samræðum við tvo indæla afgreiðslumenn. Ég vandaði mig við að hljóma svöl og yfirveguð en það var erfitt af því að ég er svo mikill blek-, vatnslita-, trélita-, tússpenna- og teiknipennalúði. Svo labbaði ég út og hélt báðum höndum um góssið. Ó, hve fagurt blekið er. Ef það er eitthvað í heiminum sem er andstæða við slor þá er það Sennelier blek. Loksins skil ég móðurbróður minn. Hann snobbar sko fyrir matarsalti. Snobba, en fyndið. Nú skulum við snobba. Í kvöld ætla ég að snobba. Snobb. Ég er svo leið..snobb.

Í gær fóru ég og gesturinn okkar í innkaupaferð. Við fórum inn í allar kvenfatabúðir sem fyrirfinnast á Manhattan og mátuðum. Þegar ég segi allar, þá er ég að ýkja.

Áðan sópaði ég stigaganginn í blokkinni okkar. Það bað mig enginn um það en þar sem ég breyttist í maníska kellingu fyrir nokkrum árum, gat ég ekki lengur setið á mér. Ef ég hefði þurft að horfa á sömu ruslhrúgurnar stundinni lengur, hefði ég þurft að fara á þunglyndislyf. Ekki hlakka ég til tíðahvarfa, þá mun ég líklega ráðast inn í íbúðir hjá nágrönnum mínum og þrífa. Þá mun svitinn leka ofan í hrukkurnar í andliti mínu og mynda litla fossa út úr húðinni á neðri kjálka og höku.

jájá best að hætta bara núna.

mánudagur, janúar 14, 2008

Woah.

Við kæstu skötuhjúin erum komin með nýtt sveitt áhugamál. Ég gaf aríaprinsinum Nintendo DS í jólagjöf og þar sem ég er kóngur mikill þá splæsti ég nú bara í aðra handa sjálfri mér. ,, Janúargjafir handa sjálfum sér eru vanmetnar." réttlætti ég og dæsti. Núna getum við prinsinn keppt í allskyns tölvuspilum. Svo sit ég og mæli ókvæðisorð og bölva elskhuga mínum. ,,DRULLA!!", ,, ÉG HATA ÞIG", ,, ..KEMUR HELVÍTIS EÐLAN!" æpi ég á vesalings drenginn. Hann tekur því nú bara með jafnaðargeði enda endemis rólegur náungi.

Skólinn minn hefst eftir viku. Amerískt par er á höttunum eftir mér og Aríaprinsinum. Þau vilja endilega eyða tíma með okkur því þau eru svo óhamingjusöm ein og sér. Ég fer undan í flæmingi af því að mér finnst svo óþægilegt þegar fólk rífst fyrir framan mig. Rétt fyrir jól sat ég með téðum hjónum á veitingastað og horfði á magnþrungið störueinvígi sem þau háðu mér til mikillar armæðu.

Jæja, hér er gestur og matur.

Sjáumst.

föstudagur, janúar 11, 2008

Ég er komin til Ameríku. Mikið er fínt að vera í fríi.

Í íbúðinni beið okkar morknað lítið jólatré. Ég er að spá í að horfa á það þangað til tréð ákveður að fara af sjálfsdáðum.

Hveitiofnæmið er eitthvað að færa sig upp á skaftið. Áðan var ég að borða kjúkling og hrísgrjón. Svo fór mig að klæja í hálsinn og tók loks eftir að inn á milli grjónanna voru litlar hveitinúðlur að fela sig. Maður er svona helvíti viðkvæmur.

Jæja núna ætla ég að horfa á 30 Rock með Tinu Fey. Hún er skemmtileg. Svo ætla ég að reyna að fá Snúlla Snæ með mér í bíó.

sunnudagur, desember 30, 2007

Merkileg uppgötvun

Ég er búin að fatta hvers vegna enginn kommentar hér lengur. Það eru allir of uppteknir við að fjölga sér. Ólíklegasta fólk er að hamast við að skipta frumum inni í sér. Ég veit ekki hvað mér á að finnast um þetta en ég býst ekki við því að fara í partý í nánustu framtíð. Eða jú kannski með Tinnu og Ásthildi.

laugardagur, desember 29, 2007

Heima er best

Mér fannst rétt að tilkynna að ef þið hafið áhuga á að hitta mig þá er ég stödd á íslandi. Við hliðina á mér er bleikklædd lítil frænka sem þagnar sjaldan. Mjög vinalegt.

þriðjudagur, desember 25, 2007

Jul

Gledileg jól.

Á næsta ári verdur blogg þetta til fyrirmyndar. Jákvæðnin og lífsgleðin munu drjúpa af hverju strái. Klístrað blogg 2008.

Ég er búin að éta svo mikið konfekt að ég get varla mælt orð af vörum, hvað þá fingrum. Neih bara smá vélritunardjók hjá mér.

Svo virðist sem fjölskylda mín haldi að ég hafi flutt til Suðurskautslandsins. Ég fékk bara ullarvörur í jólagjöf. En thad var dásamlegt thar sem ég er búin ad vera illa klædd í allan vetur.

Aríaprinsinn sló öll met með gebbuðum jólagjöfum. Smádótið valt hér um gangana og ég skríkti eins og japönsk smápíka.

Bæ

þriðjudagur, desember 18, 2007

Núna er litli kall orðinn þreyttur. Í nótt var ég að klára nokkur verkefni og svo leit ég á klukkuna og hún var orðin sjö. Svo illa vildi nú til að ég þurfti að fara á fætur klukkan hálf átta. Ég veit ekki hvað í dauðanum ég er að blogga núna. blefs

sunnudagur, desember 16, 2007

Svínið yðar.

Jæja, þá er kominn tími til þess að tala um nýja erkióvin, málunarkennarann minn. Ef einhver mun brenna í víti þá er það þessi blessaði aðili.

Á hverjum þriðjudagsmorgni síðan í ágúst hef ég drattast af stað með lestinni til þess að mæta í tíma hjá þessari eðlu. Maður þessi er einstaklega slæmur kennari og hefur stundað það að láta mér líða eins og hálfvita í hálft ár.

Frá níu til þrjú stöndum við nemendurnir með olíulitina okkar og málum berrassað fólk. Þegar hin berrössuðu taka sér pásur, breytir kennarinn sverum vísifingri sínum í lítinn krók og hreyfir puttann með svokallaðri ,, Komið hingað" hreyfingu. "Come, gather your stools" segir hann alltaf. Svo byrjar ballið.

Í stað þess að fræða okkur um notkun olíumálningar og almenna litameðferð, blaðrar hann út í eitt um Hollywood stjörnur, peninga og fleira leiðinlegt. "You know, Gwyneth Palthrow has realllly bad skin" segir flónið. Þvínæst fer hann að rausa um hversu gamlir Harrison Ford og Sean Connery séu orðnir og hvað Nicolas Cage ræfillinn sé með lélega hárígræðslu. Þetta veit hann því þegar hann er ekki að "kenna", þá fær hann þetta fólk í heimsókn og málar þau fyrir bíóauglýsingar. Mig grunar nú reyndar að það sé bölvuð lygi.

Svo heldur hann því fram að hann hafi verið inni í einum af ormunum í bíómyndinni Tremors og að sjálfur Kevin Bacon hafi staðið á höfðinu á honum. ,, Hvílíkur heiður" hugsaði ég með mér. Hróðugur sagði hann okkur að Herra Beikon hafi staðið fyrir aftan hann í röð á Starbucks og hvíslað í eyra hans: ,, Má ég standa á höfðinu þínu." Svo hlógu þeir saman því þeir eru víst svo ægilega miklir mátar. Þetta hljómar ef til vill eins og hress karl en þið verðið eiginlega bara að hitta hann til þess að sjá hvað hann er hálslaus og creepy. Hann er alltaf í svörtum fötum og horfir aldrei í augun á manni.

Verkefnin í tímanum eru álíka spennandi og maðurinn sjálfur. Núna þarf ég að mála kvikmyndaplaggat fyrir næsta tíma. Valið stóð á milli: Indiana Jones, National Treasurer og Harry Potter. Ég er ekki alveg í stuði fyrir það.

Svo segir kennarinn að það séu nú eiginlega bara hann og annar maður sem séu að mála þessi plaggöt. Engu að síður hvetur hann suma nemendur til þess að reyna fyrir sér í þessum bransa því þar liggi peningarnir. Hann er mjög hrifinn að peningum og fær aldrei leið á því að segja okkur hvað hann fékk vel borgað fyrir eitthvað óspennandi verkefni. ,, Þau þurftu nú bara að veifa seðlunum fyrir framan nefið á mér og ég að sjálfsögðu þáði" segir hann glaður.

Í nokkra mánuði var hann alltaf að tönnlast á því að fyrir ofan dyrnar á kennslustofunni ætti að vera skilti sem segði: "Illustrators, we be hoes." Ekki þótti mér nú mikið til vændiskonu titilsins koma og eftir um það bil þrjá mánuði sagði ég stundarhátt á ensku: ,, Ertu til í að hætta að segja að við séum hórur." Hann leit á mig með undarlegum svip og breytti "hoes" í "flexible". Nú tveimur mánuðum síðar segir hann alltaf:" You know, illustrators we be...." svo lítur hann hratt á mig og segir hæðnislega með ýktum tilburðum: "..FLEXibleeee" með sérstakri áherslu á bul í fleksíbul.

Fleksíbuuuuul baular hann nokkrum sinni á dag. Ég held hreinlega að maðurinn sé eitthvað geðveikur. Fyrst fannst mér þetta bara fyndið en svo fór þetta bara að vera eins og áráttugeðbilun hjá vesalings manngarminum.

Nú nema hvað, smám saman fár maðurinn að taka mig fyrir. Hann hrifsaði til dæmis mynd sem ég var að mála í tímanum af borðinu. Ég var búin að mála allsbera manninn sem stóð fyrir framan mig og var að dunda mér við að skreyta myndina. Ég var að teikna eitthvað skraut á kantana á myndinni þegar að Kroppinbakur kemur, grípur myndina af borðinu og endar svo á því að labba um herbergið til þess að sýna öllum bekknum. Svo fór hann að gefa í skyn að skrautið sem ég hefði teiknað liti út eins og kynfæri og eitthvað fleira miður skemmtilegt. Ég rétti fram höndina og þakkaði honum kærlega fyrir dýrustu niðurlægingu ævi minnar. 16000 dollarar fyrir að láta amerískan þrolla gera grín að mér.

Eitt af því versta við þennan mann er að hann er ægilega æstur í að faðma fólk og klappa nemendum á bakið og grípa í axlirnar á þeim. Svo velur hann sér uppáhaldsnemendur og bekkjarfíflið. Ég vann fíflalottóið að þessu sinni. Það er víst ekki sniðugt að vera ósammála vitleysingum sem hafa eitthvað með einkunnir manns að gera. Ég er samt alls ekki búin að vera dónalega. Krakkarnir í bekknum hafa meira að segja tekið eftir hvernig hann hefur tekið mig fyrir. Til dæmis sakaði hann mig um að hafa ekki unnið nógu og mikið í einum tímanum af því að ég væri alltaf að tala við stelpuna við hliðina á mér. Í fyrsta lagi kláraði ég allt sem ég átti að vera að gera. í öðru lagi þá leit ég aldrei upp frá myndinni, í þriðja lagi töluðum við lágt og samtölin voru stutt og fá. Í fjórða lagi þá sátu tvær stelpur stutt frá okkur og töluðu út í eitt. Þær voru háværar og flissandi. Svo tók ég eftir því að þær höfðu ekki gert bofs og önnur þeirra mætti meira að segja tveimur klukkutímum of seint í tímann. Kennaraómyndin gerðist meira svo djarfur að leyfa henni að fara fyrr heim því hún fór að barma sér yfir því hvað hún væri lasin. Daginn eftir fór stúlkan að ræða við mig um hversu undarlegt það hefði verið að gæinn hefði verið að atast í mér þar sem hún hefði verið að kjafta allan daginn eftir að hafa mætt allt of seint og ekki hafa gert neitt. blahh mér líður bara eins og einhverjum reiðum ungling. Æi jæja, ég er nú ekki alveg búin með þetta kennararöfl en ég er svo þreytt að ég ætla bara að láta mig falla ofan ár rúmið mitt. Meiri heimavinna á morgun. Svei.

mánudagur, desember 10, 2007

Jóhanna af Örk

Nú sit ég í sófa og teikna Jóhönnu af Örk. Það er stuð. Áður fyrr var ég afar fælin við að teikna hesta en núna finnst mér fátt skemmtilegra. Aríaprinsinn liggur á gólfinu og er að tala við mig og reyna að fá mig til þess að gera eitthvað annað en að læra. En ég veit betur en að láta freistast. Ég þarf nefnilega að gera nokkra hluti:

%Teikna sögubók

%Klára bók fyrir design for illustrators

%sauma þrjá kalla og búa til kassa utan um fimm kalla

%mála tvö málverk

%teikna átta myndir

%teikna teikningu sem er tíu fet á lengd en um það bil eitt á hæð

%skrifa litla ritgerð(5 bls)


Og þannig er það nú. Hægri hönd mín er ótryggð fyrir skakkaföllum by the way. Ég verð að byrja að læra að teikna með vinstri eða tánum. Tánum mínum.

Svo koma jólin bráðum. Ég hef eiginlega ekki tíma til þess að halda þau. Ooooog já og ekkert meira. Eða jú, ég á nýja kápu. Merkilegra var það nú ekki. Ætli ég verði ekki bara að tala um eitthvað plebbalegt.

Ég veit ekki hvort ég hafi sagt ykkur frá Frægðaríinu hérna á horninu. við erum sko búin að sjá þrjár stjörnur í hverfisbakaríinu.

Númer eitt er lélegast og sá eini sem ég er búin að sjá: Adrian Grenier, hann er það lélegur að ég þarf væntanlega að útskýra hver hann er. Hann er sko kærastinn í The Devil wears Prada og í aðalhlutverki í Entourage þáttunum sem ég horfi nú reyndar ekki á.

Númer tvö er alvöru stjarna: og hana þarf ekki að kynna, Maggie Gyllenhal

Númer þrjú er best: Malik Yoba úr Law and order og ekki má gleyma stórmyndinni Cool Runnings.

,, Hvar eru ilmsöltin?" æpa hinir hrifnæmu og dyggu blogglesarar í aðvífandi aðsvifi.

Bara að ég hefði nú frá einverju að segja öðru en hversu mikið ég held upp á 4B blýanta og hvað mér finnast HB blýantar vera mikill óþarfi. Svo hef ég aldrei skilið hnoðstrokleður og persónulega finnast mér nú bara Boxy vera best og hvítu Viggóstrokleðrin koma þar fast á eftir. Svo er nú varla hægt að blogga án þess að minnast á hvað hvítur pappír er miklu verri en offwhite. Svona hluti er ég að hugsa á hverjum einasta helvítis degi og líður eins og bölvuðu nördi.

þriðjudagur, desember 04, 2007

spreyjaði í myrkri.

Vott ðe hell? spyr ég nú bara. Það er allt að verða helvíti geðveikt hérna í skólanum. Kennararnir hamast við að hlaða á okkur lokaverkefnum og skilja ekkert í því að allir nemendurnir séu orðnir fölir, þreyttir og skapstyggir.
Lokaskil lokaskil, ég skil ekki neitt.(syngist við lagið ,, Klukknahljóm")

Loksins fengum við greyin langþráðan sófaling. Ég hoppaði hæð mína, já eða öllu heldur settist hæð mína í sófa.
Á sunnudaginn snjóaði og á um það bil klukkutíma breytist fallegi snjórinn í grænt slurm. Laufin af trjánum blönduðust slabbinu og göturnar voru ljósgrænar. "Glóbal vorming" segja hinir upplýstu kanar í sífellu.

Um daginn var ég að tala við ameríska vinkonu mína í símann. Þegar símtalið var á enda sagði hún: "Bye, I love you". Mér varð hverft við enda ekki mikill elskuorða kall. Ég svaraði bara einhvern veginn: " je, heh.. vell ókei gúdbæ". Svo lagði ég á og hristi víkingahöfuð mitt forviða. Ég getið talið, á fingrum annarar handar, þær manneskjur sem hafa muldrað þessi orð í eyru mér. Fyrsta manneskjan var unglingsgrey sem var að reyna að komast í nærbrækur vorar á Cancun árið 1993. Þrátt fyrir ástarjátningar drengsins þá tókst það ætlunarverk eigi enda var ég afar siðavandur áttundu bekkingur.

Svei, það sem maður man. Verst að minni mitt er algjörlega bundið fortíðinni. Vesalings aríaprinsinn þjáist fyrir götótt heilabú mitt. Hann er alltaf að endurtaka upplýsingar fyrir mig af því ég man ekkert stundinni lengur.

Ég get talið upp nöfnin á heilum her af böngsum og dúkkum sem ég lék mér með 1983 en man ekki hvað ég gerði í gær eða hvað ég á að gera á morgun. Hægt og bítandi breytist ég í móður mína. Hún hefur verið minnislaus síðan ég man eftir mér en segir á hverju ári: ,, Guð, ég er komin með alzheimer." Þá minni ég hana alltaf á að þetta segi hún á hverju ári. Þessi skemmtun mun líklega magnast næst þegar við hittumst minnislausar og utanvið.

Áðan var ég uppi á þaki að spreyja stól. Hann er eitt af lokaverkefnunum. Mér tókst að spreyja hvítu lakki í augun, hendurnar, úlpuna mína og á þakið sjálft. Sem betur fer endaði eitthvað lakk á stólnum. Núna er ég að bíða eftir að hann þorni svo ég geti teiknað á hann. Ástæðan fyrir slæmu gengi mínu var sú að ég komst ekki upp á þak fyrr en seint og síðarmeir og uppi á þaki er ekki ljóstýru að finna. Myrkfælnasta manneskjan í hverfinu stóð því eins og auli í myrkrinu og spreyjaði hratt í allar áttir til þess að komast inn sem fyrst. En nú er þessum hryllingi lokið og ég get róleg farið að dunda mér við eitt af fjölmörgum lokaverkefnum.

fimmtudagur, nóvember 29, 2007

Aldeilis bit.

Ef ég væri íri þá myndi ég heita Lóa O´heppin. Enn á ný þurfti hrakfallabálkurinn ég að skríða á heilsugæslustöðina. Ef ég bara ætti allar kvittanir sem ég hef fengið á mismunandi heilsugæslustöðvunum í hinum ýmsu löndum. Þá gæti ég gefið út bók sem myndi heita Sicko ef það nafn væri ekki frátekið. Þar sem ég keypti sjúkratryggingu hérna úti, hef ég ekki þurft að borga krónu fyrir . Eða jú 25 dollarar fóru í bólusetningu sem ég varð að fara í til þess að mega vera áfram í skólanum.

Núna ligg ég í sófanum (uppblásinni queen-size dýnu) með bólginn upphandlegg og heit eyru. Á eftir ætla ég að gá hvort ég sé nokkuð komin með hita því mér líður ekkert æðislega vel.

Í morgun vaknaði ég nefnilega með tvær litlar rauðar skellur í líkingu við skordýrabit. Önnur var á upphandleggnum en hin hafði komið sér notalega fyrir hjá olnboganum. Um hádegisbilið fór mig að klæja allsvakalega og síðar um daginn svimaði mig, fingurnir voru orðnir kaldir og upphandleggurinn á stærð við lítinn hamborgarahrygg. Ég þraukaði kennslustundir dagsins og trítlaði svo upp á heilsugæslustöð. Þar bar ég mig aumlega og tvær konur lýstu upp handlegginn með vasaljósi og hrukkuðu ennin. Svo fékk ég sýklalyf og á að koma aftur á morgun. Ég heyrði aðra þeirra tala um venom og það hljómaði hreint ekki vel í eyrum mér. Svo reyndi ég að fá upp úr annarri þeirra hvurslags skordýr þetta hafi nú eiginlega verið, allar bítandi flugur löngu dauðar úr kulda. Hún sagði mér að köngulær væru einnig á ferli á veturna. Jibbí kóla.

Svo á ég víst að panta tíma hjá The Medical Resident því konunum þóttu ofnæmisviðbrögð mín ekki eðlileg.

Jæja vendum voru kvæði í kross. Vegna fjölda áskoranna(þ.e.a.s. einni frá Ollu) ætla ég að reyna að lýsa hversdagslegu umhverfi mínu.

Við Árni búum í Brooklyn á þriðju hæð í rauðu múrsteinsfjölbýlishúsi. Síðan í byrjun október erum við búin að vera að sanka að okkur húsgögnum. Við byrjuðum á því að hringa í 1-800-MATRESS og kaupa jújú dýnu. Svo fengum við borð, sjónvarp og ruggubaststól hjá nágrönnum okkar. Úti á götu höfum við svo fundið stóla og ýmis konar dótarí og íbúðin lítur loksins út eins og íbúð. Okkur vantar sófa en ég held að það reddist á morgun.. vonandi. Svo væri dásamlegt að finna eldhúsborð. Öll eldhúsborð hérna eru annaðhvort ljót eða dýr og það gildir líka um sófana.
Árni er heimavinnandi húsmóðir en ég tek lest í skólann á hverjum degi. Lestin er úti á næsta horni, hana tek ég að Metropolitan Avenue og tek aðra lest þar að Union Square. (Classon, Bedford Nostrand, Myrtle-Willoughby, Flushing, Broadway, Metropolitan, Bedford Ave., 1st Ave, 3rd Ave, Union Square ef ég á að vera nákvæm).

Hverfið okkar er næs, bara eitt morð síðan í ágúst. Þetta er ekki klígjulegt hverfi eins og Williamsburg(Sveittir hipsterar í þröngum buxum með sólgleraugu hvenær sem er dags og hvernig sem viðrar, flestir með hatta. Dáldið eins og Joey Jeremiah í Degrassy Junior High) jájjája. Meira síðar. Mér er illt í hendinni.

sunnudagur, nóvember 25, 2007

Drullusokkur

EIginmaðurinn gerðist framtakssamur í hádeginu og skellti sér í Family Dollar búðina og festi kaup á þessum líka forláta drullusokk. Nú getum við tekið á móti gestum í spreng. Árnarnir fóru í bæinn rétt í þessu en ég húki heima og teikna. Ég sé þetta nú ekki sem kvöð. Gvöð. Ég er að vinna upp tapaðan tíma. Best að vera ekkert að blogga og eyða tímanum.

Stolt siglir fleyið mitt.

Áðan ætlaði ég að skríða upp í bæli mitt. Ég hugsaði með mér að kannski væri sniðugt að fara á klósettið áður.
Þar sem ég á það til að vera utan við mig og gleymin, hafði mér tekist að steingleyma að klósettið var stíflað eftir dvöl mína þar fyrr um kvöldið.
,, Best að sturta bara niður" hugsaði ég með þreytta heilanum mínum. Svo sturtaði ég niður. Yfirborð klósettvatnsins hækkaði og ég horfði á gamlan saur synda um. Glöggir menn hefðu áreiðanlega látið staðar numið þarna en ég aftur á móti hugsaði: ,, Best að sturta bara aftur niður" og sturtaði aftur niður. Vatnið hækkaði enn meira og skyndilega tók ósjálfráða taugakerfi mitt við sér þrátt fyrir þreytu líkamans. Í tæka tíð stökk ég upp í baðkarið og stóð þar og söng ,,Stolt siglir fleyið mitt stórsjónum á" á meðan vatnið fossaði um allt gólf. Í baðkarinu stóð ég þó nokkra stund, ósjálfbjarga og miður mín. Að lokum freistaði ég þess að grípa í vaskinn og vippa mér út um dyrnar. Það tókst ágætlega.

Síðasta klukkutímann hef ég svo verið að dunda mér við að sótthreinsa baðherbergið með Herra Proper og litlum sótthreinsisneplum. Íbúðin ilmar af hreinlæti og ef ég vissi ekki betur þá myndi ég jafnvel halda að hér byggi siðmenntað fólk en ekki villimenn sem geyma kúkinn sinn á gólfinu. En nú ætla ég að fara að sofa og láta mig dreyma um sjúkdómana sem þetta atvik mun leiða af sér. Svei.

þriðjudagur, nóvember 20, 2007

þriðjudagur guði sé lof

Nú dregur til tíðinda. Nei nei, mig langaði bara að byrja bloggið á þessum orðum.

Í fyrradag gistum við hjá hundunum. Við komumst að því að minna gerpið er ekki hvolpur heldur þrolli. Það þótti okkur fyndið mjög því hún Buffy er pínkulítil og nautheimsk. Aðfaranótt mánudags, skeit dýrið á gólfið og ég hóf vikuna með því að stíga með stóru tánni ofan í gumsið. Svo komst ég ekki strax í sturtu því téðir voffar eltu mig á röndum og meinuðu mér aðgang að baðherberginu. Mjög hlægilegur viðbjóður sú sena.

Í morgun tókst mér svo að telja mér trú um að það væri miðvikudagur og ég stressaðist um fimm stig. Þegar dagaruglingurinn var leiðréttur, róaðist ég og fékk mér kaffi. Í eina tíð stundaði ég það að reyna að telja mér trú um að klukkan væri meira en hún væri og stillti allar klukkur vitlaust. Þegar mér tókst að plata sjálfa mig, stressaðist ég vegna tímaskorts en varð alltaf jafn fegin þegar ég fattaði að ég var ekkert orðinn of sein heldur hafði nógan tíma. Ég skil ekki hvað mér gekk til þar sem heiminn skortir ekki stressvalda. Hehe kannski ég fari að kalla Valdimar StressValda.

Ég er með tölvuna úti í glugga af þvi að við erum ekki með okkar eigið internet. Mér er orðið dáldið kalt á puttunum. Ég myndi blogga í vettlingum ef ég gæti.

Á fimmtudaginn er Þakkargjörðahátíðin mikla. Þá munu Bandaríkjamenn skríða til sinna heima, fara í kalkúnabúning, borða pílagrímahatta með indíánafyllingu og brenna nornir og ljósmæður. Eða það skilst mér.

Persónulega finnst mér Þakkargjörðahátíð betra orð en hið frumstæða Thanksgiving. Af hverju kalla þau þá jólin ekki Presentbuying og páska Eggeating? Svo þykir mér einnig undarlegt að kalla afmæli birthday eða fæðingardag. Til hamingju með fertuasta fæðingardaginn.

En ég er nú bara að ergja mig vegna þess að skólinn minn er ein allsherjar skipulagsóreiða. Ég reyndi að skrá mig í tíma en allir tímarnir sem ég á og verð að taka eru yfirfullir. Samt má ég ekki bara skrá mig í þá tíma sem ég vil. Skrítið. Tvær milljónir í skólagjöld og ekki pláss fyrir mann. Á eftir fer ég til námsráðgjafans í þriðja skiptið og hann ætlar að reyna að troða mér í skylduáfangana. Algjört R-U-D-L: rugl.

En jújú núna er bara að spýta í lófana, þurrka af sér tárin og snýta sér í fánann.

Bless í bæli.

Ef einhver getur útskýrt hvað mensen þýðir þá væri ég þakklát. Vinkona mín endar alltaf sms á því að skrifa þetta orð. Mér finnst of seint að spyrja hana núna í lok nóvember hvað orðið þýðir. Mamma hennar er sko norsk.

sunnudagur, nóvember 18, 2007

apar

Hér ligg ég á uppblásinni dýnu og googla apa. Hugmyndakennarinn minn lét okkur fá apaverkefni síðastliðinn mánudag. Við áttum að stúdera apa og búa til eitthvað ægilegt concept. Mér finnst engin þörf á því þar sem apar eru alveg nógu merkilegir og er að pæla í því að búa bara til apa altari.
Japanskir snjóapar eiga hug minn allan eftir ábendingu frá sölumanninum. Sölumaðurinn dvelur hjá okkur næstu vikuna. Það er skemmtilegt. Ennþá skemmtilegra þykir mér að hann fékk það frábæra verkefni að passa apa.. hmm nú ætlaði ég reyndar að skrifa hunda. Djöfull.. ég vildi óska þess að hann væri líka að passa apa. Hundarnir sem hann er að passa heita Buffy og Tyson og eru eins og hundur vonda kallsins í Pocahontas.

Litlu rassgötin fögnuðu okkur ákaft þegar við komum heim til þeirra. Svo fórum við þrjú með dýrin í labbitúr og mér þótti samstundis vænt um þau.

Í nótt neyddist sölumaðurinn svo til þess að reka voffana út úr svefnherberginu sínu því þeir voru að vera með læti. Svo hrjóta þeir eins og astmaveikir flóðhestar. Ég gæti hreinlega kramið þá í mauk. MAUK.

sunnudagur, nóvember 11, 2007

Borðtennisborð og stóra ritgerðarblekkingin.

Eins og þeir, sem til mín þekkja vita, þá er ég aftur sest á skólabekk. Að sitja (á skólabekk) er einmitt mitt helsta viðfangsefni um þessar mundir. Ég sit í skólanum svo fer ég heim og sest við borðið mitt. Til að vega á móti þessu stend ég hvenær sem tækifæri gefst t.d. í lestinni og í matarhléum. Eða já til að vega á móti flötum rassi það er að segja.

Einmitt þessa stundina sit ég. Aríaprinsinn skaust, með trompetleikara nokkrum, út í bæ til að tralla og syngja og skjóta upp flugeldum á meðan þeir sænga hjá fögrum portkonum í rússíbanavögnum á ferð. Ætli þeir séu ekki líka að borða kandíflos með pulsubitum og osti og drekka doktor pipar? Eitthvað svoleiðis ímynda ég mér. Ég sit hér föst og þarf að skrifa eitthvað kjánalegt enskuverkefni og nenni því alls ekki.

Þar sem ég er nú tveimur vetrum undir þrítugu og ansi sjóuð í skólagöngu, veit ég vel að ritgeraðsmíðar eru eitthvað það ofmetnasta fyrirbæri sem um getur. Ég leyfi mér næstum því að kalla þetta svindl.

Allt lítur út fyrir að menntastofnanir taki annað í mál en að allir ætli að verða doktorar og/eða blaðamenn. Þess má geta að blaðamenn þurfa nú varla grunnskólapróf til þess að starfa á Íslandi. Þeir þurfa bara að vera með kjaft, lágt stillta siðferðiskennd og litla sem enga tilfinningagreind. Hehehe mér finnst svo fyndið að troða tilfinningagreind inn í samtöl og skrif. Það er eitthvað svo kerlingarlegt og glatað að gera það. ,, Jáhhh, sá hlýtur nú að vera með lága tilfinningagreind!"

En jújú, ég er sem sagt að klístra saman einhverju rusli um borðtennisborð til þess að skila inn til kvendisins sem kennir mér ensku. Ekki þykir mér nú gaman að láta tala niður til mín á mánudögum og miðvikudögum. Þessi kona stundar það. Ég einn daginn ætla ég að nudda nefinu á henni við handarkrikann á einhverjum feitum og tala niður til hennar í leiðinni, með New Jersey hreimnum sem hún þreytist ekki á að nota þegar hún er að reyna að vera fyndin.
Svo er hún skotin í austur evrópska djass stráknum. Hann drafar.

farin að læra veiii.

Borðtennisborð og stóra ritgerðarblekkingin.

Eins og þeir, sem til mín þekkja vita, þá er ég aftur sest á skólabekk. Að sitja (á skólabekk) er einmitt mitt helsta viðfangsefni um þessar mundir. Ég sit í skólanum svo fer ég heim og sest við borðið mitt. Til að vega á móti þessu stend ég hvenær sem tækifæri gefst t.d. í lestinni og í matarhléum. Eða já til að vega á móti flötum rassi það er að segja.

Einmitt þessa stundina sit ég. Aríaprinsinn skaust, með trompetleikara nokkrum, út í bæ til að tralla og syngja og skjóta upp flugeldum á meðan þeir sænga hjá fögrum portkonum í rússíbanavögnum á ferð. Ætli þeir séu ekki líka að borða kandíflos með pulsubitum og osti og drekka doktor pipar? Eitthvað svoleiðis ímynda ég mér. Ég sit hér föst og þarf að skrifa eitthvað kjánalegt enskuverkefni og nenni því alls ekki.

Þar sem ég er nú tveimur vetrum undir þrítugu og ansi sjóuð í skólagöngu, veit ég vel að ritgeraðsmíðar eru eitthvað það ofmetnasta fyrirbæri sem um getur. Ég leyfi mér næstum því að kalla þetta svindl.

Allt lítur út fyrir að menntastofnanir taki annað í mál en að allir ætli að verða doktorar og/eða blaðamenn. Þess má geta að blaðamenn þurfa nú varla grunnskólapróf til þess að starfa á Íslandi. Þeir þurfa bara að vera með kjaft, lágt stillta siðferðiskennd og litla sem enga tilfinningagreind. Hehehe mér finnst svo fyndið að troða tilfinningagreind inn í samtöl og skrif. Það er eitthvað svo kerlingarlegt og glatað að gera það. ,, Jáhhh, sá hlýtur nú að vera með lága tilfinningagreind!"

En jújú, ég er sem sagt að klístra saman einhverju rusli um borðtennisborð til þess að skila inn til kvendisins sem kennir mér ensku. Ekki þykir mér nú gaman að láta tala niður til mín á mánudögum og miðvikudögum. Þessi kona stundar það. Ég einn daginn ætla ég að nudda nefinu á henni við handarkrikann á einhverjum feitum og tala niður til hennar í leiðinni, með New Jersey hreimnum sem hún þreytist ekki á að nota þegar hún er að reyna að vera fyndin.
Svo er hún skotin í austur evrópska djass stráknum. Hann drafar.

farin að læra veiii.

sunnudagur, október 28, 2007

Áfengispróf!

Jæja, þá er Gummi litli grís búinn að raða í sig morgunmatnum. Mjög ánægjuleg stund með kjúkling verð ég að segja.

Þegar ég opnaði svo tölvupóstinn minn þá blasti við mér enn eitt glatað bréf frá skólanum mínum. Ég þurfti að taka áfengisprófið aftur. Dear Loa Hlin we have been informed that you have not completed your follow-up alcohol test on e-CHUG. We encourage you to do so immediately.
Samkvæmt því prófi er mjög óeðlilegt fyrir tuttugu og átta ára manneskju að drekka tvö vínglös á viku. Ég býst fastlega við því að frakkar, ítalir eða spánverjar hafi ekki samið þetta próf og eigi afar erfitt með að skilja ásakanirnar sem fylgja eftir prófið. Þau ýjuðu að því að ég væri alkóhólisti og ég sem laug og mildaði. Já og tók einhver eftir nafninu á fyrirækinu: Eeee- CHUG, CHUG, CHUG, CHUGGG!!
Jámm en tölum dáldið um eldsvoða. Það er skrítin lykt í loftinu, brunaliðsbíllinn kom æðandi að rétt í þessu og ofmannað slökkvilið er að rölta upp og niður götuna. Ætli einhver hafi kveikt í Colt maríneruðu beikoni hérna í hverfinu? Nei, maður spyr sig bara. Þetta hef ég upp úr kvikmyndinni Juice með Tupac ef einhver er að velta því fyrir sér.

Áðan hringdi Jason vinur minn. Hann notar mig sem heimalærdómsuppflettirit. Að þessu sinni var ég fegin vegna þess að, og nú mega sálfræðingar taka upp skrifblokkirnar sínar, ég var í þann mund að velta mér og snúa vegna hræðilegrar martraðar. Ég lá við hliðina á norskum frænda mínum inni í tjaldi í helli og við vorum að ræða að það væri ekkert mál að plata einhvern lækni til þess eyða barninu þar sem við værum svona rosalega skyld og hann myndi skilja ástæðuna(förum ekki nánar út í það). Ekki nóg með það þá var ég nýbúin að horfa á hommaklámmynd þar sem þessi frændi minn lék aðalhlutverkið á móti Eggerti Þorleifssyni. (soundeffect: blýantur brotnar á skrifblokk sálfræðings)

Ég skil nú ekki tilganginn með því að vera með undirvitund þegar hún virðist vera á móti manni. Niður með fjandsamlegar undirvitundir. Hvað væri að því að vera með vinalega undirvitund sem segir manni hlýja og gáfulega hluti. Hún gæti til dæmis hvíslað að manni tilgangi lífsins(ef ég gef mér það að tilgangur lífsins sé ekki að hafa mök við tvemenninga sína og horfa á klámmyndir með Eggerti Þorleifssyni.

Jæja, kannski er ég bara alkóhólisti með sóðalegar hugsanir, bældar hvatir og kynferðislanganir gagnvart ættingjum mínum.
Væri það ekki smart? Næstum því jafn smart og þessi bloggfærsla.

laugardagur, október 27, 2007

í dag er ég svo þunnur

Oj mig auma. Það er nú dáldið mikið vesen að vera þunnur. Í gær fór ég með Michelle á bar. Á leiðinni tókst mér að ná ótrúlegum árangri í lestarferðum. Sko þú veist hvernig það er þegar þú ert að keyra og lendir alltaf á grænu. Ég labbaði niður í lest, lestin kom, ég skipti á næstu stöð og lestin kom strax. Þriðja lestin hermdi eftir og ég komst á áfangastað á tuttugu mínútum. Magnað stöff. Annars var ég á mörkunum með að hverfa inn í fimmtu víddina því höfuð mitt dúndraði og þrútnaði af skelfilegum höfuðverk.

Að sjálfsögðu fór mig strax að gruna að ég væri komin með dularfullu veikina sem ég sá tilkynnta á forsíðu dagblaðs. Þar stóð: SUPERBUG KILLS NYC KID!. Svo kom einhver frétt um að tólf ára drengur í Brooklyn hefði dáið af völdum þessarar ofurpöddu. Fólki var ráðlagt að þvo mikið á sér hendurnar, nota plástra og sleppa því að bora í nefið. Það hljómaði erfitt þvi ég er mikið fyrir að bora í nefið mitt.

Á leiðinni heim frá barnum varð ég bílveikin uppmáluð. Leigubílstjórinn reyndi að drepa mig með ilmefnum. Ég reyndi að giska á hvaða ódýra rakspíra maðurinn hefði klínt á sig en hann sagði mér að þetta væri Nivea rakspíri. Ég verð nú að segja að hann lyktaði frekar eins og hann hefði smurt á sig Nivea klósetthreinsi.

Þannig að ég var með höfuðið út um gluggann alla leiðina eins og lítill hundur.
Núna er ég bara að teikna og reyna að halda höfði. Mig langar nú bara að horfa á Home Alone og éta ost.

fimmtudagur, október 25, 2007

Dexter drulla.

Harumph... Ekki var thridja bokin til thess ad hropa hurra fyrir. Adeins of mikid voodoo mumbo jumbo.

Nuna er eg ad fara i tolvutima og tharf ad skila verkefni sem eg gerdi adan. Eg atti ad hanna brefsefni med logoinu minu a. Ekki tokst thad nu vel til thar sem tolvukunnatta min er i lagmarki.

Maginn minn er med uppsteyt um thessar mundir enda faer hann litid annad en nachos og hummus i heimsokn. Eg get nu litid vid thvi gert thar sem thetta er uppahalds faedan min nuna.

Best ad skutla ser i tima. Eg tharf ad vanda mig ad na thessum afanga. Kennarinn er draumur i dos en hofudid a mer er sem tom tunna.

I kvold get eg loksins gert eitthvad af viti thar sem er buin ad lesa drulluna.

Já hæ

Júja ég er búin að fara til Íslands og er aftur komin til borgar englanna(copyright: Sveinbjörn H. Pálsson). Þennan brandara ætla ég ekki að útskýra.

Ég er ein heima því litli aríaprinsinn er ennþá staddur á fósturjörðinni. Klaufabárðurinn ég gerði þau reginmistök að grípa með mér myrkt lesefni á leiðinni í flugvélina. Því sef ég nú með ljósið kveikt og vanda mig við að koma mér ekki upp áfengivandamáli hins miðaldra: Léttvínssulli. Einhvers staðar las ég að haugar af miðaldra fólki láti innrita sig á Vog vegna þess konar vandamála. ,, Ég get ekki hætt að drekka rauðvín!!" Annars er nú ekki fallegt að gera grín að alkóhólistum.

Bókin umrædda og alræmda heitir Dexter in the Dark og þriðja bókin um hinn geðþekka raðmorðingja Dexter Morgan. Núna er hann aftur kominn í klípu blessaður.
Skrítið hvað hann er ægilega viðkunnalegt skrímsli. Þegar ég er búin að lesa þessa bók þá ætla ég að niðurhala annarri seríu af þáttunum um Dexter. Tvær seríur og þrjár bækur, það mætti fara að kalla mig dyggan aðdáanda.

Airwaves kom og fór og ég skemmti mér vel ef ekki drullu- og konunglega. Á laugardagskvöldinu tókst mér að kúgast af glimmeri, svo hóstaði ég upp bleikri glimmerflís og ældi næstum á bílastæðinu fyrir framan Gauk á Stöng. Ég þýddi það sem Cuckoo on a Stick og þótti ég fyndin. Ég man ekki til þess að einhver annar hafi hlegið.

Í dag fór ég í skólann, í gær var ég að leika við systur mína og frændsystkini. Það var stuð og við komumst yfir ótrúlega dagskrá á skömmum tíma. Tímatorg var heimsótt, Kínahverfið, Litla Ítalía og Neðri Austurhlið að hluta. Í Kínahverfinu rákumst við á helvítið hann Harvey Keitel. Eða jú já ekkert helvítis neitt, ég notaði það bara til áhersluauka. Ótrúlegt þykir mér eitt, systir mín og mágur eru mestu stjörnuseglar sem ég hef fyrir hitt. Þau þurfa rétt aðeins að reima skóna og ganga út úr húsi og þá rekast þau iðullega að frægt fólk. Skrítið að sápuóperan Heroes hafi ekki tekið þennan ofurkraft fyrir. Þess má geta að ég hef gefist upp á þessari þáttaröð. Mér finnst væl og þannig svo þreytandi. Núna væla þau svo mikið. Mér finnst skemmtilegra að sjá þau slást, fljúga og lækna sig sjálf þrátt fyrir að sá eiginleiki sé bersýnilega stolinn frá Wolverine.

Í gærkvöldi sofnaði ég klukkan sjö og vaknaði í nótt klukkan fjögur. Núna er klukkan að verða sex og ég er búin að ofkeyra internetið. Best að fara að sofa en ekki fyrr en ég hef fengið mér smá Nachos. Ég keypti blátt nachos í gær. Það er búið til úr bláum maís og ótrúlegt en satt, inniheldur ekki gervilitaraefni.

fimmtudagur, september 20, 2007

Ja eg er lot.

Eg er latasti bloggari Nordur Evropu. Thad er bara svo margt sem eg er buin ad sja ad eg fae bara adsvif thegar eg aetla ad reyna ad segja fra einhverju.

Um daginn lenti eg i nokkrum furdulegum atvikum. Vid hjonin erum i ibudarleit og thad er buin ad vera vaegast sagt ahugaverd reynsla. Sidasta ibud sem vid skodunum var i gotu og sama dag var madur myrtur af nagranna sinum um thad bil 6 husum nedar. Seinna um daginn forum vid a japanskan veitingastad. Vid beygdum inn gotuna og viti menn, blasir ekki vid okkur allsnakinn madur i einstaklega vondu skapi. Logreglan maetti a svaedid og tha vard herra berrassadur enntha fulli. Svo sat hann bara a troppunum med hond undir feitri kinn og ef vel var ad gad matti sja fjoluraudan pung gaegjast milli laera hans.

Amerikanar eru fyndnir. Their tuda mikid. Eg er haett ad nenna ad tala vid skolafelaga mina thvi thau gera litid annad en ad rofla yfir lestunum, kennurunum, verkefnunum og peningum.
Thad finnst mer ekki ahugavert.

Svo er eg buin ad komast ad thvi ad thegar amerikanar segja: "interesting" eda "creative" tha eru thad innantom ord til ad fylla upp i thognina. Eg er mikid ad vanda mig ad vera jakvaed og fyrsta skrefid i thvi er ad tala bara vid skemmtilegt folk. Thad munu tha vera; Arni, Kristin Anna og Dave, Halli, Sigurjon, Holmar, Michelle og litla Vivienne. Hun er fyndnust. Henni finnst mjog gaman ad bidja folk um ad fa ad sja rassinn a thvi. Svo hlaer hun eins og hross. Skemmtilegur litill strumpur. Agg, mikid sakna eg hennar Lottu minnar og hans Emils mins.
Best ad fa thau til thess ad koma hingad. Eg er nu thegar buin ad finna skemmtilegustu dotabudirnar og teiknimyndasogu og strakabudirnar. Ef eg vaeri rikur adili tha vaeru thau ofdekrudustu dullur i heimi.

Jemm, nuna er eg ad fara i tima og kynna mig og uppahalds voruumbudirnar minar.

A morgun er jardarfor heima a Islandi. Mig langar ad vera thar a morgun og grata med gomlum vinum.

sunnudagur, september 09, 2007

Afturgangan og olíubrákin.

Á þriðjudagsmorgnum klukkan níu er skylduáfangi í skólanum mínum er nefnist Málun fyrir annars árs nema.

Ef skyldur væru eitthvað sem mætti sleppa í stað þess að vera skyldugur til þess á klára, þá myndi ég svo sannarlega sleppa þessum áfanga.

Reyndar held ég að ég hafi gott af honum þar sem tússpennar eru ekki þess eðlis að þeir fleyti manni langt í myndskreytingarbransanum.

Nú, já og nema hvað. Kennarinn í þessum tilteknu tímum er afar furðulegur. Módelið sem situr fyrir er einnig a.f. eða afar furðulegt. Hún er asísk, flúruð á húð og með hanakamb. Svo heitir hún Bob. Kennarinn er voðalega hrifinn af henni Bob og kyssir hana á kinnarnar þegar hún mætir til þess að striplast um á bossanum.

Heimaverkefni síðustu viku var að mála sjálfsmynd í raunstærð. Ég kveið fyrir þessu þar sem penslar láta illa að stjórn.

Á föstudaginn hófst ég handa og núna hangir hálfkláruð grænleit ég á ganginum í íbúðinni. í hvert einasta skipti sem ég hef gengið inn um dyrnar, hef ég æpt upp yfir mig af því að mér sýnist alltaf einhver (jafnhár og ég) standa þarna í leyni.

Ég verð að klára fjandans myndina svo ég fari ekki á taugum.

Aríaprinsinnn sefur vært og ég er að velta því fyrir mér hvort það væri bara ekki bráðsniðugt að fara út í búð og kaupa klósettpappír.

Þetta er nú einu sinni The Land of Plenty og maður verður nú að ganga örna sinna reglulega til að gera pláss fyrir meira gums og góss.

Sæl eða Hello how are you?

Loksins er heimilið internettengt. Í tvær vikur höfum við hjónaleysin þeyst frá internetkaffihúsi til internetkaffihúss.

Við erum komin til Bandaríkjanna og það er frábært. Ég vissi að það væri einhver staður sem myndi heilla mig upp úr skónum.

Hérna eru allir skrítnir og maturinn er algjört rugl. Hér er hægt að kaupa ógeðslegustu en jafnframt fallegustu kökur í allri veröldinni. Þær eru svo hræðilegar að mig langar bara að horfa á þær en alls ekki stinga þeim upp í mig.

Í gær fór ég að leita að drasli í búð sem heitir Jack´s 99 cents store. Tiger mætti nú sjúga feitt rassgat fyrir mér.

Nú nema hvað, sem við stöndum í röðinni verður Aríaprinsinum að orði: ,, öh.. he.. Lóa ertu búin að sjá konuna með hárið?" Ég bjóst við því að sjá eitthvað fyndið og eins og klippt út úr myndinni Hairspray en nei. Mér varð ekki að ósk minni. Er ég leit til hægri, hægðist á veröldinni. Líkami minn skók er við mér blasti það allra viðurstyggilegasta hár sem ég hef á ævi minni séð. Svarthærði, síðhærði blettaskalla gaurinn á Laugaveginum átti ekkert í þetta. Hárberinn var lítil gömul kona. Þess má geta að hún var undarlega meikuð og tilhöfð. Ímyndaðu þér soðna lopapeysu, veltu henni svo upp úr skít, bættu hana með nokkrum lúsabúum og límdu hana svo á höfuði á sköllóttri gamalli konu. Gvendur á himnum. Það allra ógeðslegast var að sum staðar mátti sjá hárlokka standa út úr hryllingnum.

Ég fékk vægt áfall og færði mig. Greyið konan hlýtur að vera bláfátækt og vanrækt gamalmenni.

Ef ég ætti að hjálpa henni þá þyrfti ég að minnsta kosti hálfa vodkaflösku til að komast í gegnum hársnyrtiferlið.

Allt í lagi, bless.

fimmtudagur, ágúst 16, 2007

þreyttur litill kall

Æhh hvað ég er þreytt. Svo er ég líka dottin í það. Já sko ég gat ekki hamið mig lengur og festi kaup á nýjustu Harry Potter. Ég var sko búin að spara hana svo ég kæmi öllu í verk sem ég þarf að gera. Tveggja blaðsíðna to do listinn minn er að gera mig gráhærða, magasára og viðskotailla. En jú eins og nördafíkli sæmir get ég bara ekki gert neitt annað en að sitja með nefið ofan í Harry og lesa og lesa. Á föstudaginn förum við til Danmerkur enn einu sinni. Þar munum við leika listir okkar í danska ríkisútvarpshúsinu.

Sko til marks um hversu skelfilegt stressið mitt er orðið vil ég benda á nokkur einkenni sem ég þjáist af:

Ég er byrjuð að fá grátt hár
Ég er með stanslausan niðurgang
Ég er ekki búin að fara á túr síðan í júní (já ég er búin að tékka á hinu)
Ég sef illa
Ég gnísti tönnum þegar ég sef
Ég er með króníska vöðvabólgu
Ég er skapstygg

Úff segi ég nú bara.

mánudagur, júlí 30, 2007

coming to america

Bráðum slæst ég í hópinn með Beckham hjónunum og held til Ameríku. Ég ætla að horfa á Frelsisstyttuna með tárvotum augum og þurrka hvarmana með skítugu slæðunni minni. Svo mun ég að öllum líkindum brosa mildilega og hvísla: ,, Ahmerríkahh".

Á fimmtudaginn á ég pantaðan tíma hjá bandaríska sendiráðinu. Að sjálfsögðu er ég á nálum um að vera með alla rétta pappíra svo ég verði ekki send öfug heim. Í dag fór ég á ljósmyndastofu og fékk ferkantaða passamynd af sjálfri mér þar sem ég horfi beint fram, með eyrun úti og brosi án þess að það sjáist í tennurnar á mér. Ég þarf varla að taka það fram að myndin er verulega ljót og ef ég eignast börn þá munu þau ekki fá að sjá hana svo þau fari ekki að kvíða því að einn daginn munu þau líta svona út. En þetta var nú útúrdúr.

Um daginn var ég stödd í húsi á Laugaveginum sem verður brátt að víkja fyrir verslunarmiðstöð. Þá datt mér í hug að það gæti verið skemmtilegt ef Íþróttaálfurinn myndi hætta að atast í feitum börnum og einbeitti sér frekar af jafn miklum krafti að því að vernda Laugaveginn. Í dag finnst mér þetta ekkert voðalega góð hugmynd.

Ef einhvern þarna úti langar til þess að sækja um skóla í Bandaríkjunum þá er ég tilbúin til þess að svara alls konar spurningum um hvernig á að bera sig að. Eftir á að hyggja var þetta ekki svo flókið. Þetta lítur bara út fyrir það í fyrstu þegar maður veit ekkert hvernig maður á að snúa sér.

fimmtudagur, júlí 19, 2007

Oh, the humanity.

í þriðja skiptið í sumar ligg ég hér nær dauða en lífi. Þetta eru afleiðingar af bólusetningum. Ég hef alltaf verið sprautuð á mánudögum og lo and behold, á fimmtudegi er ég sem uppvakningur. Að vísu hefur það hvarflað að mér að þetta sé einfaldlega líkami minn að tilkynna mér að ég sé komin með krabbamein.

Núna ætla ég að setja höfuðið á mér í gufubað yfir potti. Ég hef trú á svoleiðis skottulækningum.

þriðjudagur, júlí 17, 2007

Eplaspitt.

Ég er að taka heilsupillur frá Heilsuhúsinu og er orðin sannfærð um að það sé ekki allt með felldu í því húsi. Svei mér þá ef það er ekki spítt í hylkjunum sem þau eru að framleiða.

Núna er klukkan hálftvö eftir miðnætti og ég var að koma úr garðinum þar sem ég stóð og hengdi upp þvott. Áður en ég þaut út í garð vaskaði ég upp eftir sambýlinga mína. Þar með talinn horror pottinn. Aldrei á ævi minni hef ég séð jafn brenndan botn. Ég vissi ekki að það væri hægt að brenna spagettí svona illilega.

En jú jú ef einhver hefur áhuga á lífi mínu og list þá er hér svona mynda síða sem ég apaði upp eftir systur minni.

http://www.flickr.com/photos/loaloaloa/

Þar sem ég er linkasauður þá er bara best að kópí peista þetta. ha? bara kópípeista þennan fjanda.

fimmtudagur, júlí 12, 2007

jubili

Þá er júbílí næstum hálfnaður. Ég er komin með bikínífar og fjarlægist óðum arískan uppruna minn. Í morgun fór ég í sund og synti. Núna þarf ég nauðsynlega að koma mér upp þolinmæði gagnvart óskipulögðum gamalmennum.

mánudagur, júlí 09, 2007

Eitt i viðbot..

Linkasíðan er í stafrófsröð bara svo þið vitið það.

Mein Gott im Himmel!

Sjáiði bara. Hvílík litadýrð. Til að heiðra systur mína, tók ég mig til og föndraði allskonar vitleysu við bloggið mitt. Núna er til dæmis hægt að kommenta án þess að vera krafinn skilríkja. Svo er ég loksins búin að koma nokkrum linkum fyrir á síðunni.

Annars var ég að hrynja úr Lödu Sport rétt í þessu (það er að segja fyrir tveimur tímum síðan því ég var að hanga á netinu og svo fór ég að dedúa við bloggið mitt.) Ég og Aríaprinsinn(sjá link), Bixí og Gamli keyrðum í allan dag frá Siglufirði til Reykjavíkur. Við venjulegar aðstæður tekur um fimm og hálfan tíma að keyra en við stoppuðum nokkrum sinnum á leiðinni og sit ég hér með dýrmætt góss úr ferðinni. Ég keypti eftirprentun af mynd eftir Sölva Helgason a.k.a. Sólon Íslandus og svo einstaklega falleg póstkort með fleiri fögrum myndum eftir sama mann.

En já há. Við stöldruðum við i í Lónkoti, Sölvabar, Hofsósi(ég er ekki viss um að það teljist sem staður, ekki hræða á ferð), Sölvabar(sumir gleymdu myndavél ofan á bíl sem vildi ekki hafa myndavél ofan á sér og hrinti henni í grasið), Varmahlíð, Staðarskála(eða Staldrinu eins og aðrir vildu kalla það), Hyrnunni og loks á bensínstöð í Pizzabæ (Mosó já sumir kalla það Pizzabæ, Mosó þar sem mánudagur er Miller time). Ástæðan fyrir síðasta stoppinu er sú að á leiðinni til Siglufjarðar hafði víst gleymst að borga fyrir brúsann, bensínbrúsann það er. Núna verður sviganotkun hætt svo ekki fái mannskapurinn flogakast.

Ég varð reyndar ekki vitni að téðri gleymsku þar sem ég fór degi á undan með Múttu, Pápa og Frú Gutt. Á fimmtudaginn var nefnilega för okkar heitið á þjóðlagahátíð. Já jú það hljómar ekki spennandi í allra eyrum en persónulega er ég aðdáandi þessarar tegundar tónlistar. Langspilssmíði ætti að vera skylduverkefni í grunnskólum landsmanna sem og kennsla á hljóðfærið. Heimurinn á nóg af pizzubrettum og lélegum blokkflautuleikurum.

Það er alveg magnað hversu mikinn tíma maður hefur úti á landi. Ég náði að lesa heila bók þrátt fyrir útstáelsi og tónleikaráp, sundferðir og fleira.

En ég má til með að segja frá markaðnum í Lónkoti. Hann er auglýstur sem stórkostlegur markaður þar sem bændur mæta með fersk matvæli, handunnar vörur og ég veit ekki hvað og hvað. Þegar við mættum á svæðið blasti við okkur risastór sirkustjald sem innihélt í mesta lagi ellefur sölubása.

Markaðurinn:

Bás 1: Kona að selja barnavettlinga
Bás 2: Kona að selja barnavettlinga og kleinur
Bás 3: Maður með tvo brauðhleifa og hálffrosinn fisk
Bás 4: Kona að selja nælon blóm og asíska púða
Bás 5: Kona að selja verksmiðjuunna barnaskó
Bás 6: Kona að selja flöskur, verksmiðjuunnar styttur og lukkupakkar. Birgitta keypti einn pakka og ég annan. Í pakka voru glasamottur og flöskuupptakari í laginu eins og kókflaska, í pakkanum hennar Birgittu leyndust glasamottur og já... ekkert fleira. Á mottunum stóð: New York, Big Apple, Manhattan.
Bás 7: Maður að selja ritfangavörur úr búð sem er á Siglufirði
Bás 8: Kona að selja notuð föt
Bás 9: Kona að selja eitthvað dótarí
Bás 10: Maður að selja harðfisk
Bás 11: Kjaftagleiður maður að selja mótorhjólafatnað á tugþúsundir króna, einn bleikan apa sem gefur frá sér hljóð ef þrýst er á trýnið og tvo farsíma. Annan á þrettán þúsund og hinn á sjöþúsund. Nokia eru víst bestir.

Ég bjóst nú ekki við Mið-Evrópsku Blómavali en þetta var nú bara eins og eitthvað Chernobyl Kolaport.

Framhald síðar. Mér er orðið óglatt af þreytu. Góða nótt

miðvikudagur, júlí 04, 2007

Jæja starfsfólk Guinnes Book of Records dragið fram penna og skrifblokk. Nýtt met var í þann mund að fæðast.

Ef frá taldar eru bronseftirmyndir af fólki þá held ég að ég eigi heimsmetið í að vera kúkuð á af fuglum. Áðan sat ég í makindum úti í garði og las. Skyndilega féll eitthvað volgt og slepjulegt á öxlina sem slettist niður á framhandlegg og á kjólinn minn. Þetta var tilræði númer fjögur.

Nú er mér allri lokið. Nú verð ég hreinlega að gerast trúuð og komast að því hvað það er sem vekur reiði Guðs. Þetta hlýtur að vera áminning vegna einhvers sem ég hef gert.

Engan þekki ég sem getur toppað þetta met og þegar ég hafði einungis lent í þessu þrisvar gat heldur enginn toppað mig. Ég þarf greinilega að fara niður í Klifurhús og rannsaka þetta meðal fjallaklifursgarpa.

Á eftir kemur Lísa Páls og sækir mig. Hún ætlar að keyra mig á æskustöðvarnar og taka viðtal við mig um Breiðholt. Jibbí, mér finnst einmitt svo skemmtilegt að tala um einmitt það og núna er ég ekki að vera kaldhæðin.

fimmtudagur, júní 28, 2007

Sei sei jájá hér. Ég var að frétta af honum kæra vini Hulla. Hann er að verða arfavitlaus í Svíþjóð því bölvaðir Skandínavarnir neita að tala á engilsaxnesku. Hann situr bara eins og daufdumbur á einhverjum námskeiðum allan daginn. Mætti ég stinga upp á flótta. Það myndi ég gera. Flýja í hraðbanka og svo á hótel. Núna væri jafnvel sniðugt að fara í sund. Þaldénú.
í morgun bjó ég til pönnukökur, beikon og egg og sitthvað fleira. Svo skar ég mig á glasi þegar ég gekk frá. í gær fór ég í Laugardalslaugina með móður. Við fórum í rennibrautina og ég kenndi 57 ára gamalli móður minni að setja sundbolinn upp í rassinn til þess að komast hraðar. Hún átti ekki til orð. Mér finnst furðulegt að ég hafi verið að ljóstra upp þessari staðreynd fyrst núna. Ég hef lumað á þessu síðan 1986 eða 7. Já eða sko síðan rennibrautin kom fyrst í dalinn.

miðvikudagur, júní 27, 2007

Ég mæli eindregið með því að fólk drekki gin á virkum dögum. Nema það sé með ofnæmi fyrir áfengi eins og alkóhólistar segjast vera með. Þetta hljómaði dáldið illa en það er bara af því að ég er gegnsósa af gini.

Jalliraddirí ég fór áðan á tónleika á Nasa. Þegar þangað var komið sá ég það skásta í stöðunni að hella í mig. Motion Boys og Rapture trylltu lýðinn á meðan ég gerði mér dælt við barþjóninn ljóta. Núna er ég komin heim og hef ekkert betra að gera en að blogga.

þriðjudagur, júní 26, 2007

Mikið væri ánægjulegt ef að allir litlu pastafeitu jakkafatasmeðjungarnir hjá Sjálfstæðisflokknum myndu skyndilega ákveða að draga sig úr pólitík og flytja til Austur Evrópu. Þessi einstaklingsmiðaða frjálshyggja er bara bull og vitleysa og hönnuð til þess níðast á þeim sem minna mega sín. Það mætti halda að þessir rökuðu sjálfstæðispungar hefðu aldrei fylgst með í samfélagsfræði.
Vændi ætti að sjálfsögðu að vera ólöglegt með öllu. Elsta atvinnugreinin my ass. Ég held svei mér þá að þetta helvítis lið gangi ekki heilt til skógar. Þeir mættu alveg ganga til skógar mín vegna, heilir sem hálfir.

Þegar ég opnaði Fréttablaðið í morgun mætti mér mynd af klámgeltinum Geira Gullfingri. Hann er spurður hvort að stúlkurnar hans fari ekki bara að dansa undir borðum fyrst að einkadans verði bannaður um næstu mánaðamót. ,, Ég held að það hljóti að vera eina leiðin" segir Geir og glottir við tönn.

Af hverju er Ásgeir Davíðsson látinn líta út eins og einhver hress karl í áhugaverðum atvinnurekstri? Hvers vegna eru myndir af honum í Séð og Heyrt þar sem hann er faðmaður af fáklæddum konum eins og það sé eðlilegasta mál í heimi? Hvað á það að þýða að á um það bil hálfu kílómetra svæði séu þrír soraklúbbar í miðbæ Reykjavíkur?

Mér finnst þetta bara hvorki fyndið né eðlilegt. Það þarf enginn að segja mér að þarna vinni hamingjusamar konur sem hafi ákveðið að leiðast á út á þessa braut af því að draumastarf þeirra hafi verið að dansa berar fyrir framan graða karla.

Af hverju erum við að þykjast vera siðmenntað fólk. Leyfum bara allt sem fólki dettur í hug og sjáum hvað gerist. Vændi, vopn, eiturlyf, misnotkun, engar hraðatakmarkanir. Þetta hlýtur hvort eð er að reddast allt saman.

mánudagur, júní 25, 2007

Þá er að koma sér í vinnugírinn. Það eru engin takmörk fyrir því hversu löt ég get orðið. Frekar sit ég og spila tilgangslausa tölvuleiki þangað til ég er komin með náladofa í lappirnar og vöðvabólgu í axlirnar.

Áðan var ég á heimasíðu doktor Gunna. Hann var eitthvað að minnast á að rita endurminningar sínar. Mér fannst það nú ágætis hugmynd. Þegar ég hugsa um eigin endurminningar er ég hreinlega ekki með það á tæru hvað sé minning og hvað sé uppspuni. Ég var greinilega lyginn krakki.

Samkvæmt BMI staðlinum er ég ofalinn grís. Spurning hvað ég nenni að gera í því. Mér líður ágætlega og hef ekki lent í því að fólk sé að benda á mig úti á götu. Kannski eru allir svona kurteisir.

ég nenni ekki að vinna. yarghhhh.

sunnudagur, júní 24, 2007

njöhh. já hvert var ég komin. Við ákváðum nú samt að fara til London þrátt fyrir að við værum ekki að fara að spila á tónleikum. Svo bauðst okkur að fara á Glastonbury hátíðina og við slógum til. Þar óð ég drullu í kínaskónum mínum. Svo var ég að vakna núna eftir 15 klst og 45 mínútna svefn. Mig dreymdi að ég væri að öskra á melludólg.
Jæjahh. Þá er ruglaðasta helgi ársins senn á enda. Á fimmtudaginn fór ég upp á Leifsstöð klukkan fimm um morguninn. Við áttum að fljúga klukkan tíu mínútur í átta en flugvélin bilaði og biðum við því til 15:30. Í milli tíðinni fórum við í Bláa Lónið sem er orðið grænt. Starfsfólkið laug og sagði eitthvað blaður um þörunga og að lónið væri eins tært og það gæti orðið. Þörungarnir væru þarna út af sólinni. Svo undarlega vill til að lónið sem er fyrir framan húsið er ennþá tannkremsblátt. Þar skín sólin alveg jafn skært. Ég held bara að vatnið sé sýkt út af of miklum straumi fólks. Kannski lónið hafi líka orðið grænt af viðbjóði þegar það frétti að það kostar 1800 krónur ofan í.

Þegar við komum upp úr lóninu græna fórum við í skemmtiferð til Keflavíkur og aftur upp á flugvöll. Þar komumst við að því að tónleikunum okkar hafði verið aflýst .... ég kem aftur síðar.

mánudagur, júní 18, 2007

Áðan sat ég öll útötuð í sósu. Héðan í frá er víst best að ég borði pítur í einrúmi. Í gær var ég ekki í einrúmi eina einustu sekúndu. Þetta var einstaklega fínn þjóðhátíðardagur. Það eina sem var skrítið var að þegar klukkan var hálftólf helltist yfir mig löngun að eyða pening í drasl. Bara eitthvað drasl. Ég hafði komist í gegnum allan daginn án þess að kaupa mér gasblöðru, tveggja kílóa sleikjó, sleikjósnuð, candy floss, popp, fuglaflautu eða límmiða á kinnina. Þegar miðnætti nálgaðist arkaði ég sem óð manneskja og keypti eitthvað hauskúpudrasl fullt af pipardufti. Hvarf þá löngunin eins og dögg fyrir sólu.

Dagurinn hófst á því að ég og sambýlisfólk mitt héldum niður í bæ. Þar kíktum við á sólina í gegnum stjörnukíki, fórum í sólbað í Alþingisgarðinum, sáum undarlegt víkinga skemmtiatriði... ég vona að forfeður okkar hafi ekki verið svona miklir lúðar, töldum munaðarlausar gasblöðrur á himninum og virtum fyrir okkur samlanda okkar. Svo fóru ég og aríaprinsinn, hárgreiðslumaðurinn og flugmaðurinn á hljómsveitaræfingu.

Þegar æfingunni lauk fórum við og horfðum á handbolta. Ég er nýbyrjuð að horfa aftur á handboltaleiki. Áður fyrr fékk ég alltaf bullusóttina og ærðist ef landsliðið tapaði. Uppáhaldsleikmaðurinn minn er hann Óli en aðallega af því að hann fer á Sirkus og drekkur sig fullan.

sunnudagur, júní 17, 2007

Magnað að vakna alltaf einu sinni á ári með sama kjánalega lagstúfinn á heilanum. Já ég er að sjálfsögðu að tala um Hæ hó og jibbíjei og jibbíjeij það er kominn sautjándi júní. Hver ætli hafi samið þetta?
Áðan var ég að lesa blogg systur minnar www.hryssa.blogspot.com sem ég á ennþá eftir að setja í linkakerfið mitt sem ég er ekki búin að virkja. Á blogginu hennar má lesa afar fallega bæn. Það er mjög góð tilfinning að fjögurra ára barn í Mexíkó, biðji fyrir manni á kvöldin. Ég varð allaveganna meyrari en ungnautakjöt þegar ég las það.

Helgin fór að miklu leiti í skrall og skemmtanir. Við spiluðum tvisvar á föstudagskvöldið og einu sinni í gærkvöldi. Við erum búin að eignast aðdáendur sem eru miðaldra hjón frá Ameríku. Þau komu á alla tónleikana og í gærkvöldi stóð maðurinn í bleikri skyrtu og tók myndir af okkur. Ég hef aldrei átt mann í bleikri skyrtu og mér finnst það bara næs. Sjálf myndi ég ekki ganga um í bleikri skyrtu. En já þetta voru semsagt indælishjón.

Í dag er þjóðhátíðardagur þjóðar minnar og ég nenni eiginlega ekki niður í bæ. Sautjándi júní er dáldið eins og endurtekið efni.

mánudagur, júní 11, 2007

Sunnudagur þessi hefur verið mér einstaklega drjúgur. Hann hófst vitaskuld á því að ég drattaðist á fætur. Nokkru síðar tók ég til við að heiðra danska forfeður mína og sat í góðu yfirlæti með Hulla og Hlabbadibbi á Jómfrúnni. Ég pantaði mér einhvern djöfulann sem ég át svo eins og hraðvirka matvinnsluvélin sem ég er. Jómfrúin fær kannski svona tvær kámugar stjörnur en bara af því að ég var ekki nógu vel stemmd fyrir súrkál og majónes.
Þegar heim var komið fékk ég skyndilega þá hugmynd að slá garðinn. Ég vissi greinilega ekkert hvað ég var að fara út í þar sem þessi landræma leyndi verulega á sér. Reynsla mín af Unglingavinnunni kom samt að góðum notum þar sem ég er ein af þeim fáu íslensku einstaklingum sem átti skilið á fá laun fyrir vinnu mína. En já aftur að garðinum. Nokkrum stundum síðar rankaði ég við mér þar sem ég stóð drullug í beði að lofa blómum upp í ermina á mér við nágrannann. Hann er gamall og hrýtur mjög hátt og einkennilega. Hulli getur gert eftirhermu af þessum hvalahljóðum og það hefur iðulega kætt mig.

Sá gamli lýsti því yfir að ég hefði átt: ,, grimmilega góða frammistöðu" í garðvinnu minni. Ég át hrósið upp til agna. Ætli ég hafi ekki ofmetnast á þeim tímapunkti, misst minnið og byrjað að tala um yfirvofandi aldingarð.

Um sjöleytið átti ég stefnumót við foreldra mína. Alveg finnst mér ótrúlegt að þetta fólk sé alræmdir samkvæmisdansarar þar sem þau virðast á stundum taktlaus með öllu. Þetta hófst allt á því að faðir minn leit á mig þar sem ég stóð í nýjum sumarkjól. ,, Ertu ólétt?" glumdi í pabba. Ég brást ókvæða við og tilkynnti honum að hann væri dóni og að svona tali maður ekki við konur. Hann baðst afsökunar samstundis. Af gefinni reynslu er hann farinn að biðjast afsökunar þegar ég tek upp á því að móðgast við hann. Einu sinni fór ég nefnilega í rækilega fýlu og píndi þannig út úr honum afsökunarbeiðni. Ég játa að það er ömurleg aðferð sérstaklega þar sem fýlan var af tegundinni silent treatment. Ætli það sé hægt að fara á stofu og fá silent treatment. Þar sem vandamál og líkamlegir kvillar eru þöguð í hel.

Já en nú að taktleysi móður. Við duttum inn í bíómynd eftir matinn. Móðir var dugleg við að spyrja út í hitt og þetta varðandi atburðarásina í myndinni og ég svaraði samviskusamlega nema þegar hún spurði út í hluti sem áttu eftir að gerast þar sem að ég er bara eðlilegur áhorfandi en ekki skyggn.
Eitthvað undarlegt klukkuverk hefur farið í gang í höfðinu á mömmu þar sem þegar um það bil fjórar mínútur eru eftir af myndinni heyrist: ,, Ég hef séð þessa mynd, hann fer ekki inn og hittir konuna sem hann hefur ekki talað við öll þessi ár." Þar með varð lokasena myndarinnar að engu. Ég leit á múttu og hef líklega verið með raðmorðingjaglampa í augunum því mamma greyið fór að draga í land en varð á endanum að gefast upp því auðvitað rættist það sem hún hafði sagt. Svo fékk ég hláturskast og mamma líka. Ég sá svo innilega fyrir mér mekanismann í höfðinu á mömmu þar sem ryðguð tannhjól snérust hægt í tvo klukkutíma og kveiktu loks á fimmtán vatta peru.

Síðan fór ég að velta því fyrir mér hvort þetta væri arfgengur sjúkdómur. Sérstaklega í ljósi reynslu minnar af Maju systur. Atvik sem gengur undir nafninu ,, The Sixth Sense atvikið" rennur mér seint úr minni.

laugardagur, júní 09, 2007

Happidíhúpp. Í dag sat ég á gildum rassi og seldi skran á markaði. Það var stuð og er seðlaveski mitt fullt af já já seðlum. Græðgisglampinn í augum mér glitraði í sólskininu þar til fór að rigna. Ég gæti orðið ágætis skransali. Mér líður vel þegar ég er umkringd klinki og drasli. Jebbs..ahh..

Ég skaust rétt svo í galleríið um þrjúleytið og skilaði af mér hrossi og apa. Loksins, Ég var búin að trassa það aðeins of lengi. Rakspíraða eiturnaðran var með eitthvað budl. Ég tók mig til og talaði eins og óskipulögð en vingjarnleg listakona. Svo sagði ég bara bæ og valsaði út og snýtti Kölnarvatnsatómum úr nösunum. Já bæ.

fimmtudagur, júní 07, 2007

Jemms og hó. Núna er ég að reyna að vera dugleg að blogga því systir mín er lengst í burtu í suðurhöfum. Hún skammar mig ef ég er löt. Svo er ég líka að reyna að komast í einhvers konar skrifgír. Í dag er ég bara búin að vaska upp og hella upp á kaffi og lesa fréttablaðið. Þarna var ég næstum búin að skrifa ,, lessa fréttablaðið." Ég veit ekki hvernig maður færi að því ó nei. Mögulega er einhver í þessum töluðu orðum einmitt að lessa eitthvert dagblað. Maður veit aldrei með fólk.

Annars finnst mér leiðinlegt að lesa blöðin því það er alltaf einhver dómsdagstónn og hann vil ég ekki heyra svona í byrjun dags. Mig langar frekar að hlusta á Don´t worry be happy eða Baby don´t worry about a thing, ´cause every little thing´s gonna be allright. Þá gengur maður út í daginn mun jákvæðari. Eina ástæðan fyrir því að ég greip þetta blað í morgun var sú að mér finnst dónalegt að taka bækurnar hans Hulla með mér á klósettið. Það minnir mig á þegar George í Seinfeld fór að skíta með bókina úr bókabúðinni og þurfti að kaupa hana því bókabúðin var með eftirlitskerfi til að fylgjast með þessu.

Í gærkvöldi slökkti ég á sjónvarpinu þegar einhver náungi byrjaði að lesa upp úr viðtali við þriggja ára barn sem hafði verið misnotað af djöfuls ógeði. Af hverju er ekki bara hægt að dæma svona fólk og birta myndir af því svo það geti drullast til að skammast sín. Stundum væri ég alveg til í að Dexter byggi í nágrenninu svo hann gæti dílað við níðingana sem sleppa í gegnum kerfið. Já já nú er hann pápi minn líklega farinn að hugsa: ,, Alltaf við sama heygarðshornið, fasistinn dóttir mín." Ég sé bara ekki tilganginn í að vera liðlegur við fólk sem stundar það að rústa sálarlífi barna.

En humm og já. Í fjóra daga hefi ég ekki gert neitt sjálfri mér að gagni. Tilgangsleysi mitt er samt ekki farið að há mér alvarlega. Í þessa fjóru daga hefi ég stuðst við afsökunina: ,, Ég var í bólusetningu og maður getur fengið hita."

Aðdáandabréfinu sem ég sendi í gær var svarað samdægurs. Indælis piltur þessi Cooper náungi.

ahhhh núna verð ég að gera eitthvað gagnlegt. Þetta er hálfvitaleg leti.

miðvikudagur, júní 06, 2007

Í dag byrjaði ég á því að labba inn í eldhús, líta í kringum mig og æla lopavettlingi á tærnar á mér.
Svo vaskaði ég upp. Núna er mannhæðarhátt fjall af hreinu leirtaui inni í eldhúsi. Ég mun ekki raða því inn í skáp fyrr en að minnsta kosti einn meðlimur húshaldsins er búinn að berja þetta augum og mögulega fá samviskubit eða veita mér orðu.

Í gær tók ég mig til og skrifaði lista yfir allt það sem ég á eftir að gera, allan pening sem ég á í útistandandi skuldum, allar mínar skuldir og hluti sem ég gæti gert ef ég drullaði mér til þess að vera dugleg. Mér leið aðeins betur eftir listann. Þegar langur tími líður milli lista, á ég það til að mikla hlutina fyrir mér. Upplýsingarnar reyna að halda dauðahaldi í höfuðkúpu og heilabörk og þvælast fyrir hvor annarri. Til að minna á sig æpa þeir hver í kapp við aðra til að keppast um athygli. Þess vegna já virðast vandamálin stærri en þau eru í raun og veru. Já segjum það.

Aríaprinsinn og ég tókum okkur til í gærkveldi og töltum upp í stúdíó. Þar spiluðum við pool og bjuggum til helvíti fínt lag sem heitir Forsetinn eða The President þar sem það er auðveldara að jarma einhverja vitleysu á ensku heldur en að semja stuðlaða snilld á hinu ástkæra ylhýra. Þar sem við erum hvorki í ástarsorg né sjálfsmorðsmiðuð fjalla textarnir yfirleitt um eitthvað allt annað. Vídeótæki, hljómborð, simpansa, karabíska hafið og svo framvegis.

Áðan skrifaði ég fyrsta aðdáendabréfið mitt. Ég var að blaða í gegnum ótrúlega fallega bók sem heitir Overbite og hreinlega varð að þakka fyrir mig.

Ef þið vitið ekki hver Dave Cooper er nú þegar þá mæli ég með teiknimyndasögunum hans og málverkabókunum.

þriðjudagur, júní 05, 2007

Ég er komin einu hænuskrefi nær skólanum í hinum guðvsvoluðu Bandaríkjum. Þá er bara að kvíða flugvallaferðinni.

Alveg finnst mér óskiljanlegt hvers vegna maður er grunaður um græsku um leið og maður stígur fæti inn á flugvöll. Hin svokallaða öryggisleit er bara brandari. Það að mega ekki vera með krem í handfarangri er byggt á misskilningi. Fróður maður tjáði mér að ástæðan fyrir því, að maður megi ekki vera með meira en 250 ml af vökva á sér, er sú að þá geti fólk ekki dundað sér við að búa til vökvasprengjur á leiðinni. Einnig tjáði hann mér að vökvasprengjugerð væri ómöguleg við þessar aðstæður því heimatilbúnar sprengjur af þessu tagi myndu sprynga í höndunum á manni áður en þær yrðu nógu öflugar til þess að valda almennilegum skaða. Svo þyrfti að þjappa vökvanum og eitthvað bla dí bla sem er eitthvað flókið og bla bla bla.

Líkurnar á því að lenda í vél sem er þéttsetin hryðjuverkamönnum eða flugræningjum eru mjög litlar. Ef ég mætti velja þá myndi ég frekar vilja fá góða þjónustu þar sem fólk er kurteist, maður er ekki grunaður um græsku og fær að halda tannkreminu sínu og taka bara sénsinn á því að vélinni verði rænt. Þá verður henni bara rænt. Mér líður ekkert öruggri með það að geta lent í tollvörðunum, flugvallalögreglunni eða einhverju þaðan af verra, í hvert einasta skipti sem ég fer t.d. til DANMERKUR. Mér finnst þetta fábjánalegt. Fólk sem ætlar að fremja glæpi fremur þá bara. Það finnur bara upp einhverja sniðugri aðferð næst. Bandaríkjamenn eru hvort eð er búnir að myrða alla sem eru ekki að deyja úr hungri eða AIDS í Afríku eða þá sem eru uppteknir við að drepa nágrannaþjóð sína eða verða drepnir af nágranna sínum.

Stundum finnst mér svo skrítið að það sé ennþá fólksfjölgunarvandamál í heiminum. Miðað við fréttir af dauðsföllum, styrjöldum, fuglaflensum, offitu, reykingum og náttúruhamförum ætti nú að vera tómlegt um að litast.

Ef skattpeningar mínir færu frekar í að hjálpa bágstöddum í stað þess að fá enn aðra óskiljanlega umferðarslaufu þá væri ég sátt.
Hmmm.. ég held að ég hafi fengið vitlausa sprautu hjá lækninum í gær. Hún hlýtur að hafa látið mig fá reiðisprautuna.

mánudagur, júní 04, 2007

Góðan dag. Á eftir fer ég í bólusetningu. Þangað til ætla ég að sitja í plaststól og bíða þangað til Guð kemur og færir mér dömubindi eða breytir mér í karlmann. Í dag verð ég bólusett fyrir heilahimnubólgu, mislingum og mænusótt. Þetta verð ég að gera fyrir skólann þrátt fyrir að vera ekki par hrifin af nálum, stungum eða það sem verra er, hálfdauðum sjúkdómum í æðum mínum. Einu sinni átti ég kennara sem var á móti bólusetningum. Það má víst en ég veit ekki hvernig maður fær vottorð upp á það.

Á laugardaginn fór ég í danska rússíbanan Demon eða Deamoun. Það var erfitt að lesa flippuðu leturgerðina. Röðin í banann var hálftími, ferðin var hálfrar mínútu öskurreið. Ég náði að fá um það bil fimmtán kvíðaköst í röðinni. Ég fattaði ekki að ég væri svona mikil skræfa fyrr en ég heyrði mig tuða í fimmtánda skiptið: ,, Ég er ekki bakveik, hjartveik eða ólétt, ég er yfir 132 cm, þetta verður allt í lagi. Heldurðu að það verði ekki gaman? Ætti ég að fara úr skónum? Það er fullt af unglingum og tíu ára krökkum hérna og þessi þarna er miðaldra" Svo æpti ég í hálfa mínútu og kom út glottandi og sigurreif.

Í miðborg Kaupmannahafnar voru 30.000 svíar. Þeir voru allir í bláum og gulum fötum og sungu lagið wouh oh oh oh ooooooh. Um kvöldið kepptu Danir og svíar í hérna... fótbolta held ég. Óeirðalöggan var að sjálfsögðu mætt á staðinn. Ég held að þeir séu bara svona hressir og hrifnir af mannfagnaði.

Mér er að blæða út hérna. Svo mun ég á eftir telja mér trú um að ég sé komin með áður upptalda sjúkdóma. Ég ætti kannski að googla einkenni mislinga, heilahimnubólgu og mænusóttar svo ég viti hvernig mér, helsjúkri manneskjunni á að líða á eftir.
Núna ætla ég að standa upp, taka hatt minn og staf og reyna að gera eitthvað úr þessum degi. Fjandinn hafi það.